þriðjudagur, apríl 29, 2003

Dagurinn í dag er þreytulegur krakkar mínir...

En ekki eins þreytandi og þetta

Matur: Brauð með mysing og mjólk með að drekka.
Lukka: Seinasti skóladagurinn í FB var í dag.
Bömmer: Ég helti góð kaup appelsínusafa í fyrsta kaffibollann minn í staðinn fyrir mjólk, vegna ofþreytu.

Ég verð að fara að láta líta á hausinn á mér. Stundum þegar ég er ógeðslega þreyttur og er að reyna að sofna gengur ekkert. Ég ligg í svona 2-3 tíma veltandi mér og hugsandi um hvað mér leiðist mikið. Þannig var gærnótt. Ég sofnaði ekki fyrr en um 5(fór að sofa 2) og fór síðan í skólann klukkan 8, alveg að sofna. En vinur minn kaffi bregst mér ekki, ég helti upp á fullan hitabrúsa núna áðan og er búinn með 3 bolla, og er ekkert þreyttur lengur. Og síðan var ég í CS og var bara að owna með geðveikt score og alles. Ég vill þakka kaffinu fyrir það að gefa mér my skillz aftur eftir að ég glataði þeim í páskafríinu.
Helgi gat ekki bloggað vegna tæknigalla í blogger.com og bið verður á endurkomu hans í bloggheiminn.
Bragi bauð mér að vera með í hljómsveitinni hans og Sigmars. Þar sem Bragi verður á trommum, Sigmar á gítar, Siggi hóra á bassa og ykkar einlægur TEXTAHÖFUNDUR (og mögulega söngvari). Þetta er stórt skref upp frá rótara stöðu minni sem ég var búinn að tryggja mér í bandinu, en af hverju þeir báðu mig að taka þetta að mér er mystery to me. Ég finn lykt af plotti.

Which Firearm are you?
brought to you byStan Ryker



Og nú dáldið spes dæmi...

TOPP TÍU LISTI YFIR HLUTI SEM FARA Í TAUGARNAR Á KIDDÓ:
10. Frekir, dónalegir krakkar.
9. Vera skotinn með AWP í Counter-strike.
8. Hella niður mjólk vegna framleiðslugalla í reykjavíkur-fernum.
7. Skúra.
6. Tryggingasölumenn.
5. Eiga ekki pening fyrir helstu nauðsynjum.
4. Detta í bleytu.
3. Talvan bilar.
2. Geta ekki sofnað.
1. Shadowinn bilar !!!

- Kiddó

Kristinn Painted! @ 5:18 PM


mánudagur, apríl 28, 2003

Silly silly game Kevin Bacon game...

Helgi fékk mig til að fara í leikinn 3000 miles to Kevin Bacon, sem er þannig að einn segir nafn á leikara en hinn á að tengja Kevin Bacon við leikarann með því að segja hann lék í þessari mynd með þessum sem lék með þessum í þessari mynd með Kevin Bacon. Stupid leikur semsagt en ég tók þátt. Helgi byrjaði að segja: Billy Crystal.

h3lgi> Billy cristal
Kiddo> Og hver er það ?
h3lgi> mynd .... hmmmm my giant :Þ
Kiddo> já
h3lgi> amm hann leikur í svo mörgum myndum mar hehe
Kiddo> úff gefst upp

Eitt núll fyrir Helga en nú átti ég að segja leikara, ég valdi: Antonio Banderas.

Kiddo> Antonio Banderas
h3lgi> tengja bacon við hann ?
Kiddo> já
Kiddo> haha geturu það ekki
h3lgi> bíddu
h3lgi> ..
h3lgi> er að hugsa :/
h3lgi> er kominn slatta frá gaurnum mar
Kiddo> ha ?
Kiddo> Bacon
h3lgi> amm
Kiddo> impossible! impossible I tell you! Your mad to try this!
h3lgi> haha
h3lgi> YEA !!!!
h3lgi> HAHAHAHAHAHA
h3lgi> NOOOOOOOOO
Kiddo> gastu þetta ?
h3lgi> ruglaðist :Þ
h3lgi> ok klárt !!!!
h3lgi> banderas lék í desperato með selma hayak sem lék með george clooney í from dusk til dawn john travolta lék með honum í the thin red line með travolta lék nickolas nokkur cage í myndinni face off í myndinni city of angels lék kona með honum sem heitir Elisabeth Shue hún lék svo í mynd sem heitir hollow man ÞAR LÉK BACONINN!!!!!! HAHHEHE
Kiddo> þú ert geðveikur
h3lgi> hahahaha
h3lgi> ok now me !!!

