|
fimmtudagur, febrúar 17, 2005
Akkúrat núna, eins og svo oft áður, er ég í vinnuni! Það hefur ekki mikið skeð í mínu blessaða lífi síðan ég skrifaði seinustu færslu í desember. Og nú smá yfirlit...
Íbúðir og flutningar Ættu vonandi að fara að gerast fljótlega, en ég er ekki enn þá búinn að fá arfinn minn en hann hefur alltaf átt að vera stólpinn fyrir öllu þessu braski, þannig að ég aðhefst ekkert fyrr en ég er kominn með peningana milli handana. Þannig að ég hef ekkert verið að skoða íbúðir undanfarið. Fasteignaverð ríkur upp þessa dagana og ég er hálf hræddur um hvernig þetta endar ef ég fer ekki fá neina peninga á næstuni.
Porsche Porsinn var samt ekki fyrr orðinn fornbíll en hann fór að klikka. Neitaði að starta sér stundum þegar kalt var í veðri. Ég læt taka startaraboxið í sundur og lét athuga hvort að kolin væru orðin eitthvað eydd en svo var ekki og þá stóð ég ráðþrota í 2 vikur þangað til að pabba datt í hug að þetta gæti verið startbotninn(Ég veit ekki heldur hvað það er), svo að það var skipt um hann og nú er porsinn sprækur á ný!
Vinnan Ég er búinn að vinna í 3 mánuði í Egilshöllini núna og er því orðinn fullráðin. Það sama er ekki hægt að segja um Malla, manninn sem vann vaktirnar á móti mér því hann var rekinn fyrir vanrækslu á sínum störfum. Ég fór líka á fund með framkvæmdastjóranum um daginn og bað um launahækkun því ég er svo duglegur, og sýndi honum töflu sem ég prentaðu út á www.vr.is þar sem ég reiknaði út meðallaun þessa starfs sem ég er í núna og komst að því að ég er dáldið undir meðal lagi. Vonandi fæ ég örlítið betra kaup, því hver þúsundkall telur. Núna á eftir er meira að segja úrslitaleikurinn í reykjavíkurmótinu, en þá spilar Valur gegn FH í æsispennandi fótbolta. Það verður spennó.
Warhammer Ég og Emil erum komnir með langþráða warhammercomebackið aftur! Eftir að hafa ekkert spilað í 2 ár erum við núna búnir að taka tvo leiki sem ég vann báða, hehehe! Fyrir þá sem ekki vita hvað warhammer er þá er það borðspil þar sem maður er með fullt af litlum tindátaköllum sem maður er búinn að mála og gera flotta á borði og svo færir maður þá til með tommustokk og reynir að drepa hina tindátana með því að kasta teningum og svona. Back in the day fór ég meira að segja á warhammermót, en þá komst ég tvisvar í 3. sæti, og fékk einu sinni viðurkenningu fyrir best málaða herinn og einu sinni viðurkenningu fyrir að vera skemmtilegasti spilarinn. Já ég veit ég er nörd.
Jæja þetta ætti að duga fyrir næstu tvo mánuði, hafið það gott og lifið heil!
Lag dagsins: Solid I.V. - Bitch
Kristinn Painted! @ 4:42 PM
|