|
fimmtudagur, febrúar 27, 2003
Jæja krakkar, hvernig er heilsan ?
Svör óskast.
Matur dagsins 26/02/03: Rookee núðlur með kjúklingabragði, vatn með að drekka. Það var allt sem ég borðaði í dag.
Lukka dagsins 26/02/03: Fór til Emils að ná í símann minn, veit ekki hvort það telst sem lukka en hann er búinn að vera þar síðan á mánudag.
Bömmer dagsins 26/02/03: Bjarney er hætt að blogga... Þetta er sorgardagur fyrir bloggþjóðina.
Í dag var ég enn þá veikur, ekki geðbilaður eins og í gær bara að jafna mig áður en ég mæti í skólann. Oddur og Bragi hringdu í mig klukkan 7 og báðu mig að syngja bakrödd í laginu sem þeir fluttu á söngvakeppni FB. Ég hóstaði kurteisislega í símann og lýsti yfir veikindum mínum og skorti á áhuga mínum á að syngja fyrir framan skólann. Vonandi unnu þeir samt.
Pabbi heimsótti veika strákinn í kvöld, kom með svínakjöt í raspi fyrir mig að hita upp þegar ég fæ lystina aftur.
Ég er byrjaður að spila Half-Life aftur í difficult, þó ég hafi sigrað hann í því áður. Ég hef bara því miður ekki mikið úrval af leikjum til að velja úr og því er næsti kosturinn vænstur, því eins og sagt er fiskur í hendi er betri en tveir fuglar í skógi eða að vera lokaður inni í búri með þremur mannætu tígrisdýrum eða eitthvað verra en það...
Nokkrar spurningar
Vann Birgitta Haukdal öll hlustendaverðlaun FM 95.7 ?
Horfir enginn á Office á Miðvikudögum á RÚV ?
Og hvað er í stóru byggingunni í skóginum fyrir neðan Breiðholtið?
Svör óskast.
Ég var harmi sleginn þegar ég las bloggið hennar Bjarneyar(Bjarneyjar, eða hvað?) því hún hefur lýst því yfir að hún er hætt að blogga!!! Ég vill meina það að allt sé falt og ég ætla því að stofna "Save the Bjarney-blogg foundation" eða S.B.B.F. Ég hvet alla til að senda inn peninga og alls kyns drasl til S.B.B.F. og í lok Mars mun foundationið múta Bjarney til að byrja aftur að blogga... Wicked evil plan en trúiði mér það mun virka. Ég hef þegar gefið einn "Mint condition Krówki poka" í sjóðinn. Það er bara einn af mörgum hlutum sem verða gefnir ef þáttaka er nóg. Sambloggarar góðir, ekki sitja hjá meðan sambloggari ykkar... ... ... vá ég get ekki klárað þessa setningu, ég er búinn að reyna að finna eitthvað inspirational í svona 3 mínútur, eitthvað ekki að virka. Heilaskemmdir. En það er hugurinn sem gildir ekki satt ?
Svör óskast.
- Kiddó
Kristinn Painted! @ 3:27 AM
þriðjudagur, febrúar 25, 2003
Djöfull, andskoti, helvíti og Béskotans.
Ég er búinn að spila CS í of langann tíma, búinn að hlusta á Beatles - One, Ensími - BMX og Fatboy slim - Better living through chemistry, búinn að reyna að glápa á Jay and Silent Bob myndina og éta eitthvað pasta sem gerði mig brjálaðan í maganum... Ég er að deyja úr leiðindum! Ætli ég spili bara ekki Half-life aftur eða mála eða eitthvað... Það væri gaman að vinna í lottóinu...
- Geðveiki Kiddó (Oh, he's back!)
Kristinn Painted! @ 4:57 PM
Jæja krakkar, Kiddó er með flensuna.
Lítum á björtu hilðarnar, ég er alla vegana ekki með Svarta dauða, fjúff, vel sloppið.
Matur dagsins 24/02/03: Ekki búinn að éta, er hálf lystarlaus, en miðað við peninga stöðuna þá eru það örugglega núðlur.
Lukka dagsins 24/02/03: Vaknaði með flensu... hey það er ekki lukka!
Bömmer dagsins 24/02/03: Vaknaði með flensu... þetta er nær lagi.
