|
miðvikudagur, júní 30, 2004
I'll join your welfare, if you can mend my emotion ...
ARG! Færeysku dagarnir voru eiginlega ekkert spes skal ég segja ykkur krakkar mínir. Ég skrapp aðeins í Grundarfjörð um nóttina á föstudeginum og gisti þar síðan, en þegar ég kom aftur daginn eftir var búið að stela af mér 2 kippum og pelanum mínum. Sígaretturnar voru samt enn inn í tjaldi ásamt 4 bjórum. En eftir að ég var búinn að drekka einn bjór í nýja ecolininum hans Jóns og ætlaði að bregða mér út að ná í annan bjór þá voru sígaretturnar (3 pakkar) og bjórinn (3 bjórar) horfinn. Og ég sem var svona 10 metrum frá tjaldinu þegar þetta skeði! fingralangir Ólafsvíkingar. Þá fór ég bara á local pöbbinn með Aron og létti aðeins á veskinu mínu með nokkrum færeyingum sem voru svona helmingi eldri og ríflega það en ég. Síðan seinna um kvöldið var ég jafnvel kominn með stúlku inn í tjaldið hans emils því mitt fauk niður, en var sparkað út úr tjaldinu af eigandanum áður en blés til tíðinda. Og þegar ég náði loksins að reisa mitt tjald á ný, þá þurfti stúlkan að fara ferða sinna. Díseskræst. Síðan eru líka allir geisladiskarnir mínir týndir! Og tjaldið sem ég keypti í rúmfatalagernum á 4000kr er bilað! Stóllinn brotnaði líka! Ég er allur marinn! Osfrv!
En fyrir þessa djöfulegu daga þá fór ég á tónleika með hljómsveitinni Deep Purple! Það voru fínustu tónleikar og er ég ánægður með að hafa getað séð þá félaga áður en þeir geispa goluni.
Ég er með smá tilraunastarfsemi í gangi, en hún felst í því að safna hökutopp og börtum svo ég geti lifað mig betur inn í 7-8 áratuginn, sem voru örugglega bestu áratugir þessarar aldar!
Á morgun kl 09:30 mæti ég inn í kaffisal í vinnuni minni og hefst þar mikið showdown í ólsen ólsen keppni sem ég, Addi, Birkir og Svenni erum í. Reglurnar í spilinu eru á þessa leið: Venjulegar ólsen ólsen reglur nema það að aðeins einn vinnur, hinir fá ekki að klára sín spil sem þeir eru með eftir á hendi heldur telja "refsistig". ás er 1 stig, tvistur 2 stig osfrv, mannspil eru 15 stig, og áttur eru 20 stig! Einnig ef þú endar á sléttu hundraði í refsistigum detturu niður um 50 stig. T.d. ég er með 280 stig, fæ síðan 20+ stig = 300 stig, þá falla 300 stigin niður í 250. Munið að þetta eru refsistig! Á morgun er sem sagt seinasti dagurinn í spilinu, ég hef haldið forystu út allan mánuðinn þangað til í dag þegar Birkir komst 10 stigum yfir mig í seinasta spili kaffitímans. Verðlaun eru í boði, sá sem endar með fæst refsistig fær kippu frá öllum hinum 3, sem sagt 3 kippur! ÉG ætla mér ekki að tapa þessu eftir að vera í forystu í 29 fkn daga! Það er bara ekki möguleiki! Ég mun koma út úr þessu sem sigurvegari! Ekki tapari! No siree bob! jamm...
Alla vegana... Náði að redda mér miða á Metallica, á A svæði um helgina, eini ljósi punktur þessa helvísku færeysku daga... þannig að á sunnudag verð ég moshandi við harða tónlist metallicu. Very nice.
Og til að bæta aðeins við þetta þá er ég að öllum líkindum að fara að kaupa nýjan (gamlan) bíl á næstunni. Shadowinn er orðinn dáldið þreyttur kallinn og þarfnast hvíldar. Ég held ég viti hvaða bíl ég skelli mér á en slæ engu föstu. Smá hint: Hann er einnig amerískur!
Góða nótt!
Kristinn Painted! @ 1:02 AM
mánudagur, júní 21, 2004
Andartak, ég var að vona ...