Staðan tvö núll fyrir Helga og hann átti að spyrja, ég vissi ekkert um Bacon þannig að ég ákvað að svindla með því að nota Yahoo.

h3lgi> finna einkern maaaaaaaaaaaad
h3lgi> sko
h3lgi> Ed Harris :Þ
Kiddo> æi
h3lgi> try it
h3lgi> eins easy og það gerist !
Kiddo> ok
Kiddo> Bacon lék í Apollo 13 með Tom Hanks sem lék með Ed Harris í Apollo 13
Kiddo> hehe loser
h3lgi> haha
h3lgi> ;D
Kiddo> Yahoo movie internet database schmuck
h3lgi> ætlaði að plata þig
h3lgi> where !!!!!!
Kiddo> http://movies.yahoo.com/shop?d=hv&cf=info&id=1800020307&intl=us
h3lgi> ég nota www.imdb.com
Kiddo> HA! þú svindlaðir líka !
h3lgi> hahaha
h3lgi> helduru að ég hefði getað þetta !!!
h3lgi> lol
h3lgi> ég veit ekki einu sinni hver elisabeth shue er :Þ
Kiddo> helvítið þitt
h3lgi> :Þ

Og þar sem báðir aðilar gerðust sekir um svindl þá endaði leikurinn með jafntefli segi ég alla vegana Helgi var ekki sammála.

Kiddo> Er þetta þá ekki jafntefli því við svindluðum báðir ?
h3lgi> nei
h3lgi> ég fór svo langa leið mar
Kiddo> Já en ég ...
h3lgi> ég gaf þér leikara sem leikur með honum í mynd !
Kiddo> þú vissir það ekkert mar
h3lgi> ég hefði getað þetta án þess að nota hitt
h3lgi> nei
h3lgi> fór og fann einkern leikara á movie data base mar
Kiddo> já jafntefli it is

Ég fæ náttúrulega seinustu orðinn því þetta er mitt blogg.

Síðan plataði ég Helga til að blogga upp á old times sake, hann er að því núna og ég get ekki beðið eftir að lesa safaríkar frásagnir úr lífi Ericsson. En þá gerðist þetta:

h3lgi> http://mr-ericson.blogspot.com/
Kiddo> ok
Kiddo> sé ekkert þar
h3lgi> OMG OMG OMG
Kiddo> hvað?
h3lgi> Oops, your blog was not quite ready to be published. Please try again.[more info
h3lgi> WHOOOOOOOOOOOOOOOOOT
Kiddo> hahahhaha
h3lgi> var búinn að gera mega ræðu !!!!
Kiddo> LOL
Kiddo> alltaf að ske fyrir mig
h3lgi> DRASL
h3lgi> hvað geri ég
Kiddo> getur ekkert gert its lost :)
Kiddo> I know your pain
h3lgi> noooooooooo

Tíminn verður að leiða í ljós hvort hann bloggaði eitthvað eða ekki, því ég nenni ekki að updatea þetta aftur.

- Kiddó

Kristinn Painted! @ 2:36 AM


sunnudagur, apríl 27, 2003

Nýkominn heim eftir að skutla Emil, klukkan er 3:45, í dag er 27. apríl, 2003.

