laugardagur, maí 29, 2004

rubik
You're Rubik's Cube!! You may think you're
popular, but you're actually extremely
annoying. Seriously.


What childhood toy from the 80s are you?
brought to you by Quizilla

Kristinn Painted! @ 9:35 PM


þriðjudagur, maí 25, 2004

Til og frá, ennþá meira ...

Jæja hér kemur saga ...

Eftir vinnu seinasta föstudag var ég nýbúinn að redda mér í ríkið með Valla félaga mínum þegar Jón, annar félagi minn hringdi í mig og spurði hvort að ég og Valli værum ekki til í að líta út í Purkey. Purkey er semsagt eyja á breiðarfirði sem pabbi hans Jóns á, og er 3 stærsta eyjan í firðinum. Takmarkið með því að fara út í þessa eyju var að ná í 1 stk buxur sem Jón hafði gleymt þar í seinustu ferð og planið var að vera í max 2 tíma, fá sér nokkra bjóra, grípa buxurnar og halda heim á leið. Við fórum á bátnum Gul sem er opinn bátur með utanborðsmótor. Þegar við vorum komnir smá á leið var veðrið farið að verða skuggalegt, öldunum jós yfir okkur og ég og Valli vorum gegnblautir, enda ekki í flotgalla eins og Jón og Guðjón sem kom líka með okkur. Síðan kom Beta líka sem er labradorinn hans Guðjóns. Ég og Valli vorum orðnir kaldir, blautir, pirraðir og dáldið hræddir enda var þetta veður ekkert grín fyrir svona opinn árabát. En við náðum út í eyjuna heilir á höldnu eftir 50mín ferð sem tekur venjulega kortér. En jæja það leit ekkert út fyrir það að við værum að fara til baka þannig að við fengum okkur bjóra og reyndum að gera sem best úr þessu. Þegar bjórinn var þrotinn reyndum við að hringja í land í örvæntingu til að redda bát til að (A) Sækja okkur, eða, (B) Koma með meiri bjór. Enginn varð við beiðni okkar og því fékk Jón þá snilldarhugmynd(Kaldhæðni) að brjótast inn í sumarbústað sem er þarna á eynni því þar eru víst alltaf vínbyrgðir. Ég er náttúrulega svo heiðarlegur að ég afskrifaði mig alveg af þessu, en var samt til í að þiggja bjórinn ef allt færi vel. Svo fór ekki. Valli og Guðjón fóru út í bústaðinn meðan ég og Jón vorum eftir og spiluðum póker upp á tannstöngla. Valli krafðist þess líka að fá að fara á sexhjólinu hans pabba hans Jóns til að prufa það, en pabbinn var búinn að segja Jóni margoft að láta hjólið alveg vera. En Valli fór samt á því. Eftir klukkutíma pókerspilerí fórum ég og Jón að undrast um Valla og Gaua þannig að Jón fór að leita að þeim. Ég var einn eftir því mér var kalt og vildi ekki gerast innbrotsþjófur. Meðan ég var einn þarna í þessu húsi sem er svona 150 ára gamalt fór ég að rifja upp marga draugasöguna og myrkrið úti og marrið í húsinu hjálpaði ekki upp á myrkfælni mína. Síðan var Jón líka búinn að segja mér að Afi hans hafði oft setið niðri við eldhúsborðið(þar sem ég sat) og spjallað lengi yfir kaffibolla við ósýnilegt fólk sem aldrei drakk þó kaffið sitt. Ég ákvað það að Afinn hefði örugglega verið elliær, sleppti því að hugsa um móra og fór að lesa lifandi vísindi, því hvað er betra en vísindi til að sporna við draugahugsunum? Ég komst meira að segja að því að véfréttin í Grikklandi var víst alltaf í gasvímu sem kom upp um sprungu í heilögu herbergi, merkilegt nokk það. Þegar ég var búinn að vera einn í klukkutíma og blaðið var á enda og ég kominn yfir í andrés önd þá skall hurðin upp og Gaui og tíkin Beta óðu inn með 4 bjóra og 1/4 smirnoff flösku. Ég var ekki lengi að fá mér einn bjór af ránsfengnum og spurði Gaua hvað í andskotanum þeir væru að gera þarna úti. Þá hafði Valli slitið keðjuna á oh so precious sexhjólinu hans pabba hans Jóns og þeir tveir voru úti í myrkrinu að reyna að laga það með restina af ránsfengnum og í panickasti. En þá fór maður að vera svangur enda var komið miðnætti og ég hafði ekkert étið síðan í hádeginu þannig að ég fann niðursuðudósir með dönskum fiskibollum, bakaðar baunir og Ora niðursuðupylsur í hrísgrjónaeitthvað. Ég skellti bollunum á pönnu, pulsudósini á helluna yfir olíuofninum (enda kom skemmtileg pulsulykt af peysuni minni sem var að þorna yfir ofninum daginn eftir) og bakaðar baunir í pott á sömu hellu. Þegar ég og Gaui