Vá hvað er ótrúlega gott veður! Var að koma úr vinnuni rétt í þessu þar sem ég var að mála bát. Gaman af því. Ég vann líka alla helgina, m.a þunnur á sunnudeginum, það var svona living hell. En talandi um vinnuna þá finnst mér eitt merkilegt sem tengist henni einmitt. Þegar ég er nýbúinn að mála flöt á bátnum (Með Interthane 990 epoxy þykkmálningu) þá koma heilu herdeildirnar af flugum og setjast á flötinn og fremja þar með fjöldasjálfsmorð! Aumingja kvikindin sitja bara föst í málninguni og skilja hvorki upp né niður hví þær geta ekki flogið lengur. Ég veit nú svosem að þessi dýr hafa einfalda sem enga hugsun en er ekki bara common sense að ef þú sérð 100 vini þína fasta í kviksyndi þá ákveður þú ekki að fara að heimsækja þá þangað?!? Eða eru flugur bara ekki með common sense heldur. Örugglega ekki.
Á næsta fimmtudag fer ég á tónleika með hljómsveitinni Deep Purple sem hefur löngum verið í miklum metum hjá mér. Síðan strax daginn eftir keyri ég aftur í Stykkishólm og þaðan strax aftur út í Ólafsvík þar sem Færeyskir dagar verða yfir helgina. Ætli ég bloggi ekki eitthvað um það sem gerist þar eins og ég gerði um grundarfjarðarferðina.
Lifið heil!
Lag dagsins: Yeah Yeah Yeahs - Y Control
Kristinn Painted! @ 7:05 PM
sunnudagur, júní 13, 2004
Haga mér, á allt svo vel ...
Nú sit ég heima og sötra bjór á meðan félagar mínir eru hér og þar að skemmta sér. En ég? Nei nei nei, ég er á edrú helgi. Bjórarnir eru bara til að halda í mér vitinu sko. Af hverju edrú helgi? Því foreldrarnir halda að ég sé að verða alki! Bull og vitleysa segi ég, en ég verð víst að sýna fram á það að ég geti verið edrú eina helgi því ég hef fengið óbeinar hótanir um að vera sparkað út ef ekki... Oh well... út í annað.
Nú er ekki langt í það maður verði orðinn stúdent. En hvað er það? Ég er útskrifaður úr framhaldskóla en hef engin önnur réttindi þannig séð. Ég á ekki rétt á hærri launum neins staðar fyrir það eitt að vera stúdent, en get þó fengið vinnu í banka. En nú er fólk oft að spyrja mig hvað langar þig að verða (þegar þú verður stór) ? Sannleikurinn er sá að ég hef ekki grænan grun um hvað verður úr mér. En þegar ég var lítill var ég samt nokkurn megin með á hreinu hvað ég vildi verða. Og síðan hafa auðvitað verið svona "Draumastörf" sem mig hefur langað í. En það sem hér fylgir er svona listi á störfum sem mig hefur langað til að leggja stund á þegar ég verð stór. Þau er mismunandi raunhæf og mismunandi gefandi, en samt sem áður störf sem ég gæti hugsað mér að starfa við í framtíðinni og haft gaman af.
1. Efnafræðingur
Þegar ég var lítill þá horfði ég alltaf á efnafræðihornið í stundini okkar þar sem einhver nördalegur gaur gerði einfaldar efnafræðitilraunir fyrir letidýrið Garp. Tilraunirnar voru mjög einfaldar, t.d. að frysta garðslöngu í 100°- og brjóta hana síðan með hamri. Eða hreinsa snýtiklúta með eiturefnum í flösku með svona hauskúpumerki framan á. Ég gat vel hugsað mér að brjóta slöngur og hreinsa vasaklúta með spennandi hættulegum efnum þannig að mig langaði í nokkurn tíma að verða efnafræðingur eins og nördið í stundini okkar. Í dag veit ég að þeir vinna ekki við svona hluti, en langar samt ennþá smá að verða vísindamaður.
2. Rafvirki
Pabbi minn er náttúrulega rafvirki þannig að mig langaði lengi að feta í fótspor hans. Sá hann nefnilega oft gera spennandi hluti eins og að klifra upp risa sendimöstur og síðan var hann að vinna fyrir bandaríska herinn á bolafjalli að setja upp radarstöð back in the cold war days. En núna veit ég það að þræða víra og gera við ískápa er meira svona daglegt brauð hjá þeim þannig að áhuginn hefur minnkað örlítið í gegnum árin.
3. Vídeoleigurekandi
Að reka vídeoleigu hefur verið smá gæludraumur hjá mér lengi. Það að vera sinn eiginn herra og geta horft á allar nýju spólurnar ókeypis eru óneitanlega stórir plúsar. Ég myndi væntanlega kalla leiguna mína "Kiddbönd" eða "Kiddóleiga" (Ég sprakk úr hlátri þegar ég skrifaði þetta, hlítur að vera edrúið að kikka inn, hehehe kiddóleiga).
