þriðjudagur, apríl 27, 2004

What did you expect, let yourself go ...

Í morgun kláraði ég loksins ritgerðina mína um Jóhönnu af Örk. Það var í rauninni á kostnað geðheilsu minnar því ég hef bara sofið í 7 klst seinustu 54 klst. Ég er orðinn ótrúlega þreyttur en ætla að þrauka til svona kl 10 til að koma sólarhringnum aftur í samt horf. ég ætlaði nú að segja eitthvað sniðugt en ég búinn að steingleyma hvað það var enda er ég orðinn snargeðveikur í hausnum. þegar ég loka augunum í smástund og opna þau aftur sé og svona litadoppur svífa fyrir framan mig. spennandi stuff. ég er líka búinn að drekka 25 kaffibolla á þessum 54klst. Það er næstum bolli á 2 tíma fresti. Ég gerði líka nýja mynd á dýrasíðuna mína vegna ótal áskorana, en þetta verður mín seinasta mynd. Það sem kemur næst þarna inn munu verða teiknimyndir því ég er að læra á flash 5. BRagi og Lalli eru báðir búnir að lofa mér að vera voice talents ef ég þarf á þeim að halda. já já já já. Farinn að gera einhvern óþarfa.

Lag dagsins: The Byrds - So you want to be a rock & roll star

Kristinn Painted! @ 7:19 PM


mánudagur, apríl 26, 2004

þið eruð öll svo góð, gæðablóð ...

Klukkan: 9:01am.
Ritgerðar status: 79% kláruð.
Drykkur: Kaffi(10 bollar samkvæmt mælidótinu á kaffivélini).
Matur: Banani.
Þreyta: Er orðin að líkamlegum og andlegum dofa.
Geðveiki: 81%-.
Aðrir kvillar: Svefngalsi, leiðindi x3, gredda, há kollvik, mér sýndist ég sjá cheerios hring á gólfinu hreyfast af sjálfdáðum.
Skemmtileg staðreynd: Sjónvarpsfjarstýringin mín var ekki batteríslaus eftir allt saman, heldur er hún bara biluð!

Lag dagsins 3: Oasis - Morning glory

Kristinn Painted! @ 9:10 AM


Martraðir, úúú-ú-úúúú ...

Klukkan: 7:27am.
Ritgerðar status: 67% kláruð.
Drykkur: Kaffi.
Matur: Gróft mjólkur kex.
Þreyta: Fer minnkandi, mér er að vaxa óþekktur kraftur.
Geðveiki: 84%+.
Aðrir kvillar: Svefngalsi, leiðindi x2, gredda, einmanaleiki, er með nýja supergrass lagið á heilanum en kemst ekki á dc til að ná í það!
Skemmtileg staðreynd: Ég held ég sé að stökkbreytast.

Lag dagsins 2: Radiohead - Anyone can play guitar

Kristinn Painted! @ 7:36 AM


Ég vakna bráðum, þakinn sárum ...

Klukkan: 5:49am.
Ritgerðar status: 67% kláruð.
Drykkur: Kaffi.
Matur: Gróft mjólkur kex.
Þreyta: Allsráðandi.
Geðveiki: 76%+.
Aðrir kvillar: Svefngalsi, leiðindi, gredda, einmanaleiki, leyfar af þvynku, óstjórnleg löngun til að spila á munnhörpu.
Skemmtileg staðreynd: Ég er 1/8 danskur !!!

Lag dagsins: Dandy Warhols - Godless

Kristinn Painted! @ 6:13 AM


miðvikudagur, apríl 21, 2004

Farinn langt á, ég segi þér ...

Nú er ég sko aldeilis hlessa!
Ég var að skoða e-mailið mitt áðan á þá eru kominn 178 nýjir póstar inn á pósthólfið! Ég lít á þessa pósta og skoða hvað er eiginlega í gangi og sé þá að þetta er allt póstur frá Bravenet fyrirtækinu þar sem ég fékk counterinn minn og könnunina á asnalegu dýrasíðunni minni. Þeir voru sem sagt að láta mig vita að fólk var að kjósa í könnuninni á dýrasíðunni minni. Mér fannst þetta náttúrulega furðulegt og athuga síðuna mína. Og viti menn! Bara síðan í gær hafa 2519 manns heimsótt þessa fáránlegu síðu! Og af hverju góðir hálsar? Einhver ákvað að setja annan link á mig á batman.is! seinast þegar það var gert fékk ég eitthvað um 300 heimsóknir og fannst það náttúrulega furðulegt líka þá. En þetta er bara hrein geðveiki! Skoðum nú hvernig dagurinn í dag var miðað við seinustu daga...















