föstudagur, mars 28, 2003

asshole
your asshole.


What swear word are you?
brought to you by Quizilla

Kristinn Painted! @ 3:01 AM


mánudagur, mars 24, 2003

Jæja krakkar mínir, talvan mín má ekki bila smá og þá byrjar stríð.

Vonandi bilar hún ekki aftur... Vonandi... 7, 9, 13...

Matur dagsins 24/03/03: Pastabakki í FB og eplasvali með að drekka.
Lukka dagsins 24/03/03: Talvan er kominn aftur, þrisvar sinnum öflugri.
Bömmer dagsins 24/03/03: Talvan er búin að vera biluð í viku, ég hef verið einstaklega aðgerðalaus.

Það hefur margt og mikið drifið á mína daga síðan talvan bilaði og samband mitt við umheiminn rofnaði... En því miður vegna lélegs minnis fáið þið aldrei að vita helminginn af því. Það sem gerðist hins vegar þessa helgi er að Jón og Hreiðar komu og gistu hérna eina nótt því þá vantaði samastað í bænum á fyllerísferð sinni(Sem er algeng ferðatýpa sem allir Hólmarar fara í alla vegana árlega). En það merkilegra sem gerðist var að ég var stoppaður af löggunni þegar ég skutlaði þeim niður í bæ. Ég var búinn með tvo bjóra og sagði lögguskröttunum það hreinskilnislega og var tekinn upp í bíl til að blása. Ekkert fannst svo ég fékk að cruisa niður í bæ óáreittur. Seinna um nóttina komu Jón og Hreiðar með frekan hávaðasaman kvennmann heim sem ég neyddist til að hlusta á blaðra og kvarta innan úr rúmi þar sem ég var að reyna að sofa í engu partýstuði, bara stuði.

Á Laugardaginn var bara chillað með Emil í Counter strike og horft á stríðið og horft á Star Trek þætti sem hann leigði. Þegar ég keyrði heim um nóttina þá mætti ég löggu. Ég hugsaði í smá stund hvort hún myndi stoppa mig en ég slapp við það og keyrði heim á leið. Þegar ég var kominn 2km þá kom hún aftan að mér með blikk ljósin. Ég var látin blása(í mínum bíl í rauninni núna) og ekkert fannst, ég keyrði heim bölvandi grunsamlega svölu Shadowbifreiðinni sem er örugglega ástæðan fyrir stopp bullinu. Ef ég væri á Nissan Micru með trefil um hálsinn og yfirvaraskegg væri ég bókað ekki stoppaður. Nóg um lögreglu mismunun.

Ég stal öðru svölu prófi af Bjarney í tilefni dagsins(ég á enn eftir að láta hana fá krówkiið)... Þetta próf sýnir hvernig japönsk teiknimyndapersóna ég er...

Villian
You're A Villian!
You evil person, you. You have a dark side to you.
Your destiny is world destruction/domination.
Just so long as those pesky heros stay out of
your way.


What Type Of Anime Character Are You?
brought to you by Quizilla

Bloggið er ennþá fucked up, ekkert sem ég get gert í því... en ég alla vegana kominn með teljarann og veðurstelpuna mína á réttan stað... Bara ef bloggið væri það núna... Talandi um veðurtstelpuna hún sýnir ykkur hvernig á að klæðast(ef þú ert stelpa, ef þú ert strákur þá er það up to you) eftir því hvernig veðrið í reykjavík er, notsamlegt...

Já meðan ég man... Talvan er orðinn 2,1ghz með 256mb ddr minni... öflugt ekki satt...

- Kiddó

Kristinn Painted! @ 9:23 PM


laugardagur, mars 15, 2003

AARRGG!!! Ég hef gert eitthvað hræðilegt með bloggið mitt. Helvítis fikt í mér í gær... Var bara að sjá þetta núna og mundi hvað ég gerði í gær... Ekkert við því að gera...

Enn alla vegana, ég ætla aftur á fyllerí í kvöld og ég er....















Physically,
I'm the strongest of the group. I'm always self-confident
and, at times, seem somewhat arrogant. Emotions don't sit
well with me, but I've got them just the same. Because I'm
more of a man of actions, I'm most comfortable communicating
the deeper feelings in a good workout or sports. I can be
somewhat enigmatic... seperate from others to blow off steam.
I've got a short temper you know, and if you catch me in the
wrong mood, you just may get a sai between your legs!






