|
þriðjudagur, janúar 27, 2004
Stutt framhald af símasögunni...
Seinasta miðvikudag ef ég man rétt hringdi í mig kona. Hún byrjaði á því að segja mér að hún hafði ekki verið í bænum um nokkurn tíma og hefði verið að fá einn af öllum þessum dreifimiðum sem ég setti í pósthólfin í Dúfnahólum 4. Hún bauðst til að senda krakkan sinn yfir með hann fyrir mig sem ég þáði eftir að ég var búinn að segja henni hvar ég átti heima(Hlutur sem ég hef viljað gera lengi). Síðan 15 mín seinna hringdi dyrasíminn og ég ýtti á báða takkana á símadótinu. Síðan kom ekki einn heldur 4 krakkar með símann heim til mín(3 strákar á aldrinum 8-12 ára ásamt eitthvað eldri systur sinni). Strákurinn sem fann símann minn rétti mér símann og brosti, ég rétti honum spaðann sagði honum að þetta væri alveg frábært og þakkaði honum svo fyrir, og hann hljóp aftur til systkina sinna sem biðu í lyftunni. Upphaflega ætlaði ég að gefa einhver fundarlaun en ég var bara ekki með cash á mér, auk þess er ég kominn með nýjan síma, glænýtt tæknitól frá nokia með myndavél, diktafón og útvarpi. Gamli síminn á hinn bóginn var með bilaðan skjá, brotna klemmu og frekar slöpp móttökuskilyrði. Ég afþakkaði meira að segja það að fá að reyna að rekja hann sem löggan gerir með einhverju gervihnattardæmi(virkar í 30-40% tilvika). EN nú er ég farinn að röfla. Ég er alla vegana kominn með gamla símann, sem er gott, en ég á samt eftir að flytja yfir símaskránna, sem ég nenni varla að gera, en já lifið heil og passið upp á símana ykkar.
Kristinn Painted! @ 2:07 AM
fimmtudagur, janúar 08, 2004
Fjórir misspennandi dagar í lífi lúsers...
Á laugardaginn týndi ég gemsanum mínum. Ég hélt í fyrstu að ég hefði bara gleymt honum út í bíl eða eitthvað og fór bara að sofa. En í hádeginu á sunnudaginn var hringt í mig í heimasímann hérna í dúfnahólunum, ég var sofandi og svaraði frekar annars hugar í símann og þannig upphófst þetta samtal...
Stelpa: Halló, varst þú að týna síma í gær.
Kiddó: Ha? ... já, það gæti verið... ég meina já.
Stelpa: Já, litli bróðir minn fann hann hérna fyrir utan Dúfnahóla 4, viltu ekki að ég láti hann bara skjótast með hann yfir til þín.
Kiddó: Ha? ... jú, það væri alveg frábært, ég er hérn...
*Sambandið slitnar*
Kiddó: Halló? Halló? ... Djöfullinn.
Þegar svona var í pottinn búið ákvað ég að hringja í símann minn til að athuga hvort ég næði í gegn. Það hringdi einu sinni og síðan kom ógeðslega leiðinlega talhólfið mitt. Ég áttaði mig síðan á því að ég var mögulega búinn að eyðileggja sénsinn minn á því að stelpan fyndi númerið mitt hér í Dúfnahólum 2 þar sem ég hafði með þessari hringingu eytt restinni af batteríinu í símanum mínum, en þar hefur hún að öllum líkindum rambað á "DUFNAHOLAR 2" í símaskránni minni og hringt síðan úr símanum mínum en batterí bla bla bla. Eða kannski hafði hún skrifað númerið niður einhvers staðar? Nei. Ég heyrði ekkert meira frá stelpunni eða litla fundvísa litla bróður hennar.
En Kiddó er ekki þekktur fyrir að deyja ráðalaus(enda er hann ekki þekktur fyrir neitt). Þannig að ég skrifaði auglýsingu aftan á verkefni úr Ensku 703. Auglýsingin hljóðaði einhvern vegin svona:
Fannst þú símann minn? Ef svo er þá geturu haft samband við mig í Dúfnahólum 2 íbúð 6D, eða hringt í síma: 5778730.
Þessi auglýsing var gölluð á tvo vegu:
Vegur 1: Símanúmerið á henni var vitlaust, enda man ég aldrei númer heima hjá mér. ÞAÐ ER Í SÍMANUM MÍNUM!!!