Og hér er smá dæmi um hve hlessa ég varð(Tekið af #FISH.is).

[22:43:47] Kiddo> OMG
[22:43:54] Kiddo> 178 new unreadmessages
[22:45:25] Shuyin> yeah
[22:46:06] Kiddo> HVAÐA BULL ER ÞETTA !!!?!?!??!?!
[22:46:18] Kiddo> 3100 manns búnir að heimsækja síðuna mína allt í einu
[22:46:26] Kiddo> þeir voru svona 600 í gær
[22:51:01] Dortzi^-> :)
[22:52:15] Dortzi^-> síðan þín er lika bara SNILD SKO EKKERT ANNAÐ EN SNILD :)
[22:52:59] ram|work> hmmmmm ég leitaði af Worlds Funniest TV Show og það kom upp "Les Miserables" s.s. Vesalingarnir ;D lol
[22:53:29] Kiddo> enn þetta er samt geðveiki
[22:53:39] Kiddo> Page Views Today 2,519
[22:53:42] Kiddo> why the hell
[22:53:44] Kiddo> hahahahhahaha
[22:53:54] Kiddo> bara í dag !!
[22:54:40] Shuyin> hún er á batnab
[22:54:42] Shuyin> batman.is
[22:55:02] * SvamLi has quit IRC (Connection reset by peer)
[22:55:03] * Kiddo changes topic to 'http://easy.go.is/kiddo/ <--- Fékk 2519 heimsóknir BARA Í DAG !!! RUGL !!!'
[22:55:05] Kiddo> já það
[22:55:11] Kiddo> hmmm
[22:55:56] Kiddo> já lol

Þetta finnst mér nokkuð merkilegt og lætur mig jafnvel langa að byrja aftur á þessu dýrarugli, en ég ætla ekki að láta eitthvern svona one hit wonder dag láta hafa áhrif á mig. Jæja farinn aftur að skrifa ritgerð!

(úps myndin var of stór og bloggið fór í fokk, vona að þessi smækkaða mynd komi því aftur í samt lag... ef ekki, fuck me!)

Kristinn Painted! @ 11:14 PM


mánudagur, apríl 19, 2004

Ekki ég, hvað um þig ...

Ég er í sjokki... Þannig er mál með vexti að ég var að labba heim áðan úr sundi og gekk þá fram hjá krakkahóp sem var að sparka fótbolta og hlaupa svo að sækja hann í umferðinni. EN engar áhyggjur, engin krakki varð fyrir bíl eða eitthvað svoleiðis. Heldur sparkaði einn strákurinn bolta rétt fram hjá höfðinu á mér. EN það er heldur ekki sjokkið. Ó nei, heldur þegar boltin þaut fram hjá mér þá sagði strákurinn sem var greinilega úthlutað það verk að sækja boltann út á götuna: "Passaðu þig að hitta ekki KALLINN". Já svona er þetta. Í augum yngri kynslóðarinar, sem ég taldi mig enn þá vera part af, er ég bara einhver KALL. Áður en ég veit af verð ég kominn með hárígræðslur og keyri um á rauðum sportbílstyppalengjara. Shocking indeed.

Lag Dagsins: Ensími - Vínrauð vín

Kristinn Painted! @ 12:24 PM


miðvikudagur, apríl 14, 2004

Orðin þreytt á mér, þykir það svo leitt ...

