þriðjudagur, desember 23, 2003

Í dag á ég afmæli! Ég er orðin 19 ára! Jibbí!

Og já ...

Gleðileg jól og farsælt komandi ár til ykkar allra...

Kristinn Painted! @ 3:47 PM


þriðjudagur, desember 09, 2003

Jæja já ... kannski maður skrifi eitthvað...

Í dag fór ég í upptöku próf í Ensku 7036, sem sagt próf sem ég missti af á önnini úr bókini Much Ado About Nothing, eftir Vilhjálm Shakespeare. Ég var ekki búinn að lesa bókina, en ég leigði myndina í gær sem skartar leikurum eins og Denzel Washington, Michael Keaton, Keanu Reeves og gaurnum sem ég man aldrei hvað heitir en er samt frægur. Já það er frekar slöpp mynd sem ég mæli ekkert sérstaklega með, en er örugglega skárri en bókin. Mér gekk vel í prófinu.

Eftir prófið fór ég og fékk mér Berlínarbollu og kók í dós hjá Bakarameistaranum í Mjódd.

Síðan ætlaði ég í kolaportið en það var lokað, ég hélt nefnilega að það væri opið alla daga í desembermánuði eins og í fyrra en nei það var lokað eins og ég var búinn að segja. Þannig að ég fór í búðina við hliðina á Bæjarins bestu. Man ekki nákvæmlega hvað þessi búð heitir en ég hafði aldrei komið þarna og það var rýmingarsala þannig að ég leit inn. Það var enginn inni í búðinni nema ég, afgreiðslu stelpan og fullt af lélegum tónlistardiskum, tölvuleikjum og spólum sem var allt notað. Ég fékk líka enga smá ræðu frá stelpuni þegar ég kom inn, henni leiddist greinilega stelpugreyinu, sat bara þarna og krotaði eitthvað á blað í mismunandi tússlitum. Ég sá síðan að hún var að selja þessar skissur út um alla veggi, þetta er meira segja ekkert ólíkt skissunum sem ég teikna í tímum þegar mér leiðist. Já ræðan var eitthvað svona: "Góðan daginn, það er rýmingarsala hjá okkur þarna eru diskar, 3 á 1000kr, góður díll, síðan þarna eru tölvuleikir, 1000kr fyrir pc leiki, 2000kr fyrir playstation leiki, og síðan erum við með spólur líka, 3 á 1000kr" ... Ég skaut alltaf inn einhverju svona "Já já", "Aha" og "Þú segir ekki". Þegar ég var búinn að skoða slatta af diskum, spólum og leikjum(allt drasl) þá sneri stelpan sér aftur að mér og sagði: "Síðan erum við með mikið úrval af bláum myndum þarna bak við tjaldið, 1000kr myndin, 2000kr fyrir DVD". Ég bara eitthvað: "Já er það..." og hélt áfram að skoða draslið. Eftir aðrar 3 mínútur minnti hún mig aftur á bláu myndirnar og ítrekaði að þetta væru allt nýjar myndir. Ég sagðist bara ætla að láta það vera, enda fannst mér stelpunni liggja dáldið á að selja mér klám, ekki það að ég sé neitt á móti klámi, bara vill ekki að fólk reyni að pranga því upp á mig. Ég greip 3 diska úr rekkanum til að geta drullað mér í burtu, en það tók stelpuna 5 mínútur að finna réttu diskana í bókhaldinu sínu. Á meðan kom annar grunlaus viðskiptavinur inn til að skoða. Ég fékk diskana mína loksins, borgaði og þegar ég var að komast út heyrði ég stelpuna koma með ræðuna aftur fyrir aumingja gaurinn sem var bara að skoða draslið. Ég er viss um að hún bauð honum líka klámmyndir.

Síðan ætlaði ég í Laugarásvídeó að borga eitthvað hótunarbréf sem þeir sendu mér en það opnar víst ekki fyrr en 3 og klukkan var hálf þrjú þannig að ég keyrði bara heim og hlustaði á lagið "A horse with no name" með America, sem er gott lag...

Já that about does it... skemmtið ykkur!

Kristinn Painted! @ 5:01 PM


föstudagur, desember 05, 2003

Þetta er Shadow bifreið Desember mánuðar í boði dunkodda bloggsins



Af hverju?: Því þetta er flottasta paintjob sem ég hef séð á Shadow.

Myndiru skipta honum fyrir þinn Shadow?: ALDREI !!!

Shadow einkunn?: 7.6 fyrir að vera sama árgerð og "The Shadow"



Kristinn Painted! @ 7:20 PM


Hver er ég?

Nafn: Kiddó
Aldur: 19
Staður: Rvk/Breiðholt
e-m@il: kiddo@bughunt.net
Hár: Já

The WeatherPixie

Vinir

Ericsson
Bragi
Hjalti
Oddur
Bjarney
Lalli
Þórdís
Súsanna
Viggó
Tobba
Tinna
Keli
Óli

Teljari

Linkar

FISH
Ævintýri Kiddó!
mBlog
Landið mitt

Spjall

Powered by TagBoard Message Board
Name

URL or Email

Messages(smilies)



Archives

12/01/2002 - 01/01/2003
01/01/2003 - 02/01/2003
02/01/2003 - 03/01/2003
03/01/2003 - 04/01/2003
04/01/2003 - 05/01/2003
05/01/2003 - 06/01/2003
06/01/2003 - 07/01/2003
09/01/2003 - 10/01/2003
10/01/2003 - 11/01/2003
11/01/2003 - 12/01/2003
12/01/2003 - 01/01/2004
01/01/2004 - 02/01/2004
02/01/2004 - 03/01/2004
03/01/2004 - 04/01/2004
04/01/2004 - 05/01/2004
05/01/2004 - 06/01/2004
06/01/2004 - 07/01/2004
07/01/2004 - 08/01/2004
09/01/2004 - 10/01/2004
10/01/2004 - 11/01/2004
11/01/2004 - 12/01/2004
12/01/2004 - 01/01/2005
02/01/2005 - 03/01/2005
05/01/2005 - 06/01/2005
10/01/2005 - 11/01/2005