Úff ég veit ekki hvar ég á að byrja... Byrjum á peningabrandaranum... Ég fékk yfirdráttarheimild upp á 30þús, til að geta keypt harðan disk og lifað fínu lífu fram á útborgun. Þegar harði diskurinn var keyptur og shadowinn var fullur skoðaði ég innistæðuna mína í hraðbanka. Þar stóð að ég ætti 20.000kr, 10.000 meira en ég átti að eiga! Og ennþá batnaði það, á föstudaginn skoðaði ég innistæðuna og hún var orðinn 25.000kr! Þessi peningur var að fjölga sér álíka hratt og bakteríukvikindin inn í mér núna. Síðan í gær þegar ég var að hætta í vinnunni varð Svenni bensínlaus og lenti í því að læsa lyklana inn í bílnum sínum(gott kombó Svenni). Ég náttúrulega ríkur maður ákvað að lána honum fyrir lásasmið og brúsa af bensíni, ég stökk út í hraðbanka og ætlaði að taka út 5000kr. Ég náði 1000kr úr helvítis vélinni og innistæðan sagði mér að ég ætti 29þús krónur. Þá rann það upp fyrir mér, þessir innistæða er náttúrulega að segja mér í hve miklum MÍNUS ég var í. Já þetta var allt heimskulegt. Næstu 7 dagar verða erfiðir en ég á neyðarbyrgðir af núðlum, tekexi og korn flexi þannig að ég lifi þá af, en ég ferðast ekki mikið miðað við bensínafköst Shadowsins. Já og Svenni þurfti að skilja bílinn sinn eftir úti á miðri götu í fossvoginum, bensínlausann, læstann og með hazardljósin á milljón.
Ég er farinn í Counter-strike næstu 10 klukkustundirnar...
- Kiddó
Kristinn Painted! @ 1:53 PM
sunnudagur, febrúar 23, 2003
Æji... Teljarinn minn datt út eftir að ég var að fikta í Template-inu í gær... Maður á ekki að snerta það sem maður ekki þekkir, og ekki að þekkja það sem má ekki snerta...
Mig langar í gullfisk...
Vissuði að svarthol hreyfast? Það gætu verið um 100 svarthol í sólkerfinu okkar... Ef svarthol kemur hjá Satúrnusi þá hefur þyngdaraflið nógar afleiðingar til að eyða öllu lífi á jörðinni... Samt er frekar langt til Satúrnusar... Ég gerði hópverkefni í Jarðfræði um Satúrnus ég ætti að vita það...
Af hverju horfir enginn á Office á Rúv á miðvikudögum?
Kattarfursti, Diskófiskur, Blöðrufugl og ...
- Kiddó
Kristinn Painted! @ 5:33 AM
föstudagur, febrúar 21, 2003
Hæ krakkar, Talvan hans Kiddós hefur verið að bila í tíma og ótíma og á tíma.
Þetta er víst sjötta skipti síðan ég fékk hana.
Matur dagsins 21/02/03: Matur? Ójá, það sem þú setur upp í þig og tyggur? Ekkert svoleiðis enn þá....
Lukka dagsins 21/02/03: Ég er hættur að trúa á heppni af minni hálfu.
Bömmer dagsins 21/02/03: Þegar ég ætlaði heim í hádeginu þá var búið að rigna svo mikið að Shadowinn var í miðju stöðuvatni. Ég blotnaði.
