|
fimmtudagur, október 28, 2004
Four letter word, from me came, verbally ...
Í dag vorum ég og Emil í nóatúni og það voru krakkar þar með tombólu. Ég ákvað að kaupa eitthvað drasl af þeim og rétti strák sem var þarna 100 krónur og í staðinn fékk ég McDonalds fótboltaspil og styttu af kisu sem á stóð "I love you". Ánægður með skranið og að hafa glatt krakkana gerði ég mig tilbúin til að ganga í burtu en þá fór ein af stelpunum á tombólunni að hanga utan í fötunum á mér og Emil til skiptist og heimti að við keyptum eitthvað meira. Þegar hún var búin að elta okkur í gegnum hálfan hólagarð, togandi í okkur og nauðandi út í eitt, náði Emil að múta henni til að fara með kisustyttuni sem ég var nýbúinn að versla. Síðan pössuðum okkur að nota annan útgang til að lenda ekki í þessu krakka afstyrmi aftur. Rosalega eru börn nú til dags dónaleg.
Lag dagsins: Rammstein - Moskau
Kristinn Painted! @ 6:15 AM
fimmtudagur, október 14, 2004
Heyri í þér, svo lágt, lognast út ...
Hér sit ég núna fyrir framan tölvuna, með núðlusúpu mér á hægri hönd og blogga. Blogg comebackið mitt var ekki eins glæst og ég hafði vonað, enn kannski batnar það.
Það sem er helst í fréttum er að ég er hættur í FB! Var bara kominn með skítinn langt upp á bak og sá mér ekki fært að bjarga mér úr þessu, enda búinn að vera arfalatur þessa önn! Ég á í rauninni ekki nema 13 einingar eftir en það má alltaf klára það seinna, ég er enn ungur og öll bein í heilu lagi, þannig að ég hef nógan tíma til að klára þetta.
Ég sótti um vinnu sem lagermaður í rúmfatalagernum áðan á job.is, það er alla vegana byrjun. Ætla líka að sækja um hjá ikea þar sem aron félagi minn vinnur og etv fleiri stöðum ef ég finn eitthvað sem mér líst á.
Á morgun fer ég á Prodigy tónleika, ekkert slæmt við það að athuga.
Ég hef líka verið dáldið latur við þessa teiknimyndasögu. Tíminn verður að leiða í ljós hvort að hún eigi sér einhverja framtíð, eða hvort þetta verði enn eitt af verkefnum mínum sem verður sett á bið.
Í næstu vikur fer ég svo í ökumat til að fá langþráð ökuréttindi mín aftur. Fyrir þá sem ekki vissu þá er ég búinn að vera keyra réttindalaus núna í ca. 3 mánuði. En það er slæmt mál og það verður gott að vera orðinn löglegur aftur.
Ég vill líka minna alla á að RÚSSARNIR ERU KOMNIR! Reynið að tryggja ykkur skotvopn, dósamat og inngöngu í eftir-stríðs-gengi ykkar póstnúmers. Þegar sprengjunum byrjar að rigna skulum við öll sýna rússunum að það þarf meira en margra megavatta kjarnorkusprengjur til að taka baráttuviljann úr Íslending!
Lag dagsins: U2 - Vertigo
Kristinn Painted! @ 7:20 PM
sunnudagur, október 03, 2004
HELGI ER BYRJAÐUR AÐ BLOGGA! HELGI EIRÍKSSON! JEEEEE... GO HELGI GO!
Hann er kominn með link hérna á blogginu mínu, og ég vill taka það fram að ég er FYRSTUR með þennan link ever!
Takk fyrir mig.
Kristinn Painted! @ 2:35 AM
|