|
þriðjudagur, mars 30, 2004
I remind you again, to say what you feel ...
Ég hringdi í X-ið í dag og fékk tvo miða á "Dawn of the dead" í bíó á morgun! Langaði bara að deila þessu með ykkur þar sem ég vinn aldrei neitt. Síðan þarf ég líka að posta einhverju til að nýju linkarnir sem ég var að setja inn komi í ljós. Síðan var ég rétt í þessu að heyra að kona í USA fékk skilaboð frá Guði um að taka til í húsinu sínu og drepa börnin sín, sem hún og gerði. Ruglað lið sem býr í þessum heimi okkar.
Lag Dagsins: Deep Purple - Black Knight
Kristinn Painted! @ 2:25 PM
mánudagur, mars 29, 2004
Heimurinn, er minn, eins og áður ...
Ég var að horfa á þátt áðan á RÚV um hvernig dýr framtíðarinnar geta hugsanlega hafa þróast eftir 100 milljón ár. Gert er ráð fyrir því að við séum löngu útdauð eða flutt á brott og jörðin er böðuð í hitamóki eftir gróðurhúsaáhrif sem við sköpuðum. Ef það er eitthvað til í þessum pælingum hjá þessum þróunar-líffræðinga-nördum þá verður jörðin árið 100.002.004 e.kr nokkuð áhugaverður staður. skringileg dýr koma fram á sjónarsviðið, eins og risaskjaldbökur sem verða þá stærstu dýr sem nokkurn tíman hafa gengið um þessa jörð eða 20 sinnum stærri en fíll! Einnig voru sýndir eitraðir landkolkrabbar sem hafa þróað með sér einhvers konar ofurlunga sem gerir þeim kleift að dveljast svo dögum skiptir upp á yfirborðinu þar sem þeir geyma ungviði sitt í plöntu sem þeir vinna með(hljómar asnalega en er mjög sniðug pæling). Og þegar hitinn hækkar svona á jörðini verður rosa gróðursprenging sem þýðir meira súrefni per rúmmeter sem þýðir stærri og grimmari skordýr sem veiða fugla og vinna saman til að lokka dýr í gildrur. En það sem kom mér mest á óvart var það að aðeins eitt spendýr mun lifa af þessar hörmungar. Og það er nagdýr sem býr á hásléttum N-Ameríku eftir að Ástralíu flekinn gengur þar í gegn, u.þ.b 10km fyrir ofan sjávarmál! En það er ekki það sem kom mér úr jafnvægi. Heldur eru þessi nagdýr ræktuð af köngulóm sem vinna saman líkt og maurar. Köngulærnar spinna risastóra vefi sem loka af heilum gljúfrum og í þessum vef festast fljúgandi fræ(eins og á fíflum(blóminu ekki hinu)) sem kvikindin safna saman í haug í búinu sínu og þangað ná litlu nagdýrin í matinn sinn, en eru um leið matur köngulóna því við og við drepur könguló lítið nagdýr og étur það eða gefur drottningunni það. Og þessi drottning er ekkert smá kvikindi, við erum að tala um 60cm búk!(Vonandi les Hjalti þetta) Ég sjálfur sem spendýr fannst þetta hálf grimmileg örlög fyrir litlu rotturnar þar sem þær eru of veikar til að afla sér sjálfar fæðu og treysta þannig á köngulærnar rétt eins og köngulórnar treysta á þær.
Mér finnst þetta nokkuð merkilegt að sjá svona "það sem getur orðið" þátt, en það getur vel verið að ykkur finnist þetta ekkert merkilegt. Eini gallin við þáttinn er að hann er á sama tíma og survivor en það var bara einhver clip show í kvöld hvort eð er, ekkert sem ég hef ekki séð. En já ... skondið fyrirbæri!
Lag Dagsins: Blur - Coffee & TV
Kristinn Painted! @ 11:53 PM
föstudagur, mars 26, 2004
I feel so good, is there anybody like me ...
Ég hef reynt marga hluti til að reyna koma bloggdæminu mínu aftur í gang en ég er bara of latur til að blogga. Koma 2-3 færslur í mánuði og það er frekar slappt miðað við meðal bloggarann. En bjóða meðal bloggarar upp á SKEMMTILEGAN LEIK SEM HÆGT ER AÐ VINNA VERÐLAUN Í ?!?!?! Nei kæru lesendur ekki meðal bloggarinn en ég er ekki hann! Þess vegna er ég að koma með þennan leik. Leikurinn er á þennan hátt:
Headlinið á seinustu þrem bloggfærslum mínum eru ekki eitthvað random bull eins og það kannski lítur út fyrir að vera. Nei, þetta eru textabrot úr lögum hljómsveitar. Spurningin er því: Hvaða hljómsveit er þetta? Og úr hvaða lögum eru þessar laglínur?