Að fjarlægja útlim þegar hann er rotnandi, lyktandi og smitandi er mikil nauðsyn. Sérstaklega þegar umtalaði útlimur kemur niður á heildarframkvæmdarvinnslu líkamsheildarinnar! Þess vegna ákvað ég að fjarlægja harða diskinn sem fylgdi með tölvunni minni. Og viti menn! HÚN VIRKAR EINS OG SMURBRAUÐ! Til að gefa ykkur smá hugmynd um vítiskvalir mínar seinustu daga þá get ég sagt ykkur það að ég keypti nýjan harðann disk á þriðjudag(40GB). Fékk yfirdráttarheimild til að redda þessu því eins og svo oft hrundi helvítis tölvuruslið. Ég skellti honum inn þegar ég kom heim og allt var eins og í sögu. Síðan kom miðvikudagur. Talvan vildi ekki fara í windowsið. Ég náttúrulega öskurreiður og gekk berserksgang í íbúðinni, fór síðan í vinnuna og grét mig í svefn um nóttina. En núna rétt fyrir 15mín síðan ákvað ég að gera seinustu viðgerðartilraunina á tölvunni. Ég mundi að þegar ég keypti tölvuna þá sagði Gísli, maðurinn sem seldi mér hana: "Ekki reyna að setja upp stýrikerfi á disknum sem er í tölvunni, hann er fullur af "Bad Sectors", og use the force Kiddó, use the force". Ég skildi ekkert hvað það þýddi en ákvað að setja ekki stýrikerfi upp á disknum samt og nota the force í hófi. En aftur og aftur hrundi talvan. Það var þá, rétt áðan, þegar ég setti fram "Disk-smit" kenninguna. Já ég reif út gamla diskinn eins og holdsveikan útlim úr tölvunni, skrúfaði hana aftur saman og, vrúmmm... Hún virkar eins og í sögu. Aaahh... Endorfín. Ég segi ykkur kannski hvað dreif á daga mína sem ég ekki gat bloggað seinna, en þangað til verður þetta að duga...

"Wait, I'm not a dictator!" you cry! Well lets look at the check list: Unelected? Check! Use wars and xenophobia to boost popularity? Check! Total control of the media so they never say a bad word against you? Check! Kill scores of innocent people to get what you want? Check! Do anything to get your hands on oil? Check! Inhumane treatment of prisoners? Check! Face it, you're a dictator, and no amount of gloss will hide that fact… or the fact you're a borderline retard who looks like a monkey! But the chicks dig you!
What tin-pot dictator are you? Take the "What Dictator am I?" test at PoisonedMinds.com
|
Minn maður, go Bush!
- Kiddó
Kristinn Painted! @ 1:09 PM
föstudagur, febrúar 14, 2003
Special Fimmtudagurinn 13 blogg: "Kiddó's flashback to the 90's"
Ah ég man þá daga í Stykkishólminum þegar maður var carefree og frjáls. Aaaahh... Veturinn '99 þegar ég og Helgi gerðum ekkert annað en að leigja spólur á hverju einasta kveldi í hálft ár, heilaskemmandi stundir. Aðra hverja Helgi spilaði/málaði maður Warhammer og eini leikurinn sem maður spilaði á þessari blessuðu hátækni 20. öld var Final Fantasy 1, í NES hermi á gömlu 500mhz tölvunni minni. Það minnir mig á hana, talvan mín gamla með 500mhz celeron örgjörvanum, þar eins og ég hafi skipt henni út fyrir nokkrum vikum, þó ár sé liðið ég skipti minni út í desember 2002... Tíundi áratugurinn var frábær, grunnskóli með sína "no worry" attitude hegðun, sofa til 19 á helgum og drekka hverja einustu helgi sem árið hafði upp á að bjóða... Það hafa liðið árþúsundamót, ný öld hefur komið og 4 ár eru síðan allt var einfaldara... Já the 90's sko, það var tími til að lifa...
#AUGLÝSING# : Látið af 80's dýrkuninni. Gangið til liðs við nýju Nostalgíusinnana. 90's Félag Íslands.
- Kiddó
Kristinn Painted! @ 1:57 AM
fimmtudagur, febrúar 13, 2003
Kiddó sem forsætisráðherra, allir með segi já.
Mjá.
Matur dagsins 12/02/03: Lambakótilettur í raspi hjá Stínu frænku.
Lukka dagsins 12/02/03: Ég kláraði Shógun í dag, 1244 bls að baki.
Bömmer dagsins 12/02/03: Lásinn á Shadowinum var frosinn í morgun og ég þurfti að fara inn um skottið, síðan gleymdi ég ljósunum á fyrir utan skólann og hann varð rafmagnslaus.
