|
föstudagur, október 07, 2005
Hæ hæ!
Ástæðan fyrir því að ég er að blogga er sú að ég náði GOLDBOAT alla leið frá BSÍ og hingað heim og langaði svo að segja einhverjum það! Fyrir þá sem ekki vita, þá er goldboat það hugtak sem ég hef fundið upp fyrir það að lenda á grænu ljósi alla leið frá stað A til staðar B, og þessi goldboat sem ég náði áðan var eflaust sá lengsti sem ég hef nokkurn tíman náð!
Enn fyrst ég er að þessu á annað borð ætti ég svo sem að geta gefið smá innsýn í það sem hefur á daga mína drifið seinustu daga (vikur/mánuði)...
Sumarið Í sumar fór ég til spánar með Heiðrúnu, Gullu og Emil. Það var svaka gaman og gistum við á Castle Beach hótelinu á costa del sol. Mig minnir að bærinn hafi heitið Toremolinos eða eitthvað þannig. Ég fór líka til Marokkó með heimsferðum frá spáni með ferju. Þannig að núna hef ég komið til Afríku! Glæný heimsálfa fyrir mig. Í Morokkó sá ég konungshöllina, fullt af rusli og endalaust af götusölum. Ég lét þessa götusala plata mig helvíti mikið og ég endaði með mest af drasli af öllum túristunum þegar frá við héldum heim. Það sem ég keypti var: 1) Arabískt teppi handvafið af arabískum hirðingjakonum, það tekur víst 1 og 1/2 ár að vefa svona teppi. 2) Töfralyf úr náttúruapóteki, smyrsl úr blómum, mintu-te og slökunarolíu (3 saman því þá fékk ég afslátt). 3) Arabahatt eins og Aladdín er með í disneyteiknimyndini. 4) Gimbi, sem er 4-strengja gítar úr tré og geitarskinni. 5) bongó trommur. 6) ofl drasl...
Ég var líka að vinna á tónleikum í Egilshöll í sumar. Foo fighters, iron maiden, queens of the stoneage og Duran duran. Síðan fór ég á Akureyri á verslunarmannahelgini, það var ágætt, hápunkturinn var eflaust Doors Tribute band á sjallanum. Það var Mega. Og auðvitað fór ég á dönsku dagana í Stykkishólmi, en þeir voru frekar slappir af minni hálfu því ég var hálf lasin og fór bara snemma að sofa.
Vinnan Ég er enn þá að vinna í Egilshöllini (temp job my ass), og er orðin svona semi-yfirmaður þar í fótboltahúsinu, sem er bara helvíti gaman verð ég að segja. Kominn með fín laun og ágætis stöðu þannig að maður spyr sig hvenær maður drattist aftur í skóla.
Pási Pási páfagaukur er stelpa, þar af leiðandi heitir han... hún, núna Pása.
Porsinn Það var Akureyringur sem vinnur fyrir kjarnafæði sem klessti aftan á mig um daginn! Stuðarinn gekk smá inn en ég var í rétti og tryggingarnar borguðu brúsann og bíllinn lítur bara vel út aftur. Ég þarf bara að bóna hann.
Íbúð Það var víst leki úr klósettinu mínu sem fór niður í kjallara og í geymslur hjá fólki á 6. hæð, þannig að í seinustu viku komu píparar og rifu í sundur baðherbergið mitt og gerðu við lekann. Núna fæ ég nýjar flísar frá tryggingunum (guð blessi tryggingar) og ég er að pæla í að kaupa mér nýtt bað og vask í leiðini til að flikka aðeins upp á þetta 70's baðherbergi.
Heiðrún Er æðislega sæt!
Þetta ætti að duga út 2005, bæjó!
Lag dagsins: Nýja lagið með Mínus og Barða sem ég veit ekki hvað heitir (it rocks!)
Kristinn Painted! @ 12:33 AM
|