Í dag var fyrsti skóladagur eftir þetta annars ágæta páskafrí. Páskafríið var ágætt af því leiti að ég var mikið fullur, spilaði tölvuleiki með félögunum og lærði ekki baun. Ég verð að fara að læra að hugsa um Framtíðar-Kiddó, því í dag er ég hann, og Fortíðar-Kiddó sem var í páskafríi er bara drukkinn sauður. En eftir skólann í dag þá gekk ég út í bakarí og keytpi mér svona stórt fransbrauð, óskorið, því þá get ég ráðið hve þykkar sneiðarnar eru. Mér leið líka eiginlega eins og Frakka þegar ég labbaði heim með risa brauðhleif undir hendinni og langaði smá að taka það úr pokanum og setja á mig alpahúfu upp á fílinginn, en sleppti því. Nú sit ég hér og háma í mig þykkar fransbrauðssneiðar með osti og drekk kalda léttmjólk í coca cola glasi. Þetta einmitt vekur mig til umhugsunar um ýmis málefni. Ég var nefnilega í dag í félagsfræði að læra um þróun hinna ýmsu landa (þróunarlanda) og hverning sum lönd eru á eftir en önnur á undan. Við erum svona 100 árum á undan suður afríku löndum í iðnaði en Japanir eru svona 20 árum á undan okkur í tækni sem mér finnst nokkuð magnað. Ég væri vel til í að skreppa til Japans og sjá hvernig framtíðin verður eftir 20 ár. En já í sambandi við þróun, bakarí og gosdrykki þá hef ég þetta að segja: Danmörk er langt á undan okkur íslendingum í bakarísþróun! Þegar ég var úti í danmörku seinasta sumar leið varla sá dagur að maður prufaði ekki eitthvað nýtt danskt bakkelsi (enda kom ég heim 3 kílóum þyngri). Úrvalið þar er endalaust annað en í íslenskum bakaríum þar sem fæst lítið annað en snúðar, donuts og eitthvað svona amerískt. Og svo ekki sé minnst á það að í dönskum bakaríum er hægt að kaupa bjór á 7rk danskar! En það kemur hins vegar á móti þessu að við Íslendingar erum þróaðari en Danir í gosdrykkjaframleiðslu! Allt gos í danmörku er meira og minna crap saman borið við íslenskt gos. Þar að segja danskt kók á ekkert í íslenskt kók, og dansk sprite á ekkert í íslenskt sprite osfrv osfrv. Og síðan eru tapparnir á gosflöskunum í Danmörku ekki nógu þróaðir. Þegar við opnum "innsiglið" á okkar gosflöskum situr alltaf svona lítil hringur eftir á hálsi flöskunar sem hélt tappanum föstum og loftþéttum. En í Danmörku þá rifnar þessi hringur í hárbeitta plastræmu sem situr síðan föst við tappann og er eitthvað svo pirrandi fyrir manni. En Faxe Kondi er ágætis drykkur.

Lag Dagsins: The Beatles - Being for the benefit of Mr. Kite

Kristinn Painted! @ 1:52 PM


þriðjudagur, apríl 13, 2004

Ég hef ákveðið að bæta inn links á öll þau blogg sem ég slysast til að lesa við og við.

Lag dagsins: HEMAN - FISH

Kristinn Painted! @ 1:20 AM


ÉG VISSI ÞAÐ !!!

Who were you in a past life? by Kat007
Name:
Birthdate:
Favorite Color:
Country:
You were most probably:A pirate
If not then you were:A nobody named Sal
Created with quill18's MemeGen 3.0!

Kristinn Painted! @ 12:46 AM


laugardagur, apríl 03, 2004

FRÆNDI FRÆNDA MÍNS, ER ÞAÐ EKKI DÁLDIÐ LANGSÓTT ?!?!?!?

Kristinn Painted! @ 5:57 AM


Hver er ég?

Nafn: Kiddó
Aldur: 19
Staður: Rvk/Breiðholt
e-m@il: kiddo@bughunt.net
Hár: Já

The WeatherPixie

Vinir

Ericsson
Bragi
Hjalti
Oddur
Bjarney
Lalli
Þórdís
Súsanna
Viggó
Tobba
Tinna
Keli
Óli

Teljari

Linkar

FISH
Ævintýri Kiddó!
mBlog
Landið mitt

Spjall

Powered by TagBoard Message Board
Name

URL or Email

Messages(smilies)



Archives

12/01/2002 - 01/01/2003
01/01/2003 - 02/01/2003
02/01/2003 - 03/01/2003
03/01/2003 - 04/01/2003
04/01/2003 - 05/01/2003
05/01/2003 - 06/01/2003
06/01/2003 - 07/01/2003
09/01/2003 - 10/01/2003
10/01/2003 - 11/01/2003
11/01/2003 - 12/01/2003
12/01/2003 - 01/01/2004
01/01/2004 - 02/01/2004
02/01/2004 - 03/01/2004
03/01/2004 - 04/01/2004
04/01/2004 - 05/01/2004
05/01/2004 - 06/01/2004
06/01/2004 - 07/01/2004
07/01/2004 - 08/01/2004
09/01/2004 - 10/01/2004
10/01/2004 - 11/01/2004
11/01/2004 - 12/01/2004
12/01/2004 - 01/01/2005
02/01/2005 - 03/01/2005
05/01/2005 - 06/01/2005
10/01/2005 - 11/01/2005