4. Ævintýramaður
Eftir að hafa horft á of margar James Bond og Indiana Jones myndir í gegnum ævina væri ævintýramanns starfið mjög skemmtilegur kostur. Ferðast um heiminn á tvívængjunni minni, finna óuppgötvaðar menningar, berjast við nasista, bjarga heiminum/gelluni/eigin skinni ... Já það væri gaman, en frekar óraunhæft. Held ég hafi minnst á þetta áður á þessu bloggi meira að segja. (Óska eftir sidekick)
5. Iðjuleysingi
Hvernig væri það að vinna svona 70 milljónir í vikingalottóinu? Þá gæti ég sest í helga stein núna. Setið heima og spilað counter strike, drukkið bjór, horft á sjónvarpið, hringt í rauða torgið, talið sprungur í loftinu og eitthvað meira sem hinir týpísku iðjuleysingjar gera. Ekki mikil framtíð í því kannski, en ég þyrfti alla vegana ekki að gera neitt.
6. Líffræðingur
Dýr og allt sem er lifandi hefur lengi heillað mig. Hvernig athafna aðrar lífverur sig? Hvað borða þær? Hvar búa þær? Hvernig hugsa þær? hvernig þróuðust þær? Og hvers vegna allt þetta? Ef ég drattast nokkurn tíma í háskóla þá mun líffræði vera ofarlega á blaði hjá mér. (Af hverju fór ég á málabraut!?)
7. Tölvuleikjahönnuður
Allt frá því að ég fékk 260 leikja tölvuna mína í jólagjöf back in '91 hef ég lítið annað gert en að spila tölvuleiki í mínum frístundum. Ég hef ótal margar hugmyndir að tölvuleikjum sem myndu slá í gegn að ég held og því væri þessi starfsframi góður kostur. Ef ég kynni bara eitthvað í forritun og svona. (Af hverju fór ég á málabraut!?)
8. Rithöfundur
Mig hefur einnig langað að verða rithöfundur lengi. Back in the day var ég mikill lestrarhestur og datt oft í hug mínar eigin sögur sem mig langaði að festa á blað. Ég reyndi það meira að segja nokkrum sinnum en eftir nokkrar blaðsíður fannst mér ég alltaf vera að nota sömu orðin aftur og aftur og hætti við áður en ég byrjaði eiginlega. En ef ég kynni að skrifa, myndi þetta vera fínasta starf býst ég við.
9. Rokkstjarna
Þetta væri skemmtilegt starf. En ég kann ekki að lesa nótur, syngja né spila á hljóðfæri þannig að... já...
10. Leikari
Leiklistin er göfug og skemmtileg, en myndi etv ekki henta mér alveg þar sem ég er með krónískan sviðskrekk. En seinustu 3 ár í grunnskóla var ég helvíti góður leikstjóri á árshátíðum, því ég skrifaði öll leikritin og valdi í hlutverk og setti síðan sjálfan mig í eitthvað aukahlutverk þar sem ég þurfti ekki að segja of mikið. Og gaman er að segja frá því að í 9. bekk var ég ritskoðaður og leikritið tekið af dagskrá því það var of gróft í hinu og þessu, en var síðan leikið árið eftir í 10. bekk.
Spurning dagsins! Ef eitthvað, hvað af þessu mynduð þið sem þekkið mig segja að henti mér best? Og ef ekki eitthvað af þessu, hvað þá? Takk fyrir og góða nótt.
Lag dagsins: Nine Inch Nails - Perfect drug
Kristinn Painted! @ 12:54 AM
þriðjudagur, júní 08, 2004
Hve heppinn ég er, að eiga vin, sem að fer heim ...
Þetta blogg er tileinkað Oddi, mínum eina sanna commentara!
Í dag dó ég næstum því. En það var sjálfum mér að kenna. Ég var að vinna eins og ég geri alla þriðjudaga, en ég var að mála rassgatið á bát úr körfubíl. Þegar ég er kominn upp í 8-9 metra hæð og geri mig tilbúinn til að byrja að mála þá tek ég eftir því að bíllinn er alveg að fara á hliðina. Og af hverju? Því ég gleymdi að setja niður stoðirnar sem styðja við draslið. Þar sem að ég var nógu snöggur að rétta af bómuna og setja hana niður aftur þá lifði ég af þessa eldraun, en litlu mátti muna að ég sæti ekki hér í dag fyrir framan tölvuna.
