þriðjudagur, október 28, 2003

Hlutir sem mig langar að gera ...

... Hætta í skóla og kaupa mér gamla tvívængju úr fyrri heimstyrjöldinni.
... Læra að fjúga tvívængju.
... Kaupa mér gamlan brúnan flugmannsleðurjakka og flugmannsleðurhúfu með flugmannsgleraugum.
... Finna mér sidekick, helst minni en ég, nördalegri en ég og er alltaf að lenda í óhöppum.
... Fara í jakkann, setja á mig húfuna, setjast upp í tvívængjuna og fljúga til Hauskúpueyjana með sidekickinu.
... Slást við sjóræningja með sidekickinu.
... Finna fjársjóð, dúblúnur, gimsteina og skartgripi.
... Kaupa mér villu í S-Ítalíu.
... Setjast í helgan stein, fáránlega ríkur og fyrrverandi ævintýramaður á mála hjá MI6 leyniþjónustunni.
... Hætta þessum asnalegu dagdraumum og reyna að klára þessa helvítis söguritgerð!

Kristinn Painted! @ 2:46 PM


föstudagur, október 24, 2003

Pælingar ...

Djöfull væri flott ef að það væru tímavélar til í skólum. Ef ég myndi mæta seint segjum klukkan 3 um daginn búinn að sofa all rækilega yfir mig, þá myndi ég bara bregða mér í tímavélina skjóta mér 7 tíma aftur í tímann og mæta í sögu. Síðan held ég bara áfram að mæta í tíma meðan hinn raunverulegi ég á þessu tímabili væri enn sofandi heima. Síðan myndi ég bara geisla mig aftur til klukkan 3 eftir skólann og skrópa í íslensku og fara niður í mötuneyti, éta kleinu, drekka kaffi og lesa fréttablaðið. síðan mæti ég aftur klukkan 4:15 þegar íslenska er búinn og fer aftur í tímann og mæta í íslensku. þegar tíminn er búinn er ég náttúrulega að fara aftur í tímann á sama tíma þannig að ég þarf ekkert að lenda í einhverjum tvífara vandræðum.
Nema náttúrulega að ég komi af stað atburðarás sem myndi leiða til þess að ég myndi ekki fara aftur í tímann til að mæta í íslensku sem myndi þýða að ég (í fortíðinni) hefði aldrei átt að vera til myndi leiða af sér einhvers konar tímatvísögn sem myndi annað hvort eyða mér eða skilja eftir mig í fortíðinni með "samtíma-mér" sem væri tvífari minn, eða einfaldlega ég áður en ég fór aftur í tímann þótt ég fór aldrei vegna þessara aðgerða sem ég gerði í fortíðinni sem komu í veg fyrir upphaflega tímaferðalag mitt... jæja ég missti þráðinn ... ööö, já ! tímavélar eru cool og mesta þarfaþing !

PS: Um daginn kallaði gangbrautavörðurinn hjá hólabrekkuskóla mig höfðingja.

Ultra !

Kristinn Painted! @ 2:59 AM


mánudagur, október 13, 2003

Lærdómur

Ef að maður vill verða eitthvað í framtíðinni er eins gott fyrir mann að mennta sig eitthvað. Þetta er einmitt það sem ég er að reyna að gera, og er ekki einn um það. En fólki gengur misvel að mennta sig, sumir hafa ekki áhuga á náminu, sumir eru bara í skóla til að sleepa við að vinna og hlusta á nauðið í foreldrum sínum, sumir eru einfaldlega of heimskir og aðrir alltof latir. Ég flokkast undir letiflokkinn og nokkur prósent af heimsku flokknum held ég stundum. Það er brjálað að gera hjá mér í skóladraslinu núna, aðallega því ég er ekki búinn að vera að halda upp í við lærdóminn eins og ég ætti í rauninni að gera.
Fyrir morgundaginn þarf ég að klára Rómeo og Júlíu í upprunalegu leikritauppsetningunni. Maður les eina blaðsíðu með samtölum um ást og dauða og les síðan aðra blaðsíðu með orðaskýringum til að fá samhengi í textann!
Fyrir Miðvikudaginn þarf ég að gera verkefni upp á 2 blaðsíður sem ég þarf að flytja fyrir bekkinn í hljóðfræði. Um ekkert minna en talgalla sem ýmist fólk fæðist með/fær óvart fyrir slysni. Mjög óáhugavert og mjög leiðinlegt og mjög eitthvað annað boring sheize sticksen flabbt.
Og síðan á Fimmtudaginn þarf ég að skila inn 5 blaðsíðna ritgerð í sögu sem ég er nota bene ekkert byrjaður á frekar en hljóðfræði ógeðinu. Ritgerðin á að vera um Tækniframfarir mannkynsins á 20. öldinni, ef þið vitið eitthvað um það látið mig vita.
Síðan á Föstudaginn verð ég væntanlega búinn að missa vitið og hlekkja mig við bókasafnið með 3kg af dýnamíti og hóta að ýta á takkann ef ég stenst ekki alla áfanga átómatískt.

Í dag fékk ég líka miðannarmatið mitt, það var á eftirfarandi vegu:
Íslenska 703: B
Saga 303: B
Enska 703: B
Enska 422: ekkert
Þýska 403: B
Þýska 303: C

Það eina sem ég skil ekki er af hverju ég er með C í Þýsku 303 en B í Þýsku 403... skrýtið, dularfullt, mystískt eða Gunnari Þýskukennara er eitthvað í nöp við mig !

Já síðan er ég kominn með comment system, þar að segja ef þetta drasl virkar. Ekki það að það hafi ekki verið comment system fyrir bara það af einhverri ástæðu var ég sá eini sem commentaði þar en ég vona að þetta verði skemmtilegra. (Ef þetta virkar)



neibb, virkar ekki :(

Kristinn Painted! @ 11:12 PM


Kristinn Painted! @ 1:38 AM


Hver er ég?

Nafn: Kiddó
Aldur: 19
Staður: Rvk/Breiðholt
e-m@il: kiddo@bughunt.net
Hár: Já

The WeatherPixie

Vinir

Ericsson
Bragi
Hjalti
Oddur
Bjarney
Lalli
Þórdís
Súsanna
Viggó
Tobba
Tinna
Keli
Óli

Teljari

Linkar

FISH
Ævintýri Kiddó!
mBlog
Landið mitt

Spjall

Powered by TagBoard Message Board
Name

URL or Email

Messages(smilies)



Archives

12/01/2002 - 01/01/2003
01/01/2003 - 02/01/2003
02/01/2003 - 03/01/2003
03/01/2003 - 04/01/2003
04/01/2003 - 05/01/2003
05/01/2003 - 06/01/2003
06/01/2003 - 07/01/2003
09/01/2003 - 10/01/2003
10/01/2003 - 11/01/2003
11/01/2003 - 12/01/2003
12/01/2003 - 01/01/2004
01/01/2004 - 02/01/2004
02/01/2004 - 03/01/2004
03/01/2004 - 04/01/2004
04/01/2004 - 05/01/2004
05/01/2004 - 06/01/2004
06/01/2004 - 07/01/2004
07/01/2004 - 08/01/2004
09/01/2004 - 10/01/2004
10/01/2004 - 11/01/2004
11/01/2004 - 12/01/2004
12/01/2004 - 01/01/2005
02/01/2005 - 03/01/2005
05/01/2005 - 06/01/2005
10/01/2005 - 11/01/2005