Þegar ég keyrði Shadowinn upp að blokkinni áðan þá sá ég að það var Taxi parkaður fyrir utan húsið. Tómur. Sennilega að bíða eftir að einhver sem hefur hlaupið upp kæmi niður með peninga eftir að hún skutlaði þeim heim af djamminu. Mér þótti þetta ekkert óvenjulegt, því þetta var ekkert óvenjulegt. Ég hélt áfram inn, opnaði hurðina með langa lyklinum og gekk að lyftunni þar sem ég þrýsti á hnappinn til þess að fá lyftuna niður á jarðhæð. En hún kom ekki. Ég hlustaði eftir lyftuhljóðum en ekkert heyrðist. Ég dró þá ályktun að djamm-persónan hafi ákveðið að stöðva lyftuna svo hún færi ekki af hæðinni hennar meðan hún sækti peninga fyrir taxanum. Ég beið átekta í nokkurn tíma en ekkert bólaði á lyftunni eða djamm-persónunni. Ég ákvað eftir svona 3 mínútna þolinmæðislega bið að taka mér stöðu þannig að þegar eða ef djamm-persónan kæmi niður myndi hún sjá mig með reiðissvip stuttu frá lyftuhurðinni. Ég beið með svipinn átekta í 3 aðrar mínútur og ekki kom djamm-persónan. Þá gafst ég upp, djamm-persónan vann þetta þolinmæðisstríð sem hún vissi sennilega ekki af, og aumingja Taxikonan örugglega að sofna eftir svona langa bið. Ég hóf förina upp á sjöttu hæð fótgangandi upp stigann. Þegar ég var kominn a fyrstu hæð, þreyttur og pirraðu ákvað ég að ég gæti alla vegana tekið smá revenge út á djamm-persónunni. Þannig að ég ýtti á lyftutakkann á öllum hæðum upp að sjöttu hæð svo hún myndi stoppa á öllum hæðum sem myndi lengja för hennar niður um alla vegana mínútu. Þegar ég kom upp á sjöttu hæð ýtti ég á takkann þar líka, lyftan var greinilega á sjöundu hæð. Ég gekk að íbúðinni, og heyrði þá lyftuna fara af stað. Hræddur um að djamm-persónan myndi ákveða að líta út þegar hún myndi stoppa á sjöttu hæð en engin væri þar fyrir utan lyftuna, líta út og sjá mig og gruna mig þar með um að ýta á ala takkanna, þá skaust ég eins og byssukúla að hurðinni minni. Ég missti lyklana á dramatískan hátt fyrir utan hurðina, og þá heyrði ég að lyftan opnaðist á hæðinni minni. Ég greip lyklana þrumaði stutta lyklinum í skránna og stökk inn með miklum skell. Andaði léttar þegar ég komst inn en fannst ég vera skyldugur til þess að segja einhverjum frá þessu, þannig endaði þetta hér.

- Kiddó

Kristinn Painted! @ 3:56 AM


föstudagur, apríl 25, 2003

Hæ krakkar, ég er að jafna mig eftir Counter Strike heilablóðfall...

... Engar áhyggjur, ég lifi.

Matur: Samlokur með pepperóní
Lukka: Kominn með dc++ í gang og get náð í tónlist og þætti á innanlands downloadi.
Bömmer: Ég er sóði.

Í dag fór ég í skólann, ekki á réttum tíma samt ég svaf yfir mig í grunnteikningu eins og svo oft áður en það er í lagi ég er búinn með allt nema að leiðrétta einhver verkefni sem ég geri bara á þriðjudaginn. Talandi um þriðjudaginn, í dag er föstudagur. Nú er bara að teygja úr fótunum og leyfa góðu hlutum helgarinnar að gerast. Hvað þessir góðu hlutir eru er alveg hulið fyrir mér en ég hefði ekkert á móti því að drekka mig fullann og vakna í skurði á morgun. Það er ekki mögulegt vegna aldurstakmarka íslendinga á áfengisverslun. Þetta er leiðinlegt tölum um eitthvað áhugavert.

Úff ég hef ekkert að segja mar. Ömm... Hér kemur ljóð:

Kolsýrt vatn í bland við sykur,
efni sem E150d og sýra,
þetta hljómar eins og eitur drykkur,
fer þetta illa með nýra?

Hvaða sull getur þetta verið,
athugum í rauða kverið,
ekkert um það nýverið,
en hvað er þá svarið?

Ég vill vita þetta, ég fer að góla,
vísbending myndi bregða mér í brók,
þá það félagi, hún er kóla,
er þetta ekki þá bara kók?





Ég er Arngrímur!
Ég er búinn með öll verkefni en þau eru öll týnd. Helþrymja er framtíðin. Ég ætla mér að klára MR með vottorð upp á mígreni og þannig þarf ég aldrei að mæta í skólann. Ég ætla að verða myllari þegar ég verð stór.


Taktu "Hvaða nemandi í 4.B ert þú?" prófið






Hver er Arngrímur ?!?!?

Jæja læt þetta duga, næst yrki ég um eitthvað annað drasl sem stendur á borðinu mínu. Ciao!

- Kiddó

Kristinn Painted! @ 7:22 PM


miðvikudagur, apríl 23, 2003

Jæja Krakkar ég er kominn aftur í Reykjavík.

Spillingarbæli Íslands.

Matur: Kók og kjötloka.
Lukka: Ég var í Stykkishólmi um páskafríið.
Bömmer: Ég var í Stykkishólmi um páskafríið.