Gaman af þessu, stal þessu af síðunni hennar Bjarneyar... Skemmtið ykkur um helgina og ekki fikta í Templateunum ykkar...

- Kiddó

Kristinn Painted! @ 4:24 PM


Ég er að reyna að laga bloggið, þó ég sé í engu ástandi til þess né neins...

#1 Tilraun: Stay tuned.
#2 Tilraun: Stay tuned for more.
#3 Tilraun: Gah! ég get þetta ekki!
#4 Tilraun: Ég held ég sé með breakthrough!
#5 Tilraun: Weatherpixie er kominn upp, hvað með teljara draslið?
#6 Tilraun: Hahaha! Þetta er fáránlegt, ég er farinn að sofa...

- Kiddó

Kristinn Painted! @ 3:08 AM


föstudagur, mars 14, 2003

Special Fimmtudagurinn 13 blogg: "Sagan af leiðinlega fylleríinu. Fyrsti partur"

Hér á eftir fylgir saga sem aldrei er sögð of oft, því sögur af leiðinlegum hlutum þurfa ekki endilega að vera leiðinlegar. Þessi saga er einmitt um það þegar ég og Bragi ætluðum að hittast eitt Miðvikudagskvöld og fara á fyllerí, og hvað gerðist það kvöld...

Þetta var votur vordagur í miðjum mars fyrir u.þ.b. ári síðan. Ég hafði mælt mér mót við kunningja minn, Bragi að nafni, í kringlunni þar sem við ætluðum að kaupa okkur bjór og gera okkur glaðan dag. Þegar ég kom í kringluna hringdi Bragi í mig og ætlaði að segja mér hvar hann væri staddur í kringlunni en þá varð síminn hans batteríslaus(óhapp #1). Ég byrjaði örvæntingarfulla leit mína að hávaxna hárprúða vini mínum og til allrar hamingju gerði ég það eftir nokkura mínútna leit. Við tókum stefnuna í Bónus þar sem við keyptum kex og mjólk og borðuðum það með bestu list á stjörnutorgi. Við lásum utan á kexpakkan og komumst að því að þetta var ekki súkkulaði kex heldur Mokkúlaði kex, sem ég veit ekki hvað er(óhapp #2). Við fórum í hraðbanka og tókum út pening, þegar ég fékk kvittunina í hendurnar stóð á tímasetningunni að það væri ein mínúta þangað til ríkið lokaði. Við hlupum sem brjálaðir en náðum ekki í tæka tíð(óhapp #3). Við löbbuðum út og ákváðum að taka strætó í smáralind því ríkið þar lokar 30mín seinna. Þegar við komum 30m frá strætóskýlinu sáum við strætóin okkar fara fram hjá(óhapp #4). Við tókum því annan strætó sem færi á sama stað en aðeins lengri leið... Eða það héldum við því við enduðum í Garðabæ, sveitbæ höfuðborgarsvæðisins(óhapp #5). Við Tókum strætó til baka til að reyna að ná ríkinu en þegar við sáum að það var vonlaust þá var aðeins ein leið eftir. Það er ríkið í mosfellsbæ sem lokar klukkan 7. Við hringdum í Óla og fengum hann til að skutla okkur fyrir kippu af bjór, og viti menn við náðum 2mín fyrir lokun og Bragi komst inn, húrra!

Hlutirnir litu vel út. Við vorum komnir með áfengið í hendurnar og glöddumst mikið, og óafvitandi um leiðinlega fylleríið sem átti eftir að skella á skáluðum við í bjór og brostum...


Næsta Fimmtudaginn 13 kemur Annar partur... nema Bragi vilji taka upp þráðinn...

- Kiddó

Kristinn Painted! @ 3:03 AM


miðvikudagur, mars 12, 2003

Hæ krakkar, hvað er uppi í hverfinu?

Hús og götur held ég...

Matur dagsins 12/03/03: Hef ekkert étið enn þá, elda mér eitthvað sniðugt í kvöld.
Lukka dagsins 12/03/03: Ömmm... það var ekki búið að stela bílnum mínum í morgun.
Bömmer dagsins 12/03/03: Ég er veikur á ný, það er eins og ég sé með moldvörpu í hausnum.