vorum orðnir vel saddir og skellihlæjandi af óförum vina okkar komu þeir einmitt inn með engan ránsfeng. Sumarbústaðafólkið hafði snúið við, og kom víst einhver kall að þeim með kylfu þar sem þeir voru að gera við sexhjólið og hótaði þeim lífláti. Þeir skiluðu öllu og lofuðu að skila afgangnum sem var þegar kominn til okkar í gamla hússkriflið. Jón á bömmer því pabbi hans myndi tjúllast. Valli á bömmer því hann skilaði víninu. Gaui saddur klappandi tíkini. Ég í góðum fíling því ég gat alveg skrifað mig af þessu(fyrir utan þennan eina bjór þarna). En einhvern vegin var það ákveðið að ég og Gaui myndum ferðast út í bústað að skila flöskuni og þeim 2 bjórum sem voru eftir. þannig að við héldum út í storminn og byrjuðum á því að labba í vitlausa átt(Gaui kallinn eitthvað áttavilltur) en enduðum að lokum eftir langa reisu hjá bústaðnum(einum bjór færri en þegar við lögðum af stað). Gaui sem var búinn að fara yfir með mér 100 sinnum hvernig hann ætlaði að redda þessu fólki fór alveg í köku þegar við komum og ég endaði á því að tala fyrir leiðangrinum og baðst afsökunar fyrir vini mína sem voru með á algerum bömmer yfir þessu og lofaði þeim að redda þeim 2 kippum í skaðabætur fyrir þetta leiðindamál. Síðan var tekist í hendur, ránsfeng skilað og haldið til baka í kofann í storminum. Þegar þangað var komið var Valli dauður á stól inn í eldhúsi og Jón að horfa á sannsögulega mynd í (nánast)svarthvítu sjónvarpi um mann sem ferðast yfir bandaríkin á sláttuvél til að sættast við bróður sinn. Gaui gerði kakó fyrir okkur og fór síðan að sofa. Síðan sofnaði Jón og ég einn aftur með draugapælingum mínum. Þannig að ég vakti Valla með miklum erfiðismunum og saman horfðum við á alþingi ræða um fjölmiðlafrumvarpið fram á morgun þangað til að ég fór upp á svefnloft og lagði mig. Vaknaði síðan 4 tímum seinna því Gaui rak okkur á fætur. Hann var að fara að halda bekkjarmót klukkan 1 og þurfti að fara að drífa sig. Veðrið var ekkert skárra þannig að við hringdum í pabba hans Jóns og báðum hann að ná í okkur. Gaui var að farast úr stressi og taldi sekúndurnar fram að bekkjarmótinu, sem já, hann var að fara að halda. Á meðan spiluðum ég, Valli og Jón meiri tannstönglapóker og borðuðum pizzu sem hafði ratað heim með Gaua í ránsfengnum. Pabbi Jóns kom ekki fyrr en klukkan 3 en þá þurftum við að ýta Gul sem var búinn að fjara í fjöruni út í sjó til að komast að bátnum hans. Hann tók síðan Valla og Jón í bústaðinn með þessar 2 kippur sem þeim hafði verið lofað. Þar sem að ég vildi ekkert með þetta fólk hafa ákvað ég ásamt Gaua og Betu að bíða í bátnum með þeir fóru á Gul í bústaðinn. Ég hefði ekki ákveðið að gera það hefði ég vitað að þeir yrðu 2 tíma því pabbi Jóns festist á einhverju fylleríi með bústaðapakkinu. Sem betur fer hafði Gaui náð að nappa 2 bjórum úr þessum kippum sem voru sendar sem afsökunarbeiðni og þeir styttu okkur stundina um 20 mínútur eða svo. Á meðan í landi sá ég Valla og Jón skrifa eitthvað í fjöruna sem snéri að okkur. Fyrst kom K, síðan I, síðan D(ok komið Kid, hvað ætli verði úr þessu?). Þar næst kom annað D, og síðan risa stórt Ó sem var nærri lengra en allir hinir stafirnir til samans(sem sagt nafnið mitt komið þarna í fjöruna). Þar á eftir kom E, síðan R(Kiddó Er...). Síðan kom G, síðan A(Kiddó er Gaui? hugsaði ég þá. En svo endaði þetta með Y. Ég steytti hnefann í átt að ströndini og reyndi að öskra eitthvað á móti þeim en var of langt í burtu. Þegar þeir sneru aftur í bátinn byrjaði brjálæðisleg sjóferð í öldugangi andskotans, enginn varð sjóveikur sem betur fer, en pabbi hans Jóns var pissfullur og þurfti stundum að láta styðja við sig meðan hann pissaði útbyrðis meðan öldurnar slógu hann. Síðan míglék loftið, beint á buxurnar hans Valla, það var fyndið. Að lokum var ég kominn aftur í gamla góða Stykkishólminn og var ekki lengi að skutlast heim og éta vínarbrauð. Gaui kallinn missti af sínu eigin bekkjarpartý því miður en hann var ekki kominn heim fyrr en hálf sjö, 2 klst eftir að fólkið fór. Aumingja hann.