Þetta er kannski ekki auðfundið fyrir flesta en er þó mögulegt(fræðilega) þannig að sá fyrsti sem kemur með báðar, já báðar spurningarnar réttar fær í verðlaun bókina Kaldaljós eftir Vigdísi Grímsdóttur, sem var nýlega kvikmynduð með leikaranum Ingvari Sigurðssyni sem aðalsöguhetju myndarinar. Bókin er Lítið notuð(í íslenskutímum), og er prentuð í fallega kilju útgáfu.
Þannig að fyrir ykkur þá sem nenna þessu, gangi ykkur vel.
Lag Dagsins: Pink Floyd - Comfortably numb
Kristinn Painted! @ 2:20 AM
mánudagur, mars 22, 2004
Sæla, gleði, svona við og við...
Í dag er fáránlega gott sumarveður úti. Sólin skín, fuglar syngja dirrindí og allt er rosa nice. Þess vegna hvet ég alla til að fara og kaupa sér ís í brauðformi með dýfu og taka sér smá göngutúr eða rúnta niður laugarveginn með ísinn. Ég ætla ekki að gera það hins vegar heldur er ég að fara í stór tiltektar mál hérna í íbúðinni. En ég mun hafa opið út á pall til að njóta blíðunar í smá hófi. Því allt er jú gott í hófi.
Þetta er Shadow Mars mánuðar í boði Dunkodda bloggsins
Af hverju?: Því Shadow er Shadow þótt hann sé mótórhjól.
Myndiru skipta honum fyrir þinn Shadow?: Nei það get ég ekki sagt.
Shadow einkunn?: 2, enda er þetta ekki Dodge Shadow.
Lag dagsins: Dire Straits - Walk of life
Kristinn Painted! @ 11:48 AM
fimmtudagur, mars 18, 2004
Sársaukinn er minn, ógeðið ég finn...
Já. Þetta er ein af þessum nóttum þar sem ég bara ligg tímunum saman í rúminu og get ekki sofnað. Ég er örugglega búinn að fara í gegnum svona 70 liggjandi stellingar en engin er þægileg. Ég get ekki slökkt á hausnum á mér, ætli ég hafi ekki of mikið að hugsa um. Alltof mikið. Er að pæla í að leggjast aftur upp í, þó ég þurfi að vakna eftir 4 tíma. Kannski Kafbátamúsík geti svæft mig.
Lag Dagsins: Foo Fighters - Generator
Kristinn Painted! @ 5:40 AM
þriðjudagur, mars 16, 2004
Innantóm, hamingja, háður...
Ég rakst á skemmtilegan lista á blogginu hennar Tinnu hans Odds sem lýsir íslenskum bloggum helvíti vel. Ég sé hvergi á blogginu hennar að hún lýsi yfir einhverjum höfundarétti þannig að vonandi er í lagi að ég sýni þennan ágætis lista hérna. :)
10 algengustu atriðin sem koma fram í bloggum
1. mér leiðist
2. ég er þakklát (kemur oftast bra hjá stelpum)
3. í dag þá fór..
4. í gær..
5. skólinn
6. vinir
7. hraun yfir fólk
8. sögur
9. mér finnst gaman
10. umsagnir um klámsögur eða klámsögur
Og nú gott fólk kemur einmitt Ofurblogg! því ég ætla að tala stuttlega um allt sem kemur fyrir á þessum lista, því ég veit ekkert hvað ég á að blogga um, þannig að nú ræður listinn ferðinni!
1. mér leiðist: Já, eiginlega alltaf.
2. Ég er þakklátur fyrir: Góða daga og græna haga.(Eða bara eitthvað annað)
3. Í dag þá fór: Ég labbandi í skólann og það var svo mikil þoka að ég sá bara 20 metra fram fyrir mig og síðan sá ég stuttan leikþátt um Jesú í hátíðarsalnum í hádeginu.
4. Í gær: Þá keypti ég mér nýjan tölvuskjá því gamli var orðinn 5 ára gamall og gefur frá sér milda geislavirkni. Einnig keypti ég hátalarabox í Shadowinn sem ég fékk á afslætti í bónus vegna útlitsgalla.
5. Skólinn: Skemmtilegur en mætti ganga betur.
6. Vinir: Eru nokkrir, má þar nefna; Helga, Emil, Braga, Valla, Hreiðar, Jón og eflaust eitthverja fleiri vitleysinga sem eru dottnir alveg úr mér.
7. Hraun yfir fólk: Það er einmitt það sem gerðist í Pompei á sínum tíma, örugglega ekki þægilegt.
8. Sögur: Ok ok ok, ég er að opna mig aðeins hérna, ég hef venjulega reynt að halda þessu leyndu en það er betra að segja frá þessu núna heldur en að fá þetta í bakið ef ég býð mig einhvern tíman fram sem forseti. Á skólaslitunum í 3. bekk (8 ára) var verið að deila út allskyns viðurkenningum fyrir góðan námsárangur. Þá hlaut ég fyrstu og einu námsviðurkenningu mína EVER! Viðurkenningin var Bókin um veginn eftir kínverska heimspekinginn Lao Tse. Og fyrir hvaða grein fékk ég þessa viðurkenningu? Það er dimma leyndarmálið... Það var fyrir SAUMAR! úff gott að létta af sér... Fyrst ég er nú að sýna heiminum mína kvennlegu hlið þá get ég allt eins látið fljóta með að ég, Jón og Svenni vorum í saumaklúbb í 4. bekk líka! Í rauninni spiluðum við bara Zelda og borðuðum popp, en við kölluðum þetta samt saumaklúbb.