Það er eitthvað með mig. Þegar ég byrja að gera eitthvað nýtt og spennandi eins og að spila nýjan leik eða lesa nýja bók, og geri það í svona 2-3 mánuði og síðan klára ég bókin/leikin og þá er líf mitt eitthvað svo tilgangslaust. Áður en ég kláraði Shógun þá gat ég alltaf huggað mig við það að ef ég hefði ekkert ekkert að gera þá gæti ég alltaf alla vegana lesið Shógun. Það sama var með Skies of Arcadia, Final fantasy legur leikur í dreamcast tölvunni hans Braga, ég spilaði hann heilt sumar og mánuð til, allt í allt 60 klukkustundir og síðan þegar hann var búinn þá var það bara tómið. Ég sé það alveg fyrir mér núna. Um leið og Shadowinn hættir að bila þá kemur þetta örugglega aftur, maður er orðinn svo vanur bilunum að ef ekkert bilar í viku þá finnst manni maður vera hálf svikinn. Guð blessi bilanir, þær halda mér við efnið.
 You are the 1955 Ford Fairlane Crown Victoria. Take the Which Classic Car Are You? quiz! By JC and Bren.
Geðveikur bíll í Street Road alla vegana, prófið þið.
- Kiddó
Kristinn Painted! @ 1:01 AM
mánudagur, febrúar 10, 2003
Jæja krakkar Kiddó er orðinn vinnandi karlmenni.
Ef það er karlmannlegt að vinna í símasölu þ.a.s.
Matur dagsins 10/02/03: Rookie núðlur með Kjötbragði.
Lukka dagsins 10/02/03: Fékk starf hjá Ístal við að selja forvarnarbækur í símasölu.
Bömmer dagsins 10/02/03: Upplýsingatæknikennarinn minn eyddi út ritgerðarverkefni sem ég var búinn að vinna að í klukkutíma. Ég var ekki búinn að seiva. Djöfull.
Já nú er maður kominn með vinnu. Loksins loksins nennti ég að redda mér vinnu, en Svenni vinur minn reddaði mér henni. Ég hef frjálsa mætingu en ég plana á að mæta 4 sinnum í viku. Það ætti að redda mér 40.000 kalli auka á mánuði + 30.000kr meðlags peninginn = 70.000kr á mánuði. Góður díll segi ég. Það fer náttúrulega ca. 20.000kr á mánuði til að halda shjólatíkinni gangandi, en það er samt 50.000kr í minn vasa til að éta fyrir, eyða í vitleysu og spara. Ég vinn frá 6-10 og fæ 2400kr fyrir þessa 4 tíma, en ef ég sel 6 bækur eða meira þá fæ ég 450kr á hverja bók eftir það. Já nóg af tölubulli.
Í dag þá var ég í upplýsingatækni. Ég var búinn að vera klukkutíma að djöflast í einhverju helvítis ritgerðarverkefnisbulli, og það eina sem var eftir var að ég kunni ekki að taka "Head & Footer" af forsíðunni. Þannig að ég bað kennarann um aðstöð, 60 ára kona sem hefur eitthvað á móti mér þar sem ég kann ekkert á Word. Hún settist við tölvuna mína og sagði eitthvað á þessa leið: "Það er alltaf sama sagan með þig Kristinn", "Hvað þetta er svo auðvelt" eða "Veistu ekkert í þinn haus *RITSKOÐAÐ*". Eftir að hún var búinn að djöflast við að ráða "Haus og fótur gátuna" í svona 10 mínútur og ekkert gekk þá ætlaði hún að fella niður skjalið og prófa eitthvað annað. En í staðinn fyrir að fella niður skjalið þá lokaði hún því. OG ÉG HAFÐI EKKERT SEIVAÐ ALLANN TÍMANN!!! Hún var vandræðaleg, ég var geðveikur, Bandaríski skiptineminn hló og einhvers staðar í tölvuhelvíti brosti Bill Gates. Á miðvikudaginn verð ég að byrja alveg upp á nýtt, klukkutími af lífi mínu farinn í súginn. Ég hefði getað lesið kafla í Shógun eða keyrt til Keflavíkur en í staðinn þá mætti ég í UTN-1036. Karma.
Guð minn góður, dreptu mig núna,
ég er að verða óður,
langur tími, byrjaður að fúna,
Guð, vertu nú góður.
Ort í Þýsku tíma í dag. Guð má skipta út með öðru nafni ef óskað. Má nota sem borðbæn.
- Kiddó
Kristinn Painted! @ 11:27 PM
sunnudagur, febrúar 09, 2003
Hæ krakkar, long time no skrif neh?
Ég hef mínar ástæður látið mig vera!
Matur dagsins 08/02/03: Bónus hamborgarar með öllu, appelsín með að drekka.