Ég er að fara á Pixies á morgun í kaplarkrika kl 7, jibbí!

Kristinn Painted! @ 12:19 AM


fimmtudagur, maí 20, 2004

Ef ég ljósrita þig, þá eintak ég á, af þér ...

Nú er ég kominn í Stykkishólm. Ví! Byrjaður að vinna í slippnum sem ég hef verið í seinustu tvö sumur. En núna er allt breytt í vinnuni því nú er ég "reynsluboltinn". Arnar Logi betur þekktur sem "Eagle Fire" eða "Mr. 6 years" lét ekki sjá sig þetta sumarið þannig að ég og Birkir vinnufélagi erum yfir nýliðunum. Mér finnst ég alltaf vera voðalega merkilegur þegar þeir koma og spyrja mig spurninga um vinnuna, eins og ég sé svona... tja... reynslubolti. En það er ekki bara dans á rósum að vera reynslubolti því ég er líka settur í öll "mikilvægu" eða "erfiðu" eða janfvel "hættulegu" störfin. Meðal þessara "gæsalappamerktustarfa" eru að lakksprauta inn í perustefni á skipi sem er án allrar loftræstingar, lýsingar og olnbogarýmis. Eftir talsverða málningarsprautun og blettun voru heilarnir á mér og Birkir orðnir alveg steiktir. Við vorum syngjandi og skellihljæandi útaf engu. Þá rann það upp fyrir okkur, að við vorum bara sky high á málningargufum, sem var í rauninni það skemmtilegasta sem gerðist allan þann daginn. Síðan var ég líka settur í að sandblása tvö akkeri, en það getur reynst stórhættulegt ef þú miðar sandinum á sjálfan þig, sem ég gerði ekki sem betur fer, mér líkar ágætlega við alla mína útlimi. Og í dag var ég frá 8 um morgunin til 7 um kvöldið í veltitanki á skipi að setja upp stoðir og bora göt í ál. Mæli ekki með því við nokkurn mann að hírast í veltitanki í 10 tíma, þar sem er einn meter til lofts og maður þarf að troða sér á milli stoða eins og snákur. Síðan er ég líka alltaf í yfirvinnu. Vann til 20:00 á mán, 22:00 á þri, og 22:30 í kvöld. Eins gott að ég sé með einhver reynsluboltalaun. Já þetta var lítið innlit í mína vinnu í Skipavíkurslipp, þar sem ég er... reynslubolti. Góða nótt.

Lag dagsins: Credence Clearwater Revival - Susie Q

Kristinn Painted! @ 1:13 AM


mánudagur, maí 10, 2004

Við og við, svara þér, mannamál ...


PABLO HONEY!
GOTT!
HLUSTAÐU!
NÚNA!

