|
þriðjudagur, júní 24, 2003
Hey krakkar, langt síðan Kiddó hefur bloggað ekki satt ?
Matur: Ritz kex og cocoa puffs.
Lukka: Ég er að fara til Danmerkur næsta föstudag, jibbí !
Bömmer: Ég datt niður í stíflu og tognaði á báðum fótum seinasta sunnudag.
Það er núna liðnar sirka 6 vikur síðan ég bloggaði seinast. Ég kenni aðalega um leti, CS og EVE en það er allt önnur saga. Sú saga sem ég ætla að segja ykkur í dag er þegar ég fór um helgina í nátthaga í útilegu með félögunum. Það var á Laugardaginn, flestir fóru klukkan 5 um daginn en ég var of þunnur eftir föstudaginn að ég fór ekki fyrr en 8. Þegar þangað var komið þurfti ég að ná hinum strákunum á drykkjunni og byrjaði því á miklu bjórþambi og varð snemma frekar hífaður. Ég, Valli og Steini gengum upp á hæð og hlóðum vörðu sem var hrunin en týndum bjór á leiðinni upp í hlíðina. Þegar við vorum komnir aftur niður voru hinir dúddarnir búnir að spóla upp grasið á camarónum hans Hreiðars. Ég var ekki mjög sáttur því ég er soddan náttúrubarn og lét þá heyra það, en þeir hlógu bara að mér og borðuðu harðfisk. Þegar ég var búinn með allt áfengið mitt fór ég í mission til að finna týnda bjórinn. Eftir 20 mínútna leit í þúfum, grasi og malarblettum fann ég hann og drakk með bestu lyst. Ég deildi honum meira að segja með Jóni því einhver óprúttinn aumingi hafði stolið 3 bjórum af honum, sem sagt aleigu hans og ég vorkenndi honum svo að hann fékk 50/50 af týnda legendary bjórnum sem ég hafði eitt tíma í að leita að. Það gerðist nú margt meira sem ég vill ekki vera að fara ofan í saumana á, til dæmis: göngutúr upp á eldfjall, ferð í hólminn í leit að meira áfengi og óþægileg nótt sem ég eyddi í aftursætinu á Shadowinum.
En nú kemur aðal sagan!
Daginn eftir voru allir mega þunnir þrátt fyrir frábært veður, og hjálpuðust flestir við að taka saman ruslið sem saman stóð af bjórdósum, vodkaflöskum, harðfisksflökum ofl. Jón vildi ekki hjálpa því einhver hafði stolið skónum hans um nóttina og hann labbaði því um á sokkaleystunum. Þegar allt rusl var komið í poka (í annað sinn því Jón helti því úr eftir fyrstu tiltektina til að leita að skónum sínum) þá fór fólk að týnast í burtu. Þeir sem komu í Shadowinum voru Jón (í fýlu), Valli (þunnur) og Bjössi (Emils). Bjössi fattaði það að hann hafði týnt veskinu sínu þegar hann fór út í mjósund um nóttina til að synda, þannig að við tókum smá krók útí mjósund. Þegar þangað var komið fannst ekkert veski en sökum blíðunar sáum við fullt fullt fullt af fiski synda um í grynningunum. Og viti menn ég var með veiðistöng í skottinu. Ég reyndi fyrst að dorga en þeir vildu ekki éta spúninn minn. Þá gerðist alvarlegur hlutur... DUN! DUN! DUN! ... Ég tók skref afturábak til að kasta út af stönginni en fattaði síðan að það var ekkert bakvið mig nema stórt hátt steypt frárennsli frá vatninu. Ég datt þar niður 4 metra og varð blautur og allur skrámaður. Valli og Bjössi sem stóðu við hliðina á mér rétt áður en að ég datt niður kölluðu ofan í rennslið hvort að ég væri í lagi. Ég vissi ekki betur en ég hefði sloppið alveg og hóf leitina að skónum mínum sem ég sá fljóta hægt niður með rennslinu, ég náði honum sem betur fer. Ég klöngraðist upp, og Jón sem sá að hann var ekki lengur einn á sokkaleystunum tók upp gleði sína á ný. Ég og Valli reyndum að vinda gallabuxurnar mínar en ekkert gekk þannig að ég keyrði heim á blautum nærbuxunum. Þegar ég kom heim, lagði ég mig enda hafði ég ekki sofið nema 5 tíma síðustu nótt. Þegar ég vaknaði þá var ég allur lurkum laminn, hrökklaðist fram og hringdi í lækni sem batt um vinstri fótinn á mér 20 mínútum síðar. Og þetta er sagan af því af hverju ég er heima að blogga en ekki í vinnunni, út af leiðindum!
Og já ég fer til Danmerkur á föstudag, að drekka danskan bjór og stykkna í hitabyljgjunni sem geisar þar núna, vonandi skemmta sér allir hér á klakanum meðan ég er í burtu.
Kærlig Hilsen, Kiddó!
Kristinn Painted! @ 4:11 PM
|