|
miðvikudagur, september 24, 2003
Góðan dag krakkar mínir
Matur: Upphituð Dominoz pizza sem Hjalti átti.
Lukka: Svaf ekki yfir mig í morgun eins og hefur verið að gerast undanfarið.
Bömmer: Ég sparkaði óvart í skrifborðið mitt áðan, það var meðal sársaukafullt.
Mataræðið mitt er glatað. Eftir að ég fluttist úr heima húsum hef ég hingað til þurft að sjá um að fæða mig og klæða alveg sjálfur, sem hljómar vel fyrir suma en er farið að vera frekar þreytandi á mínum bæ. Ég nenni nefnilega ekki að standa í einhverri endalausri eldamennsku. Ekki það að ég kunni ekki að elda, ég get alveg fliffað mér hrossasteik eða bragðgóðum Tortillas a la Kiddó en það tekur tíma. Þegar maður borðar lítið nema núðlur, jógúrt og einstaka kexpakka þá fara hlutir að gerast í maganum. Sem sagt óeirðir. Ég er farinn að þjást af krónískum magaverk sem er ekki gleðimál fyrir mig því honum fylgja krónískar óreglulegar og óþægilegar... hægðir. Ég ætla ekki að fara djúpar í saumana á þessu máli en, ái ég er með meiddi í maganum.
Nú kynni ég líka nýjan flokk á blogginu mínu sem ég kalla: "Lyftusamræður". Mál er nefnilega með vexti að ég á það til að lenda í leiðinda "filler" samræðum í lyftunni í blokkinni minni. Fólk hefur oft þörf fyrir að tala þessar 10 sekúndur sem það tekur að fara upp/niður með öðru fólki í lyftu.
Lyftusamræður: 1. Þáttur "Gamli maðurinn"
Maður: Þessar lyftur eru algjör galdratæki.
Kiddó: Já, þær spara manni sporin.
Maður: Já, heldur betur. hugsaðu þér bara fólkið í skýjakljúfunum í Ameríku.
Kiddó: Já, vá, 100 hæðir eða eitthvað.
Maður: Að minnsta kosti.
--- Lyfta stoppar á 5 hæð ---
Maður: Þakka þér.
Kiddó: Blessaður.
Niðurstaða: Maðurinn var örugglega kominn yfir þann aldur að þykja það óþægilegt að vera með unglingi í lyftu í smá tíma, heldur vildi hann bara aðeins lífga upp á daginn með áhugaverðum samræðum við ungan mann sem báðar kynslóðir gátu skilið án alls misskilnings eða óvildar.
- Kiddó
Kristinn Painted! @ 6:43 PM
miðvikudagur, september 17, 2003
Halló Krakkar
Matur: Frosties og drykkjarjógúrt.
Lukka: Ég fékk 2.5 á hljóðfræðiprófi ofar mínum vonum.
Bömmer: Kiddófish, Gullfiskurinn hans Helga félaga míns sem skírði einmitt fiskinn í höfuðið á mér, er látinn.
Ég finn að bakteríurnar innra með mér eru að þróast. Ónæmiskerfi mitt hafði þær afkróaðar og tilbúin að senda þær í útrýmingarbúðir en þá fór ég í paintball. Kuldinn og þreytan gaf sýkla helvítunum tíma til að sleppa og þróast frá steinöld til Tæknialdar. Það sem var áður vægur, við og við hósti er nú hausverks valdandi ofur hósti sem ég held að vilji drepa mig. Ég fer samt í skólann og svona, og vona að það verði eitthvað breakthrough í þróun ónæmiskerfisins á móti. Súrt. Jæja sofi tími fyrir mig núna.
 Pirates of the Caribbean!
What movie Do you Belong in?(many different outcomes!) brought to you by Quizilla
- Kiddó
Kristinn Painted! @ 1:12 AM
föstudagur, september 12, 2003
Hey Kids
Matur: Pepperóní samlokur og Frissi Fríski.
Lukka: Fékk gefins Ferrari handklæði frá gamla pakkinu sem var að koma frá Mallorca.
Bömmer: Veikindi mín eru komin á nýtt þróunarstig vegna vosbúðar minnar í átökum í Kópavogi.