9. Mér finnst gaman: Að elda, spila, sofa o.fl.
10. umsagnir um klámsögur eða klámsögur: Það fékk of mikið á mig að segja saumasöguna þannig að ég hef það ekki í mér núna að segja klámsögu sem stendur (ÉG GET BARA HUGSAÐ UM ÚTSAUM OG TREFFLA!!!)... Kannski seinna.
Jæja þetta var ágætt.
Lag dagsins: Smashing Pumpkins - 1979
Kristinn Painted! @ 5:03 PM
laugardagur, mars 06, 2004
Komatsu Kraftvélasýning
Á föstudaginn fyrir viku síðan bauð Aron félagi minn mér á kraftvélasýningu þar sem átti að vera matur og bjór ókeypis og fullt af gröfum og trukkum og svoleiðis dóti til að skoða. Ég spurði Aron klukkutíma áður en veislan átti að hefjast hvort að þetta væri nokkuð svona jakkafatadæmi því að öll mín fínni föt væru í Stykkishólmi. En Aron sagði mér að þetta væri veisla þannig að það væri æskilegt að mæta í fínum fötum. Nú voru góð ráð dýr, eina skyrtan sem ég átti var vinnuskyrta frá rúmfatalagernum. Ég er ekki vanur að gera mikið mál úr svona fatadóti en vildi samt ekki vera eini gaurinn á svæðinu í bómullarpeysu og gallabuxum þannig að ég þurfti að grípa til örþrifaráða!
Ég fór niður í geymslu því ég vissi að Fanný frænka mín sem bjó hérna á undan mér átti fullt af gömlum 80's fötum í pappakassa þar. Ég byrjaði að grafa í kassanum og viti menn ég fann einhverja ofur krumpaða og skítuga skyrtu sem var kannski einhvern tíman hvít, og síðan fann ég flott 80's bindi sem var skemmtilega röndótt. Ég dreif mig upp til að smella mér í þetta og fann síðu á netinu þar sem eg lærði að binda bindishnút. Ég leit út eins og einhver wannabe 80's djammari en var þó alla vega í skyrtu.
Nokkrum mínútum síðar sótti Aron mig og við sóttum Emil og síðan keyrðum við í ríkið og síðan á kraftvélasýninguna í kópavogi í boði Komatsu. Veislan var ekki alveg eins og við héldum. Ég hafði séð þetta fyrir mér þannig að við sætum við borð í sal þar sem væri fullt af krafttækjum og sætum stelpum í bikini að sitjandi í þeim, síðan hefðum við fengið 3 rétta máltíð og og drukkið bjór sem væri borin fram af snobblegum þjónum í smóking. Nei nei nei nei, ég hafði fengið ranghugmyndir vegna myndarinar á miðanum þar sem voru einmitt bikinisgellur að strjúka einhverjum nördalegum gröfukalli. Veislan, eins og hún var í raunveruleikanum gat ekki verið fjarri frá hugsjón minni. Basicly var þetta bara bílastæði með fullt af risagröfum og risatrukkum. Síðan gat maður farið inn í umboðið þar sem voru nokkrir bjórkranar og borð með roastbeef samlokum. Og það skondna við þetta allt var að fyrir utan mig, Aron, Emil og nokkra umboðsmenn var ENGINN í sparifötum. Þetta voru bara fullt of miðaldra gröfuköllum sem komu þangað fyrir bjór og ókeypis samlokur sem þeir tróðu óspart í sig.
En maður reyndi bara að gera gott úr þessu, fékk sér roastbeef samloku og reyndi að þamba eins mikinn bjór áður en sýningin kláraðist. Skoðaði nokkrar gröfur með litlum áhuga og fór síðan heim til Emils að drekka meiri bjór.
Þetta var sagan af kraftvélasýningunni sem átti að vera veisla en var ekki veisla.
Kristinn Painted! @ 5:45 PM
miðvikudagur, mars 03, 2004
Þetta er Shadow Febrúar mánuðar (síðastliðins) í boði Dunkodda bloggsins
Af hverju?: Því þetta er "The" Shadow, hinn eini sanni, MINN Shadow!
Myndiru skipta á honum fyrir þinn Shadow?: Ef ég væri ekki ég, þá já, tvímælalaust.
Shadow einkunn?: 10 Fyrir að vera bestasti bíll á Íslandi.
Kristinn Painted! @ 4:34 PM
|