Enn nóg um near death experiences. Um helgina brá ég mér á bæ og skrapp í nágrannabæ Stykkishólms sem kallast Grundarfjörður til að upplifa sjómannadaginn Grundarfjarðarstyle. Ég fór ásamt Jóni, Hreiðari og Helga, enn þeim fannst ég vera heppilegur náungi til að bjóða með sér klukkan 11 á föstudagskvöldi vitandi að ég segi aldrei nei við góðu ævintýri. Við(Þeir) leigðu tjaldvagn og haldið var til grundarfjarðar þar sem með nokkrum hnekkjum náðum við að setja upp vagninn. Síðan var hellt í sig slatta af víni og meiri bjór og haldið á local skemmtistaðinn sem kallast kaffi 59. Ég borgaði Jón inn á staðinn og í staðinn (vó 2 staðinn í 2 mismunandi merkingum í einni setningu) bauð Jón mér upp á fullt af áfengi sem ég og drakk og síðan var dansað. Eftir dansinn var haldið heim í tjald þar sem ég lagði mig eftir smá aukaáfengisdrykku.
Nú rétt í þessu finn ég lykt af steiktum fisk...
En áfram með söguna... Um miðja nóttina vaknaði ég við það að Jón var að stela af mér svefnpokanum mínum.
Kiddó: Jón! láttu mig vera ég er sofandi.
Jón: Láttu ekki svona við getum deilt pokanum.(renndi niður rennilásnum á pokanum)
Kiddó: Jón! You sonovabidds! Hættu þessu helvíti!(of sofandi til að veita viðnám)
Jón: Þegiðu þarna mér er fokking kallt!(rykkir í pokann)
Kiddó: Jæja góði!(ýtir harkalega í Jón svo hann veltur yfir í beddann til Helga og Hreiðars, rennir upp pokanum og kúrir aftur við hljóðinn í Jón að stela sænginni hans Helga)
Á laugardaginn vaknaði ég fyrstur af öllum, nokkuð þunnur en aðalega mál að pissa. Eftir pissið voru allir hinir vaknaðir, væntanlega við það hvernig ég valt út úr tjaldvagninum. Eftir smá kvart og kvein um það hvað allir væru orðnir svangir var ákveðið að ég myndi fara í búðarleiðangur, en Jón myndi borga brúsann meðan Helgi og Hreiðar helltu í sig afrétturum.
Núna er ég að borða steiktan fisk með kartöflum...
En áfram með söguna... Ég gekk niður í bæinn og rak þar augun í hús niður við höfn sem á stóð "verlsun". Ég ályktaði það að þarna væri verslun svo ég fór þangað en mér til mikillar furðu var ekki hurðarhúnn á hurðinni. Mér gramdist það en labbaði á bensínstöðina þar sem ég keypti fullt af mat fyrir 5000kallinn hans Jóns. Meðan ég var að versla kom upp að mér ein af bensínstöðvarkonunum og spurði hvort að ég væri Kiddó. Ég játti og fékk síma í hendurnar. Það var Hreiðar að minna mig á að kaupa batterí í græjurnar. En það furðulega er að það var það eina sem ég gleymdi þrátt fyrir hringinguna. Þegar ég kom aftur upp á stæði fékk ég mér samlokur með víkingasalati(hangikjötssalat) og var síðan sendur í aðra batteríkaupaferð eftir nokkra bjóra. Þeir tóku það skýrt fram að ég ætti að kaupa CC batterí, þegar ég kom aftur á bensínstöðina voru bara til C batterí og önnur stærð sem var kölluð D. Ég ákvað það að C væri rétt, keypti 14 þannig (allan lagerinn) og fór til baka. En þetta var ekki rétt stærð. Ég harðneitaði að fara aftur einn að kaupa batterí því ég myndi bara klúðra því þannig að Helgi kom með mér. Ég sá hann ganga í áttina að versluninni án hurðarhúnsins og ákvað að láta hann falla fyrir þessu líka, en viti menn, Helgi fann aðra hurð hinum megin á húsinu(urrrr!). EN þar voru engin batterí þannig að aftur var farið í bensínstöðina. Þar keyptum við D batterí og fórum til baka.
Nú er komið nóg um batterí en má til gamans geta að önnur ferð var farinn eftir batteríum, ég bara nenni ekki að tala um þetta meira.
Og nú restin af laugardeginum og sunnudagurinn í stuttu lagi:
Drukkið. Farið á ball með Á móti sól. Helgi stakk af í stykkishólm. Ég fór einn hálfdauður upp á tjaldsvæði og sofnaði. Á sunnudaginn bla bla bla bla bla bla og græjunum með batteríunum og símanum hans Jóns með símkortinu hans hreiðars var stolið úr tjaldvagninum meðan við fórum að borða pítsu kl 7 að degi til!!!!.
ENDIR
Lag dagsins: Nirvana - Heartshaped Box
Kristinn Painted! @ 6:38 PM
föstudagur, júní 04, 2004

Kristinn Painted! @ 8:26 PM
|