Ég er núna í skólanum. Ég slapp snemma úr jarðfræði því ég dreif mig að skrifa verkefni um Elliðárdalinn, skilaði því og hljóp sem fætur toga til að pissa. Helgi hefur líst því yfir að hann ætlar að ganga til liðs við FISH-menn í counter strike. Hann er ágætur svosem, ætli við leyfum honum ekki að vera í A-liðinu. Já FISH er orðið svo umfangsmikið að við erum komnir með A og B lið. Fyrir svona mánuði vorum það bara ég og Emil sem stóðum í því að vera inn á serverum og bulla í nördum sem urðu oft sárir og fóru að væla en nú erum við orðnir alla vegana 8. Nóg um það ég var í hólminum.
Í Stykkishólmi skrifaði ég óþarflega langa söguritgerð, drakk mig nokkrum sinnum fullan, rúntaði, spilaði spuna, svaf, horfði á bíórásina, horfði á loftið, gekk með hundinn, lét mér leiðast, rúntaði, fór í jarðarför, meiddi mig á hnénu, drap flugu, horfði á vídeó, talaði og rúntaði. Stykkishólmur, a magical place beyond time. Hvað sem það nú þýðir.

S.B.B.F. UPDATE:Þegar formaður S.B.B.F kom upp í Dúfnahóla í gær sá hann að "Mint Condition" Krówki pokinn sem hann hafði sparað fyrir Bjarney hafði verið opnaður og ó-mint-conditionaður. Nokkrir molar höfðu horfið en engin(n) hefur gefið sig fram sem þjófurinn. Formaður mun líta í þetta glæpamál og upplýsa sem hann heitir Kiddó, og ef skaðabætur fást ekki fyrir pokann mun S.B.B.F taka á sig fulla ábyrgð og endurgreiða þennan eina gamla poka með tveimur nýjum er nýjar birgðir koma til landsins.

Ég fékk líka skemmtilegt E-mail

From:
Subject: ** Your approval. **
Date: Wed, 23 Apr 2003 12:36:55 +1100
To: Stefanie-Theresa

akinesia , lack of movement
Your home refinance loan is approved for cash!
To get your approved amount go here.
Use the cash any way you like!
Consolidate bills, pay off credit cards, or buy something you really want!
To get your approved cash amount go here!

Í fyrsta lagi heiti ég ekki Stefanie Theresa og í öðru lagi hef ég ekki hugmynd um hvað "akinesia, lack of movement" þýðir eða hvort því er beint að mér.

You are Bruce Lee.
Bruce Lee


Which Martial Arts Movie Star Are You?
brought to you by Quizilla

- Kiddó

Kristinn Painted! @ 11:09 AM


föstudagur, apríl 11, 2003

Ég var að reyna að gera íslenskar gæsalappir og þurrkaði út ritgerð um mína "Near death experience", hún verður að bíða... Ég hata svona Blogger fuck ups...

Kristinn Painted! @ 2:30 AM


miðvikudagur, apríl 09, 2003

Þrír hlutir:
1. Dúnkoddi er kominn með yfir 500 heimsóknir og þar með slæ ég út síðu Odds! Þið vitið hvað ég er vinsæll og Oddur ekki.
2. Bragi skal koma með mér til Stykkishólms í páskafríinu annars gerast slæmir hlutir.
3. Ég er helvítis kanínan í Purple pussy teiknimyndasögunni.

That is all...


you are...
Betty Bunny!
Seemingly sweet and innocent, but at your core is a
dark and sinister she-beast. You're kind to
your friends, and always have something nice to
say. If anyone gets too close though, they'll
most likely be burned. Also, you kinda' like
flowers!


Which Purple Pussy character are you?
brought to you by Quizilla

Kristinn Painted! @ 5:39 PM


föstudagur, apríl 04, 2003

Hæ krakkar, ég er kominn aftur í skólann og er að skrifa blogg.

Hvað rímar við blogg?

Sniðugheit dagsins: Kominn aftur í skólann.
Lukka dagsins: Ég var að klára Grunnteikni áfanga dauðans á undan áætlun.
Bömmer dagsins: Ég er enn þá veikur.

