|
fimmtudagur, maí 08, 2003
Bitter-sweet Thursday
Ég fór með shadowinn í stillingu í morgun, langþráð aðgerð sem ég hefði átt að gera fyrir mörgum mánuðum síðan. En ég fór líka til tannlæknis og er nú að drepast í kjaftinum, helvítis skottulæknirinn er ekki bara ófyndinn heldur líka leiðinlegur. Öööö... já! lítið á þetta. Síða sem ég gerði fyrir FISH clanið sem ég og Emil stofnuðum í counter strike.
Kristinn Painted! @ 4:26 PM
miðvikudagur, maí 07, 2003
Ég er farinn að halda...
... Að hárið á mér sé farið að þynnast.
Ég var að fá mér ókeypis heimsíðusvæði hjá Go.is, lítið á það hérna
Í f´ramtíðinni mun ég setja upp eitthvað fallegt og uppbyggilegt þarna.
- Kiddó
Kristinn Painted! @ 4:15 AM
mánudagur, maí 05, 2003
Svo að allir viti það ...
Þá er ég að gera róttækar tilraunir á blogginu mínu núna, það er það bilað fyrir að það getur ekki skemmst meira.
Það sem ég er að reyna að gera er að setja upp svona messageboard.
Ef að bloggið mitt hrynur eftir þessar tilraunir, þá var gaman að þekkja ykkur.
Ekki það að ég ætli að fremja sjálfsmorð eða eitthvað, bara bloggið deyr.
Update...
#1 Linkarnir eru komnir checka hvort þeir virki.
#2 Eureka! Þeir virka en litirnir á foruminu eru glataðir, get ekki séð það sem ég skrifaði.
#3 Af hverju þarf ég alltaf að vera fullur þegar ég er að fikta í template.
#4 Ok litirnir komnir í lag, og mynd af Dodge Shadow/Plymouth Sundance repair manual kominn á síðuna.
#5 Ekki enn kominn í land er enn að setja upp svona skoðanakönnunardæmi.
#6 Ég held þetta sé safe ef ekki, þá kenni ég um bjór og lélegt uppeldi !
Kristinn Painted! @ 5:17 AM
Væri ekki gaman ef .það væri innihaldsupplýsingar á sígarettupökkum ?
Matur: Lucky Charms.
Lukka: Ég er búinn að sjá fullt af nýjum þáttum, heyra fullt af nýjum lögum og skoða fullt af klámmyndum síðan ég fékk dc++.
Bömmer: Tryggingar shadowsins nálgast óðfluga, 46.000kr, það er dýrt að eiga kagga.
Ég fór í gær með Emil í Kringlubíó á myndina "Dreamcatcher" eftir Stephen King. Maður var búinn að sjá trailerinn, og leit út fyrir að vera hörkumynd. Ég hef ekki góða reynslu samt af Stephen King myndum, eiginlega flestar myndir sem ég hef séð eftir bókum hans eru lélegar (En ekki Shining). Graveyard shift, Pet semetary og Shining (sem Stepen leikstýrði sjálfur, ojjj) eru allar afburðalélegar myndir, sérstaklega Pet Semetary þó. Við settumst niður í bíóinu og horfðum á um 15 mínútur af auglýsingum og einn Animatrix þátt og síðan byrjaði myndin. Ég vill náttúrulega ekki eyðileggja söguþráðinn fyrir neinum Stephen King aðdáenda þannig að ég segi bara: Hún byrjaði mjög vel, mjög mjög vel, komið svona mysterious þema í kringum sögupersónurnar, en eftir svona klukkutíma þá varð hún bara verri og verri og meira og meira bull. Meira að segja í sumum atriðum sem áttu að vera ógeðslega dramatísk og scary var ég skellihlægjandi af því að þetta var svo fáránlegt. Það er bara mitt álit á myndinni. Þannig að fyrsti klukkutíminn fær alveg 3-4 stjörnur, en seinni parturinn tæpar 2, mjög tæpar.
 Running away? You yellow . . .
What Monty Python Character are you? brought to you by Quizilla
Annars er lítið að gerast í lífi mínu, bara að læra og ... (hóst! hóst!) ... Hvað var þetta. Já ég er farinn að hlakka til að komast í Stykkishólminn gamla góða þar sem ég get slakað á og lifað sveitlífinu með sveitastæl.
- Kiddó
Kristinn Painted! @ 2:16 AM
laugardagur, maí 03, 2003
Yo yo yo, where is my ho ?
Fró fró on the locó.
Matur: Nóg til að éta á Casa Kiddó til tilbreytingar, kex, brauð, hakk, mjólk osfrv.
Lukka: Ég komst á Top 15 á Hrollur serverinu í CS, Top 15 / 2500 eða eitthvað, nokk gott.
Bömmer: Lög um áfengi á Íslandi leyfa ekki fólki að notfæra sér farartæki undir áhrifum.
Ég hef alltaf litið á sjálfan mig sem frekar heiðarlega manneskju. Ég legg það ekki í vana minn að stela hlutum, ljúga um mikilvæga hluti (bara svona þegar ég er að steypa í fólki) og sýni kurteisilegt viðmót við gamalt fólk og afgreiðslufólk. En stundum er spurningin sú hvort að heiðarleikinn nái að yfirvinna þráina á "Get rich quick" uppákomum. Málið er nefnilega það að ég fór í bankann í hólagarði á miðvikudaginn með ávísun upp á 2500 sem emil hafði látið mig fá í skuld. Ég beið í röðinni eftir að kæmi að mér, framseldi ávísunina og beið eftir peningunum.
Afgreiðslukonan: "Hérna er þetta, 5, 10, 15, 20, 25 þúsund, takk fyrir".
... Ég fraus í svona 3-4 sekúndur, horfði á peningana, vitandi að þessar 2500kr myndu endast stutt en 1000% aukning á þeim myndu sjá vel fyrir mér.
Kiddó: "Ööö... Þetta er einhver misskilningur, ég á bara að fá 2500kr".
Afgreiðslukonan: "Já það er rétt hjá þér".
Skildi 22500kr frá seðlabúntinu.
Afgreiðslukonan: "Hérna gjörðu svo vel"
Kiddó: "Ok, takk kærlega".
Afgreiðslukonan: "Nei, þakka þér".
Ég vissi það að aumingja stelpan hefði þurft að borga þetta af sínum eigin launum og gat ekki fengið þetta af mér. Jæja þessar 22500kr fara bara í "Karma-sjóðinn", sem er sparisjóður Hindúa.
En ég er ekki Hindúi.
- Kiddó
Kristinn Painted! @ 1:58 AM
|