Ég var að koma úr stríði djúpt í viðjum Kópavogs... semsagt Paintball stríði. vííí ! Ég vann því miður ekki en lenti í öðru sæti og tók veikindi mín á glænýtt stig sýklablómstrunar. Já lífið er glatað stundum. Paintball félagar mínir voru Bragi, Oddur, Valdi, Binni og Márus. Við vorum rauninni ekki með fullt lið semsagt bara 6 stykki af man-machines en það áttu að vera 7 sko. Veðrið var á besta veg, rigning, vindur, myrkur og kuldi. Og það versta við þetta (Fyrir utan það að veikindin advanceuðu) að ég var skotin þrisvar í vinstri höndina. Fyrst var ég bara skotin í hana í venjulegu firing incident (Sem var í rauninni fyrsta skotið sem hæfði mann á þessu móti... já ég var fyrstur til að deyja, shut up, shut up) sem var í rauninni geðveikt sárt en ég er kall í krapinu og segi ekki fólki frá því. labbaði bara út af með tárin í augunum. Seinna skotið sem ég fékk í hendina var þegar Oddur félagi hélt að ég væri óvinur þegar ég var ekki nógu fljótur að segja "Gulur" þegar hann spurði "Gulur?". Það skot var af sirka 4-6m færi og var enn þá sárara en fyrra skotið, og ég vill rekja hreyfierfiðleika vinstri litla putta til þessa atviks. Þriðja skotið í hendina var þegar ég var nýbúinn að hetjulega skjóta tvo niður úr rauða liðinu (betur þekkt sem Doddi) en þá var ég skotinn af andstæðingi sem ég sá aldrei og mun líkast til aldrei vita hver var, en hann skaut mig ekki bara í hendina, onei hann kúkaði kúlum á mig... alla vegana 10 - 15 stykki. Og nú er hendin blá, hreyfihömluð og eitthvað þriðja dæmi líka.
Bjarney benti mér á hvernig ég á að laga stafaruglið á blogginu mínu, vonandi virkar það. En hún sagði að ég hefði ekkert comment kerfi! tsk tsk, þar hefuru rangt fyrir þér Bjarney það er nefnilega linkur ofarlega á síðunni sem vísar þér á ekki bara venjulegt comment drasl, onei! Heldur alvöru umræðutöflu þar sem hægt er að ræða alla heima og geima. Hún hefur bara aldrei verið notuð nema af mér, Braga og Forseta Íslands.
Niðurstöður skoðanakönnunarinnar. Spurning: Hvað finnst ykkur um að Kiddó datt og meiddi sig ?
1. Hann átti þetta skilið, bölvað fíflið! ----- 22%
2. Hver í andsk er þessi Kiddó ? ----- 17%
3. öööm... FISH ? ----- 33%
4. Aumingja strákurinn, mússímúss ----- 28%
Áhugavert áhugavert... kjósið nú í nýju kosningunni... góða nótt.
- Kiddó
Kristinn Painted! @ 1:56 AM
miðvikudagur, september 10, 2003
 What Kind Of Musical Instrument Are You? *~pictures included~* brought to you by Quizilla
Þar hafiði það ...
Kristinn Painted! @ 2:19 AM
mánudagur, september 08, 2003
Yo yo yo, Kiddó blogging from the Breiðholt hood, yeah niggah something "#$%!...
Matur: Létt Drykkjarjógúrt með jarðaberjabragði.
Lukka: Stundataflan mín er útópískur draumur.
Bömmer: Ég er veikur sem er aðal ástæðan fyrir því að ég er að blogga.
Jáááááááá mér leiðist svaka svaka mikið. hef ekkert að gera ekkert að gera nei nei nei. Ég get jú spilað CS eða EVE en það er orðið frekar heilalaust og uppfyllir ekki daglega þörf mína fyrir menningu. leiðist leiðist leiðist...
Um helgina fór ég til Keflavíkur keyrandi á Shadowinum (sem er ekki dauður enn) ásamt Helga og Aron. Þar sem Helgi er ekki búinn að vinna fyrr en 11 eða eitthvað þá vorum við ekki komnir til Keflavíkur fyrr en hálf eitt eftir að ég var búinn að skutla þeim hingað og þangað um bæinn að hitta vini sína. En þegar við vorum komnir þá hellti ég sko í mig fullt af bjór og vodka og var feyknifullur þó ég segi sjálfur frá. Þá hitti ég líka Dabba Skarp sem ég kaus að kalla Dabba Dé sem fór það mikið í taugarnar á honum að hann ákvað að láta vini sína ráðast á okkur félagana. En þetta voru bara 16 ára guttar sem var auðvelt að halda frá sér með einföldum gervihótunum og "OOOOO!!! ÉG ER SVO REIÐUR-leikbrigðum". Þetta voru hlægilegir keflarar en þeir kýldu Helga í feisið og hann fékk glóðurauga, en það var bara fyndið. Síðan keyrði Aron edrú Shadowinn heim í RVK sem er í fyrsta sinn sem eihver annar en ég keyrir Shadowinn svona langa vegalengd svo ég muni. Við komum heim til Helga þar sem hann preppaði örbylgju samlokur til að snæða og síðan er allt svart þangað til ég vaknaði í faðmlögum við hálf nakinn helga morguninn eftir og síminn minn hringjandi.
Jæja nú er alla vegana komin ein svona saga á bloggið... En hér er annað sem Bragi hefur enduruppgvötað fyrir mig... sem sagt fyrirspurnir sem ég sendi til Dr. Apa, virts barnasálfræðings... Bragi linkaði þó bara á eina fyrirspurn en ég sendi inn tvær:
Fyrirspurn 1
Fyrirspurn 2
Jæja ég er farinn á Hlöllabáta með Hjalta þetta jógúrt var ekki nógu seðjandi fyrir minn veika maga.
- Kiddó
Kristinn Painted! @ 4:50 PM
|