Í gær fór ég í Bílanaust til að kaupa aternator reim og víra til að tengja nýju hátalarana mína, og þá sá ég svona álímanlega bílaklukku sem maður límir inn í bílinn. Ég stóðst ekki mátið og keypti hana, límdi hana svo svið hliðina á álímanlega hitamælinum mínum. Nú vantar mig bara álímanlegan áttavita og þá get ég farið í langar reisur og alltaf vitað hvað hitinn er mikill, hvað klukkan er og í hvað átt ég er að keyra.. All svakalegt dæmi.
Ég fór síðan i afmæli til Arný frænku í Hafnarfirði. Ég keypti svona rósavönd fyrir hana sem var pakkaður inn svo ég þurfti ekki að standa í neinu stússi. Eða hvað. Það var kringlótt strikamerki límt á umbúðirnar sem ég náði bara ekki af fyrir mitt litla líf. Svo ég málaði það gult og teiknaði broskall á það. Ég er svo listrænn. Síðan skrifaði ég afmæliskveðju á miða, þar sem ég óskaði henni til hamingju með 21 árs afmælið.
Eftir afmælið fór ég með sígarettur til mömmu á Landsspítalann. Ég sagði henni frá broskallinum(ég er virkilega stoltur af þessum broskall) og kortinu sem ég skrifaði. Þá sagði hún mér að Árný væri ekki 21 ára heldur 22 ára... Maður er nú bara mannlegur.
En núna er ég veikur og er ekki að höndla það hvað mér leiðist mikið, Hjalti hefur farið tvisvar út meðan ég var með rænu og í bæði skiptin reyndi ég að kasta vatnsblöðru af svölunum í bílinn hans en hitti aldrei. Hann þarf að koma heim fyrr eða síðar, þá skal ég hitta í hann. Rétt í þessu var hann að labba inn að ná í vasareikni, um leið og hann fer út kasta ég í hann hehe. En sú tilviljun.

Á meðan ég bíð eftir að hann fari út svo ég geti sagt ykkur hvort ég hitti eða ekki, þá ætla ég að taka nokkur dæmi um hvernig sumar setningar byrja cool en geta endað ócool ef maður passar sig ekki að segja ekki allan sannleikan.
Ég er myndarlegur... ...eða það finnst mömmu alla vegana.
Ég er ríkur... ...fyrstu vikuna eftir hver mánaðarmót.
Ég er sterkur... ...miðað við litlu systur mína.
Lærið nú af þessari bið steypu minni. Djöfull er Hjalti lengi á klósettinu ég höndla ekki að skrifa meiri bið steypu... Ég verð að segja ykkur the stunning conclusion of Waterballoon 3: Everything is when three is, seinna. Ég fullvissa ykkur um samt að ég hitti, ég veit ég get það, ég veit það!

- Kiddó

UPPFÆRSLA: Ég sagði ykkur að ég myndi hitta, Búja!

Kristinn Painted! @ 2:18 PM


mánudagur, mars 10, 2003

Ömurlegt...

Nýin Bömmer dagsins: Ætlaði að reyna að vera fyndinn með því að ljúga að öllum að það yrði verðlaunaafhending fyrir S.B.B.F. þannig að ég skrifaði: Allir að mæta... og síðan skrifaði ég eitthvað script error og random tölu og bókstafi í sviga og þá umturnaðist bloggið! Teljari.is komið á miðja síðuna og restin af S.B.B.F updateinu kom ekki. Ég er greinilega meiri hakkari en ég læt uppi, en ég get ekki farið í Edit blogg lengur... Looks like the jokes on me... Ef þetta lagast ekki með tímanum(því Guð veit að ég nenni því ekki) þá lítur út fyrir að það sé ég en ekki Bjarney sem hætti að blogga...

Til að klára updateið: Save The Bjarney-Blogg Foundation lætur nú af störfum vegna skorts á verkefnum. Við komum okkar til skila á 12 dögum sem sannar að hvaða auli sem er getur breytt heiminum á sinn eigin hátt.

- Kiddó

Kristinn Painted! @ 1:01 PM


Krakkar mínir komiði sæl...

Bíddu... það er meira.