Vegur 2: Auglýsingin var ekki límd með tonnataki á vegginn í anddyrinu í Dúfnahólum 4, heldur kennaratyggjói. Það efni er ekki nógu sterkt til að hindra að óprúttnir húsráðendur eða eitthvað álíka rifi niður auglýsinguna mína.
Því það var einmitt það sem gerðist. Þegar ég hafði ekkert heyrt frá neinum kl 7 á mánudag fór ég að athuga með blaðið. Það var horfið sporlaust, ekki einu sinni klístur eftir kennaratyggjóið var eftir. Ég gekk heim í rigningunni með sorg í huga og hatur í brjósti til þeirrar litlu persónu sem neitaði mér um að hafa uppi auglýsinguna mína. Sem betur fer er ekki langt heim til mín þar sem ég bý í næsta stigagangi, þannig að allt gleymdist þegar ég komst upp og fékk mér heitt kakó.
Þriðjudagurinn var eitthvað heilalaus. Ég var nokkuð sáttur. Enginn hafði hringt í mig til að trufla mig í counter strike eða við sjónvarpsglápið. En alltaf þegar ég fór út stóð ég í heilabrotum yfir því hverju ég gæti verið að gleyma. Lyklar, check! Veski, check! ööö... þriðji hlutur... ekki check...
Já það er asnalegt hvað maðurinn getur orðið háður tækninni, sem er allt í lagi ef maður er með gangþráð eða eitthvað og sosum líka í lagi ef það er sími en það er samt asnalegt!
Já hvert var ég nú kominn... Já, Kiddó er ekki þekktur fyrir að deyja ráðalaus. Ég sendi pabba kallinum E-mail með nýrri auglýsingu. Auglýsingu sem mun valda byltingu í þessu gemsamáli! Hún er nefnilega á DREIFIMIÐUM!!! ég bað hann að gera svona 30-40 eintök svo ég gæti sett hana í alla póstkassa í Dúfnahólum 4. Auglýsingin hljóðar svona:
Fannst þú GSMinn minn ?
Á sunnudaginn var hringt í mig og mér var sagt að síminn minn sem týndist kvöldið áður hefði fundist og væri staðsettur í Dúfnahólum 4. Áður en ég náði að greina frá hvar ég væri staddur eða hvað ég héti þá slitnaði sambandið og ég heyrði ekkert meir um símann.
Ég hengdi upp blað í anddyrinu á Dúfnahólum 4 seinna um daginn en það var rifið niður svo þetta er seinasta tilraun mín til að hafa upp á þeim sem fundu símann.
Ef þú fannst GSMinn, vinsamlegast hringdu þá í 5578730 og spurðu um Kristinn.
Takk fyrir (Broskall úr wing dings letrinu)
Jamm, þarna var símanúmerið rétt og engin húsráð geta rifið allar auglýsingarnar í burtu(nema að þeir hafi masterkey að öllum póstkössunum, sem er örugglega brot á einhverskonar persónuréttarlögum, en húsráð eru nú þekkt fyrir að vera hjartalausar samsteypur fólks sem fyrirlíta nágranna sína).
Síðan kom Miðvikudagur. Dagurinn í dag! Ég fór niður í vinnu til pabba og náði í miðana sem voru ekki 30-40 heldur meira svona 70-80. Kallinn hefur eitthvað misreiknað sig. Alla vegana... Ég brunaði heim (á The Shadow of course) og stoppaði fyrir framan Dúfnahóla 4. Ég gekk inn og setti einn miða í alla póstkassana, nema einn. Sá kassi var merktur: "Húsráð, engan dreifipóst takk fyrir". Ég gaf þeim 10 eintök helvítunum, hugsaði ekki alveg út í símanúmers dæmið samt (æ æ, húsráðs ninja assasins).
Og nú hefst the waiting game. Leikur sem er best spilaður yfir... Ég var svona 3 mínútur að pæla hvernig væri svalt að ljúka þessari setningu en það er ekki hægt svo ég segi bara, gangi mér vel að fá símann minn aftur. Þetta ætti að koma í ljós á morgun...
... Vá þetta er langt, betra að gera ctrl+c áður en blogger.com týnir þessu fyrir mér.
Kristinn Painted! @ 2:29 AM
mánudagur, janúar 05, 2004
Þetta er Shadow bifreið janúar mánuðar í boði Dunkodda bloggsins
Af hverju?: Því þetta er löggushadow!
Myndiru skipta á honum fyrir þinn Shadow?: Ef ég væri lögga þá alveg bókað já.
Shadow einkunn?: 6.8 fyrir að veita bænum "Ville de Hull" aukna vegavernd.
Kristinn Painted! @ 5:39 AM
|