|
fimmtudagur, febrúar 05, 2004 Á morgun fer ég ásamt mörgum stykkishólms félögum mínum í sumarbústað einhvers staðar hjá Hveragerði. Þar verður að öllum líkindum mikið sungið, dansað og drukkið því það er jú hluturinn sem hólmarar eru hvað þekktastir fyrir(að drekka þar að segja). Af þessu tilefni hef ég fengið mér Mblog þjónustu í nýja símadótið sem þýðir að ég get tekið myndir, eða tekið upp hljóð og sent draslið á netið ásamt einhverjum texta. Þessa fylleríshelgi ætla ég nefnilega að senda nokkur "Partyreports" á þetta Mblog dæmi og þá getið þið séð hvað við félagarnir skemmtum okkur vel í bústaðnum.
miðvikudagur, febrúar 04, 2004 Klukkan er 1:30 að nóttu til. Fyrir 20 mínútum var ég tilbúinn til að fara að sofa en var eitthvað svo svangur að ég gerði mér geðveikt góða samloku með beikoni og lauk. Langaði bara að deila þessu með ykkur, stay tuned for Shadow Bifreið Febrúar mánaðar seinna í vikunni(ef æðri máttarvöld leyfa).
mánudagur, febrúar 02, 2004 TO-DO listinn sem hengur á ískápnum mínum
|