Matur dagsins 10/03/03: Tortellini(Svona pasta með kjötgubbi inn í) með Frissa Fríska með að drekka.
Lukka dagsins 10/03/03: Fór og náði í orlofspeningana niður í banka. 38 þúsund kall bara fyrir mig.
Bömmer dagsins 10/03/03: Fór í skólann, upplýsingaskjárinn var bilaður, fór í Upplýsingatækni, kennarinn var veikur, helvítis upplýsingaskjár.

Jæja börnin mín smá og góð(sagði barnaperrinn). Ég hef gert lítið sem ekkert þessa helgi. Ég fór jú á fyllerí með Emil og Svenna, en engir létu sjá sig í drykkjugleðina sem ég ætlaði að halda. Bragi var með nýju kærustuni(Til hamingju man), Valdimar fór í bíó(.) og Lalli má ekki drekka út af læknisráði. Já en við skemmtum okkur vel, drukkum okkur piss og spiluðum CS og hlustuðum á Random ómerkta diska sem Hjalti átti(Okkur til mikillar furðu var ekki allt 80's bull).
Á Laugardaginn horfði ég á box Ísland - Danmörk... djöfull var það gaman! Ég hélt að danirnir myndu pakka okkur saman en nei, rauðu, þrútnu baunarnir lentu í jafntefli fyrir okkur! Sem íslendingur getur maður alltaf sagt, þegar Ísland nær árangri í einhverju að þetta sé gott miðað við höfðatölu, gæði umfram magn eins og þeir segja.
Seinna um kvöldið horfði ég á fyrstu Formula 1 kappaksturinn síðan í fyrra. Minn maður Schumacher lenti í fjórða sæti því hliðarvængirnir rifnuðu af bílnum hans og hann þurfti að keyra varlega til að halda stjórninni. En í fyrsta var Coulthard, Annar var Montoya og þriðji var ungi Raikkonen. Þegar Schumacher og Raikkonen voru í hvað mestu baráttunni um 1 og 2 sætið ákvað ég að senda Kela Formúlutudda eitt stk sms. Það hljóðaði svona: "Þú veist að hann nær honum Keli, þú veist það eins og Ugla" og á sama tíma og sms fór tók Schumacher fram úr honum ég hló að kaldhæðninni og hvernig Keli myndi örugglega taka þessu. Ég fékk ekkert svar. En frétti það síðan á Blogginu hennar Bjarneyar að hann hafi verið sofandi eins og Ugla. Talandi um Bloggið hennar Bjarneyar...

S.B.B.F: UPDATE -----> SIGUR!!! Save the Bjarney-Blogg Foundation hefur unnið sigur í býtum. Bjarney hefur aftur byrjað að blogga og gerir það meira að segja ríflega. Bjarney fær afhentan 1x Krówki poka, 1x Bolla og 1x hundrað kall fyrir Blogg endurmat sitt, sem verður afhent við verðlauna afhendingu á vegum Save the Bjarney-Blogg Foundation, Allir að mæta Klukkan


föstudagur, mars 07, 2003

Sjúbbirarí rei sjúbbirarí ra krakkar, ég ætla á fyllerí.

Sex sjóræningjar á dauðs manns kistu, romm, drukku la la la...

Matur dagsins 07/03/03: Ég elda mér örugglega Dominoz pizzu í kvöld.
Lukka dagsins 07/03/03: Mamma sagði að ég eigi um 30 þúsund inni á orlofsreikningi sem ég get leyst út því ég er námsmaður! It's all about the money.
Bömmer dagsins 07/03/03: Eyddi heilum Grunnteikni tíma í eitt verkefni (120mín) því ég gerði svo margar villur.

Hið ómögulega hefur gerst! Bragi Páll Sigurðsson tók prófið sem ég setti inn í gær, og hann fékk 100% rétt svör! Ég sem hannaði prófið þannig að aðeins ég myndi geta staðist það bókað. Sýnir hve vel Bragi þekkir mig, betur en ég átti von á... Hann verður að deyja áður en ég verð forseti, annars gæti hann leikið á mig með ýmsum "Ég-veit-hvað-Kiddó-gerir-næst" brögðum. Þar að segja ef ég verð forseti, og hann leiðtogi einhverrar andspyrnuhreyfingar á móti Forseta Íslands. Vonandi rætist þessi dökka framtíðarspá mín ekki, nema forsetaparturinn.

