|
fimmtudagur, september 30, 2004
Komnir 5 nýjir linkar!
1. Bloggið hans Hrafnkells. Hrafnkell er einstakur maður, svo mikið verður sagt. Og ég hef verið það einstaklega heppinn að fá að vinna með honum á 2 mismunandi vinnustöðum. Enn hann er farinn að blogga, og ég hvet alla til að líta á þetta hjá honum.
2. Bloggið hans Óla. Óli, stjúpbróðir Braga, hólmari og fyrrverandi FB-ingur er með blogg sem ég verð að viðurkenna að ég hef ekki lesið mikið. En ætla að gera það núna fyrst það er komið hér í linkana, því linkalistinn er í rauninni öll þau blogg sem ég les.
3. Breytti linknum á bloggið hans Hjalta. Hann er einn af stílistum Brokeyarsíðunar sem er heimasíða Brokeyarkörfuboltaliðsins, sem hann spilar með. Um helgina fóru þeir víst á mót, og töpuðu ekki nema 3 leikjum, af 4.
4. Beytti nafninu á "Dýrin elska mig" í "Ævintýri Kiddó!", en þar munu nú á hverjum miðvikudegi birtast ný Ævintýri Kiddó, teiknimyndasaga.
5. Og svo er ég búinn að linka inn á landið mitt í nationstates leiknum, þar sem maður getur gert sitt eigið land, og síðan tekur maður stjórnmálalegar ákvarðanir fyrir það og landið breytist eftir ákvörðunum þínum.
Breytingar til hins betra ...
Kristinn Painted! @ 4:25 PM
mánudagur, september 27, 2004
Hvað er að, mér í dag, ég er sá, sem áður ...
Í dag var þvottadagur. Ég hata þvottadaga því þá þarf ég að þvo fötin mín. Segir sig nokkurn vegin sjálft, en ekkert verra að útskýra það. Þessi þvottadagur var óvenju erfiður því ég hef ekkert þvegið af mér í 2 vikur, og því skiljanlega stór hrúga sem þurfti að fara í vélarnar niðri í kjallara. Hrúgan var í rauninni það stór að fötin komust ekki öll fyrir á snúrunum þannig að ég þurfti að hengja handklæðin á hattastand sem er inn í herbergi. Áhugavert það já.
Einhver linkaði teiknimyndasöguna mína á batman.is og hefur hún fengið eitthvað um 3-4000 heimsóknir síðan sem er nokkuð gott barasta. ætli maður reyni ekki að skella saman nýrri sögu fyrir næsta miðvikudag svo ég standi við þetta vikulega dæmi.
Staðan í Skeggkosningunum er 8 - 3 fyrir skegginu. Hárið fylgir ekki með by the way, ég vill losna við það sama hvað skoðanakannanir segja!
Annars var helgin góð. Fór á skemmtikvöld með aðlinum í FB á Sólon. Mættu í rauninni bara eitthvað 15 manns af þeim 60-70 sem áttu að mæta en þetta var samt alveg ágætt. Færði mig síðan á aðra staði, hitti eitthvað af félögunum og skemmti mér konunglega.
Um daginn keypti ég mér dartboard, eða píluspjald. Var rosalega stoltur af þessu tæki sem ég keypti í tiger á 400kr, enda alltaf langað í svona. Enn því miður varð draslið fyrir vatnsskemmdum og datt í sundur og eyðilagðist. Enn núna veit ég alla vegana að píluspjöld eru gerð úr pappa, en ekki við eins og ég hef alltaf haldið.
Í dag eru 87 dagar í afmælið mitt. Vú!
Og meðan ég man, ég er að selja SHADOWINN. Þannig ef að einhver vill ameríska gæðakerru, sem er með nokkrar smávægilegar bilanir. Þá má hann hafa samband við mig og borga mér 50.000kr fyrir hann, eins og hann er!
Takk fyrir.
Lag dagsins: Mínus - Boys of winter
Kristinn Painted! @ 8:06 PM
fimmtudagur, september 23, 2004
Someone else, undermined, oh no ...