Fór á skemmtilegt djamm seinasta föstudag. Eða svo er mér sagt því ÉG MAN EKKI NEITT! Já ég fékk svona blackout thing. Og mér tókst að eyða allri yfirdráttarheimildinni minni sem átti að endast mér fram að heimkomu, en ég fer aftur í gamla góða sveitplássið næsta föstudag. Þannig að þetta verður að öllum líkindum mitt seinasta blogg í langan langan tíma, þar sem ég er ekki þekktur fyrir að blogga mikið í sveitinni af einhverjum ástæðum... Góða nótt í bili!

Diskur mánaðarins: Radiohead - Pablo Honey

Kristinn Painted! @ 7:40 PM


miðvikudagur, maí 05, 2004

Þið eruð fyrirmyndarfólk, sem eruð fyrir mér ...

Ég var að horfa á Army of darkness (Evil Dead 2) um daginn. Þetta er ein af þessum góðu gömlu 80's hrollvekjum sem tröllriðu öllu einu sinni en er þó með meira húmorívafi. Ég hef séð þessa mynd nokkrum sinnum, enda alltaf gaman að sjá illa leiknu persónuna, Ash, sem er 80's töffari sem ferðast óvart aftur í tímann til miðalda og þarf að berjast við her hins illa tvífara sína, Evil Ash sem er uppvakningur. Enn það sem kom mér á óvart er það að endir myndarinnar var öðruvísi. Eins og ég man eftir honum þá sigrar Ash hinn illa her og þá gefa galdrakarlar honum seyði sem hann þarf að drekka 10 dropa af til að sofa í 1000 ár svo hann vakni á sínum tíma. Hann drekkur óvart 11 dropa fyrir mistök og lendir í framtíð sinni þar sem jörðinn er líflaus eftir kjarnorkustyrjöld(no... no... NO!... NOOOOO!!!!! *THE END*). En á þessari útgáfu sem ég sá um daginn er Ash kominn aftur í sinn tíma að segja einhverjum nörda í hardwarestore vinnuni sinni frá hvað hann er góður í að drepa zombies, þá kemur allt í einu einn zombie sem Ash skýtur í tætlur með haglabyssu, síðan grípur hann einhverra gellu og fer í hörkusleik við hana *THE END*. Fannst þetta bara furðulegt og var að pæla hvort að einhver annar hefði séð báðar útgáfur á þessari mynd?

Fjórar fleygar setningar sem Ash kemur með:
1. „Grrroovy“.
2. „Gimme some sugar babey“.
3. „The only thing I care about now is Jack and Shit, and Jack just left town“.
4. „You want some?!? You want some?!?“.

Lag dagsins: David Bowie - Starman

Kristinn Painted! @ 3:28 AM


Hver er ég?

Nafn: Kiddó
Aldur: 19
Staður: Rvk/Breiðholt
e-m@il: kiddo@bughunt.net
Hár: Já

The WeatherPixie

Vinir

Ericsson
Bragi
Hjalti
Oddur
Bjarney
Lalli
Þórdís
Súsanna
Viggó
Tobba
Tinna
Keli
Óli

Teljari

Linkar

FISH
Ævintýri Kiddó!
mBlog
Landið mitt

Spjall

Powered by TagBoard Message Board
Name

URL or Email

Messages(smilies)



Archives

12/01/2002 - 01/01/2003
01/01/2003 - 02/01/2003
02/01/2003 - 03/01/2003
03/01/2003 - 04/01/2003
04/01/2003 - 05/01/2003
05/01/2003 - 06/01/2003
06/01/2003 - 07/01/2003
09/01/2003 - 10/01/2003
10/01/2003 - 11/01/2003
11/01/2003 - 12/01/2003
12/01/2003 - 01/01/2004
01/01/2004 - 02/01/2004
02/01/2004 - 03/01/2004
03/01/2004 - 04/01/2004
04/01/2004 - 05/01/2004
05/01/2004 - 06/01/2004
06/01/2004 - 07/01/2004
07/01/2004 - 08/01/2004
09/01/2004 - 10/01/2004
10/01/2004 - 11/01/2004
11/01/2004 - 12/01/2004
12/01/2004 - 01/01/2005
02/01/2005 - 03/01/2005
05/01/2005 - 06/01/2005
10/01/2005 - 11/01/2005