Pabbi ætlar að koma með bjórinn minn á eftir og þá verður drukkið. Emil kemur síðan í kvöld, kannski Bragi og Valdi líka og mögulega einhverjir leynigestir úr þotuliði Íslands(nei). Síðan fer maður kannski niður í bæ og lítur á lífið ef mórallinn er fyrir því.

Og á þessum degi fyrir 865 árum síðan var Conrad II von Hohenstaufen endurkosinn konungur Þýskalands... Mikill maður, mikil saga...

- Kiddó

Kristinn Painted! @ 4:23 PM


fimmtudagur, mars 06, 2003

Lifi byltingin krakkar, berjist fyrir brauði ykkar og vatni, því annars farið þið í fangelsi.

Mér skilst það alla vegana.

Matur dagsins 06/03/03: Bónusborgarar og Pilsner með að drekka.
Lukka dagsins 06/03/03: Það var frí í skólanum í dag vegna árhátíðar FB-inga, sem ég fór ekki á.
Bömmer dagsins 06/03/03: Ístal, fyrirtækið sem ég vinn fyrir er að rippa mig off.

Í gær heyrði ég hræðilegar fréttir! Ég fæ borgað eftir sölulaunum semsagt 450kr á hverja bók sem ég hef selt í vinnunni, en ekki 600kr á tímann eins og mér var sagt! Ég fæ einhvern 6-7þúsund kall útborgaðann meðan ég bjóst við sirka 12þúsund. Ég ætla að tala við kallinn á morgun og sýna honum hver vinnur fyrir hvern! (Ég veit ekki hvað það þýðir).
Alla vegana ég hef ákveðið þrátt fyrir peningaleysi, hungursneið og fleira slæmt að fara á Fyllerí á morgun, kaupi 2x carlsberg kippur örugglega, og dett síðan vel í það til tilbreytingar(Note: Kaldhæðni).
Ég keyrði Emil í Smáralindina í dag og meðan hann var í bankanum var ég að fikta í almenningstölvunum sem eru þar. Þá kemur maður upp að mér og spyr hvort ég hafi kynnt mér líftryggingar. Ég lýsti yfir ungum aldri mínum, peningaleysi og hafa ekki í hyggju að deyja á næstunni. Hann vildi nú samt eitthvað bulla í mér og fór ekki fyrr en eftir 3 mínútna samtal um ekki neitt. Síðan var maður fyrir utan bankann sem stóð upp á stól og öskraði: "50% afsláttur af öllu nammi í Nammi.is næsta kortérið, Það er farið að vora fyrir nammið!". Síðan þaut fólkið í marglitum þyrpingum í nammibúðina og keypti nammi í áfergju. Síðan hljóp maður fram hjá bankanum með dómaraflautu og kallaði: "Kauphlaup! Kauphlaup!" og blístraði á víxl... Þetta var án efa fáránlegasta skutla-Emil-í-bankann-ferð sem ég hef nokkurn tíman farið í.

S.B.B.F: UPDATE -----> Bjarney hefur líst yfir áhuga sínum til að byrja aftur að blogga ef Save the Bjarney-Blogg Foundation lætur Krówkíið af hendi. Ég geri það víst fúslega og má Bjarney búast við Krówki pokanum næst þegar leiðir liggja saman. Nú er bara að bíða og sjá hvort bloggið byrji á næstunni, en ef ekkert gerist hvet ég fólk til að gefa enn í sjóðinn og kannski tekur hún við sér ef fjársjóðurinn stækkar. Hún hefur gefið í skyn að Turtles dót falli í kramið, ég hvet því kærasta hennar, Hrafnkel að sjá um það hann var jú í Turtles félagi... En við erum góðgerðasamtök og neyðum engan til neins. <----- S.B.B.F.: UPDATE

Takið hve vel þekkir þú Kiddó, prófið.
Take my Quiz on QuizYourFriends.com!

- Kiddó

Kristinn Painted! @ 2:58 PM


þriðjudagur, mars 04, 2003

Hvað segiði krakkar, allt í góðu ?

Ég segi allt í góðu.

Matur dagsins 03/03/03: Lucky charms og pítsuafgangar... hollustan lengi lifi.
Lukka dagsins 03/03/03: Jón Magnús gaf mér hátalara í Shadowinn, flottir Pioneer speakers, takk Jón.
Bömmer dagsins 03/03/03: Sögukennarinn minn var veikur... Hvað! mér finnst gaman í sögu!

