|
sunnudagur, júlí 11, 2004
Rifinn úr draumalandinu og dreginn í annan heim þar sem lögmál amerískra bíómynda gilda ekki.
Sitjandi, einn eftir, óviss og kvíðinn, með litla sem enga vitneskju um stöðu mála.
Hvað ef?
Hvað ef?
Hvað ef?
Enn þá sitjandi einn, en nú í baði, með bjór, og Chuck Berry spilar fyrir tónlist.
Bjartsýni, Svartsýni, í lokin mun það engu breyta.
Kristinn Painted! @ 5:44 PM
laugardagur, júlí 03, 2004
I revive, I've killed myself ...
Seinustu daga hef ég verið að hugsa mikið um bílakaup. Fyrst ætlaði ég að kaupa mér Lincoln Town Car '90 sem var helvíti flottur dreki með 8 cyl vél, leðri og rafmagni í öllu. Massabíll sem ég skoðaði á bilasolur.is, en strax daginn eftir að ég var að skoða hann þá var hann seldur. Ég var ekki ánægður með það svo ég ákvað að leita að öðrum bíl. Ég pældi smá í Bronco '79 sem er fornbíll þannig að tryggingar hefðu kostað skít og kanil, en á móti kemur að bensínið yrði svakalega dýrt. Ég hætti við hann og fann annan bíl á netinu sem var hvorki meira né minna enn draumabíllinn minn ef eitthvað væri. Dodge Mirada '80 hét hann, helvíti flottur sportari sem eins og Lincolninn var með V8 vél, leðri, rafmagni í öllu og að viðbættu krómfelgur, víðu pústi og öllu sem maður sem elskar ameríska bíla gæti dreymt um. En líkt og Lincolninn var hann seldur strax daginn eftir!!! Ég var farinn að sjá fram á það að örlögin væru að grípa inn í taumana og segja mér með þessum skyndibílasöludæmi á bílum sem ég var að hugsa um, að ég ætti ekki að skilja við minn trygga gamla góða Dodge Shadow '90. Og viti menn, örlögin höfðu rétt fyrir sér! Á kassi.is fann ég annan Dodge Shadow ('89) á 30.000kr sem ég er nú að fara að kaupa! Úr honum get ég kroppað alla þá varahluti sem ég þarf til að halda lengur í shadowinn og gert gott betur jafnvel! Í honum eru nefnilega rafmagns- sæti, rúður og speglar sem ég gæti með góðum tíma flutt yfir í minn. Góðir demparar sem ég skipti út fyrir mína ónýtu dempara, og sæmilegar bremsur sem ég skipti út fyrir mínar glötuðu bremsur. Allt frá því að ég eignaðist þennan bíl hef ég einmitt verið að leita að hræi til að rífa parta úr, og núna þegar ég er að hugsa um að skipta um bíl fæ ég eitt upp í hendurnar. Merkilegt finnst mér, eiginlega of gott til að vera tilviljun, en er það þó. Já, bílasorgir mínar eru úr sögunni, martröðin að þurfa að segja skilið við minn fyrsta og eina bíl sem ég elska meira en X-files, mun núna að öllum líkindum vera hjá mér nokkuð lengur. Að hugsa sér að bíll sem kostaði 25.000kr til að byrja með og átti aðeins að endast mér eitt sumar, hafi enst svona vel og lengi. Núna eru kominn rúmlega 2 ár, og allt lítur út fyrir að þriðja árið verði jafnvel betra en hin tvö. Já svona getur lífið verið sniðugt...
Lag dagsins: Stone Temple Pilots - Sour Girl
Kristinn Painted! @ 1:01 PM
|