Ég hef ákveðið að taka út Matur dagsins dálkinn þar sem ég endist stundum heilu dagana án þess að éta neitt markvert og ef það er eitthvað eru það núðlur eða tekex. Ég er núna officiallt búinn að vera veikur í viku, hutur sem ég hef ekki áorkað síðan ég var hvítvoðungur. Ég hósta ennþá einhverjum helvítis hrygluhósta sem vekur óhug skólafélaga minna þegar þeir ganga fram hjá. Þeir halda víst að ég sé með Asíu inflúensuna. Þetta lyklaborð er svo cheap, L virkar ekki í eitt af hverjum 5 skiptum. Hræðilegur galli. Það er lítið að frétta af mér nema að ég hef legið sveittur heima og horft á iraq, spilað CS og talað við sjálfan mig eftir langar einveru stundir. Hjalti kemur nefniega ekki heim heilu dagana og ég sit heima hóstandi upp lungum og nýrum. En það gerðist þó eitt sniðugt. Ég var að deyja úr eiðindum og var virkilega að pæla að stökkva fram af svölum þegar ég ákvað að leggja í leiðangur út í bónusvídeó að leigja spólur. En ég vissi að hinum megin í Breiðholtinu er eiga sem heitir Toppmyndir sem leigir nýja og gamla á 250kr. Þangað kæmist ég ekki án Shadowsins sem var niðri ógangfær eins og svo oft áður. Ég ákvað samt að gefa honum séns. Fór niður og gerði svona Man-Machine-Mind-Meld (Eða MMMM). Ég fann sársauka hans og skynjaði að hann var bara að bregðast við veikindum mínum. Hann var veikur eins og ég! Þegar svona sterk tilfinningabönd eru milli manns og bíls getur svona samband myndast greinilega, ótrúlegt en satt. Ég náði að sannfæra hann að það væri víti til batnaðar að ég myndi fá spólu frá Toppmyndum, og viti menn, hann rauk í gang og var með 1/4 tank af bensíni sem er óvenju mikið. Ó Shadow hvar væri ég án þín, ha ha ha!

Er ég enn þá með óráði ?

- Kiddó

Kristinn Painted! @ 11:18 AM


þriðjudagur, apríl 01, 2003

Ég er búinn að vera veikur með hálsbólgu og eyrnabólgu síðan á Laugardag og mér finnst mér ekkert vera að batna...
Hljóðið bilaði í tölvunni um daginn en ég náði að laga það 3 dögum seinna...
Shadowinn bilaði á Laugardaginn, hann er enn þá bilaður...
Ég er að verða bilaður, hef ekkert að gera nema horfa á gamlar 80's myndir sem Hjalti á eða spila CS...
Setti inn tvo nýja links. Fyrsti er heimasíðan hjá Lax, meðlim í FISH claninu sem ég og Emil erum með í CS, hann er létt klikkaður og finnst ekkert skemmtilegra en að "hnífa" gaura. Seinni er á heimasíðu Player versus Player teiknimyndasögunar, en ég hef verið að lesa hana í 2 ár núna og langaði að deila henni með heiminum(Nördahúmor dauðans)...
Þeir sem hafa áhuga á því að sjá mér batna mega senda mér sýklalyf...
Þeir sem hafa áhuga á því að sjá mig veikjast meira mega senda mér sýklavopn...
Þetta var bara slappur brandari, ekki senda mér sýklavopn...

- Kiddó

Kristinn Painted! @ 3:16 AM


Hver er ég?

Nafn: Kiddó
Aldur: 19
Staður: Rvk/Breiðholt
e-m@il: kiddo@bughunt.net
Hár: Já

The WeatherPixie

Vinir

Ericsson
Bragi
Hjalti
Oddur
Bjarney
Lalli
Þórdís
Súsanna
Viggó
Tobba
Tinna
Keli
Óli

Teljari

Linkar

FISH
Ævintýri Kiddó!
mBlog
Landið mitt

Spjall

Powered by TagBoard Message Board
Name

URL or Email

Messages(smilies)



Archives

12/01/2002 - 01/01/2003
01/01/2003 - 02/01/2003
02/01/2003 - 03/01/2003
03/01/2003 - 04/01/2003
04/01/2003 - 05/01/2003
05/01/2003 - 06/01/2003
06/01/2003 - 07/01/2003
09/01/2003 - 10/01/2003
10/01/2003 - 11/01/2003
11/01/2003 - 12/01/2003
12/01/2003 - 01/01/2004
01/01/2004 - 02/01/2004
02/01/2004 - 03/01/2004
03/01/2004 - 04/01/2004
04/01/2004 - 05/01/2004
05/01/2004 - 06/01/2004
06/01/2004 - 07/01/2004
07/01/2004 - 08/01/2004
09/01/2004 - 10/01/2004
10/01/2004 - 11/01/2004
11/01/2004 - 12/01/2004
12/01/2004 - 01/01/2005
02/01/2005 - 03/01/2005
05/01/2005 - 06/01/2005
10/01/2005 - 11/01/2005