Ég fór í hólminn um helgina. Datt í það með félögunum þar á meðal Helga Eíriks sem var þar að vinna á föstudegi. Síðan ætlaði ég í partý í Grundafirði á laugardaginn en þegar þangað var komið var partýhaldarinn dauður og allir farnir. Við fórum aftur heim með skottið milli lappana. Annars þegar ég var ekki fullur var ég annað hvort að rúnta á Focusnum eða spila GTA: Vice city í PS2 tölvu bróður míns. Rosalega gaman að vera ég. Ég er líka kominn með pening aftur, húrra! 30.000 kall sem á að endast febrúar + eitthver smá laun sem ég á inni. Það er gaman að vera ég. Í dag spilaði ég Counter strike og hló með sjálfum mér meðan Hjalti og Arnar Logi voru raðnauðgað þegar þeir voru að spila. Síðan tók ég nokkur round og sýndi þeim tökinn sko, arr! Á morgun byrja sæludagar í FB. Ég mæti á hádegi og spila Counter-strike við einhverja FB nooba sem ég myrði, hehehe... hohoho... síðan halda sæludagarnir áfram út miðvikudaginn og endar síðan á árshátíð FB á fimmtudegi.

Syrpubrandari úr Syrpu Nr. 104, bls 103. "Andrés önd - Vafrað um á netinu"
Andrés og Georg Gírlausi eru að ganga niður götu og talast við.

Georg: Andarnetið er merkileg uppfinning, ekki satt?
Andrés: Já! Við Fiðri vorum einmitt að ræða það! En hann sagðist ekki vilja vafra um það!
Georg: Af hverju ekki?
Andrés: Af því að hann er svo hræddur um að villast!
Georg: He, he! Hann er samur við sig! Það er út í hött! Ha, ha!
Andrés: Já, ég sagði honum líka... ...að hann gæti fengið sér áttavita!


S.B.B.F: UPDATE -----> Maður að nafni Helgi Eiríksson búsettur í lágmúlanum hefur ákveðið að gefa, Save the Bjarney-Blogg Foundation, fullkomlega nothæfan bolla sem færi vel við hvaða innanhúss innréttingu. Þá er staðan í S.B.B.F. sjóðnum semsagt: 1x Krówki poki(líklega einn af tveimur á landinu) og Bolli(Mjög nothæfur til drykkju og pennageymslu). Vinsamlegast hjálpið okkur að styrkja múturféð svo að Bjarney nokkur bloggari byrji aftur að blogga, takk fyrir og veriði heil... <----- S.B.B.F.: UPDATE

- Kiddó

Kristinn Painted! @ 1:59 AM


Hver er ég?

Nafn: Kiddó
Aldur: 19
Staður: Rvk/Breiðholt
e-m@il: kiddo@bughunt.net
Hár: Já

The WeatherPixie

Vinir

Ericsson
Bragi
Hjalti
Oddur
Bjarney
Lalli
Þórdís
Súsanna
Viggó
Tobba
Tinna
Keli
Óli

Teljari

Linkar

FISH
Ævintýri Kiddó!
mBlog
Landið mitt

Spjall

Powered by TagBoard Message Board
Name

URL or Email

Messages(smilies)



Archives

12/01/2002 - 01/01/2003
01/01/2003 - 02/01/2003
02/01/2003 - 03/01/2003
03/01/2003 - 04/01/2003
04/01/2003 - 05/01/2003
05/01/2003 - 06/01/2003
06/01/2003 - 07/01/2003
09/01/2003 - 10/01/2003
10/01/2003 - 11/01/2003
11/01/2003 - 12/01/2003
12/01/2003 - 01/01/2004
01/01/2004 - 02/01/2004
02/01/2004 - 03/01/2004
03/01/2004 - 04/01/2004
04/01/2004 - 05/01/2004
05/01/2004 - 06/01/2004
06/01/2004 - 07/01/2004
07/01/2004 - 08/01/2004
09/01/2004 - 10/01/2004
10/01/2004 - 11/01/2004
11/01/2004 - 12/01/2004
12/01/2004 - 01/01/2005
02/01/2005 - 03/01/2005
05/01/2005 - 06/01/2005
10/01/2005 - 11/01/2005