Staðan í hárklippiskeggsatkvæðagreiðslunni er sem fylgir: 3 með klippingu, 4 á móti klippingu. Ég ætla ekki enn að klippa á atkvæðagreiðsluna heldur leyfa henni að ganga út þennan mánuð, þannig að ef fleiri vilja rýja mig þá gefst þeim nokkrir dagar til þess.
Auk þess hef ég nú rétt í þessu hafið að teikna teiknimyndasögu, um yours truly. Enn sem komið er er bara 1 saga til, en ef allt gengur upp þá ætti að koma ný saga vikulega. Farið endilega á gömlu dýrasíðuna mína og lítið á prótótýpuna.
Á morgun er spáð góðu veðri og ætti því að vera tilvalið að fara að kaupa sápu og svamp og þrífa svo porsinn hátt og lágt. Ef einhver hugguleg stelpa vill gera það fyrir mig á bikini, þá er það vel þegið.
Jæja betra að fara að halla sér, skóli eftir nokkrar klukkustundir. Góða nótt!
Lag dagsins: The Beatles - Good day sunshine
Kristinn Painted! @ 3:22 AM
föstudagur, september 17, 2004
Hann leit svo út og líkaði vel hve auðvelt það var, svar ...
Jæja... Þá er maður kominn aftur í ruglið. Ég afsaka þetta bloggleysi seinustu 2 mánuði, en vegna fráfalls móður minnar, hennar Kristborgar Kristinsdóttur fyrir rúmum 2 mánuðum hef ég ekki verið í miklu tjáningarstuði ef svo má að orði komast. Halldór Laxness skrifaði í Brekkukotsannál árið 1957: „Vitur maður hefur sagt að næst því að missa móður sína sé fátt hollara úngum börnum en missa föður sinn“. Ég vill nú ekki segja að ég sé ungt barn, en ég vill heldur ekki segja að þessi maður hafi verið vitur. þegar maður er nauðugur skilinn frá þeirri manneskju sem maður hefur eytt hvað mestum tíma lífs síns með er ekkert gott sem af því getur leitt. En, já, ég er nú samt að jafna mig, held ég, svona smátt og smátt...
En mikið vatn hefur runnið til sjávar seinustu 2 mánuði í mínu spennandi lífi. Það sem kemur mér helst til hugar er að ég er kominn á nýjan bíl! Já, og ekkert slor heldur. Porsche 924 heitir það tæki og er sko ekkert þríhjól skal ég segja ykkur, en samt sem áður enginn Shadow heldur...
Ég byrjaði líka með stelpu stuttu eftir versló, en hún sagði mér upp stuttu eftir að ég kom í bæinn, en svona er lífið, nóg af fiskum í sjónum og ég verð bara að fara á veiðar á ný, bara verst hvað agnið er lélegt...
En hvað er að ske núna? Spyr væntanlega einhver. Tja, ég er með hálsbólgu og niðurgang. Ég er kominn aftur í FB að reyna að klára þetta stúdents dæmi, með misjöfnum árangri nú þegar. Kem betur að því seinna, helvítis skóli. Og akkúrat núna sit ég fyrir framan tölvuna að blogga í fyrsta sinn í langan tíma, með Ensíma í græjunum eins og ég geri alltaf þegar ég blogga. Fyrir þá sem ekki vita þá eru allar fyrirsagnir bloggfærsla minna úr textum úr lögum með Ensíma, smá fróðleiksmoli sko...
Enn eitt sem skeði í fjarveru minni er að ég lét verða af skeggsöfnuninni og er kominn með hökutopp og barta núna, svo ekki sé minnst á helvíti sítt hár. Já ég lít út eins og steinaldarmaður, en ég er mikið búinn að vera að pæla í því að raka þetta allt af, en sumir segja að þetta eigi að vera svona. Hví þá ekki að opna þetta blogg með skemmtilegri atkvæðagreiðslu um hvort að skeggið eigi að vera, eða fara! dundundun!
Hér er mynd af skegginu!
Lag dagsins: Ensími - Naglabassi
Kristinn Painted! @ 2:55 PM
|