Lukka dagsins 07/02/03: Fékk 3000kr fyrir að krúnuraka mig í afmælinu hjá Sigmari.
Bömmer dagsins 08/02/03: Snæfell tapaði með 30 stiga mun á móti Kefla vík í bikarleiknum í dag..
Margt og mikið hefur skeð síðan ég bloggaði síðast. Talvan mín hrundi aftur á fimmtudaginn. Ég ætti að breyta nafninu á blogginu mínu í Allt um hlutina sem bila hjá Kiddó., það væri helvíti viðeigandi. En ég er kominn með hana í gang aftur(aftur) og vona bara að hún verði þæg.
Í gær keyrði ég í Hólminn til að fara í 20 ára afmæli Sigmars vinar míns. Þetta var grímubúningapartý og ég mætti galvaskur sem Kúreki eins og alla öskudaga sem ég hef farið á grímuball á. Allt sem ég þurfti í búninginn fékk ég niðri í geymslu hérna í Dúfnahólum. Fanný systir mömmu minnar var hérna nefnilega á menntaskóla árum sínum(In the 80's) og hún á fullt af kössum niðri í geymslu með úrvali af smekklegum fötum. Síðan keypti ég yfirvaraskegg í hókus pókus, sem vakti mikla lukku í partýinu. Ég gaf Sigmari bolla með áritunni "Year of the dog" því Sigmar var fæddur á ári hundsins samkvæmt kínversku tímatali, síðan gaf ég honum tvö snickers crunch og svitalyktareyðir sem ég gat ekki skipt um jólinn. Þegar leið á kvöldið og maður var orðinn dáldið drukkinn þá fékk ég tilboð sem ég gat ekki neitað. Sigmar, Keli og Bragi borguðu mér 1000kr hver fyrir að krúnuraka mig. Ég tók náttúrulega þessu tilboði og er því sköllóttur í dag og 3000kr ríkari.
Í dag keyrði ég aftur til Reykjavíkur til að sjá leikinn milli Snæfells og Keflavíkur í laugardalshöllinni. Þar tapaði snæfell eftirminnilega með 30 stiga mun. Ég vona að lukkudýr Keflavíkur fái malaríu og deyi kvalarfullum dauðdaga.
Búninga ganrýni Kiddó:
Sigmar: Afmælisbarnið sjálft var klæddur sem djöfullinn með horn, rautt andlit og allt! Hræðandi.Hann fær 9 í búningaeinkunn.
Birna: Klædd sem 80's fegurðardrottning með svona fjaðratrefilsdót. Flashbacklegt. Einkunn 7,2.
Bragi: Var í prinsessukjól með vettlingabrjóst og glans hárkollu. Surreal. Einkunn 7,6.
Lalli: Glanshárkolla. 17. Júní. Einkunn 1.
Keli: Klæddur í skoskan þjóðbúning kilt og alles. Sannfærandi.Einkunn 8,7.
Bjarney: Í bláum kjól með vönd, vængi og tonn af glimmer, sem álfur. Stýllegt. Einkunn 8,2.
Óli: Í munkamúnderingu. Einlitt. Einkunn 7.
Herdís: Fegurðardrottning Kópaskers, hvítur kjóll og beautyborði. Hvítt. Einkunn 7,3.
Hulda: Klædd sem indíáni, svarinn óvinur kúreka, samt var hún frekar ekki með nein læti. Friður. Einkunn 6,5.
Auður: Ég veit ekki hvað hún átti að vera, Pippi langströmp eða eitthvað. Ha? Einkunn 5,4.
Ingibjörg: Ég hélt að hún væri strætóbílstjóri en hún var víst lúðrasveitarstjóri. Virðulegt. Einkunn 8.
Rúnar: Með veiðivesti í vöðlum og alveg græjaður sem veiðikall. Vatnsheldur. Einkunn 7,1.
Böðvar: Böðvar. Böðvar. Einkunn 1,2.
Valli: Boðflenna því honum var ekki boðið! Pirraður. Einkunn 0,3.
- Kiddó
Kristinn Painted! @ 4:22 AM
þriðjudagur, febrúar 04, 2003
Che... che... check it!
 What Pattern Are You?
Gaman af þessu.
- Kiddó
Kristinn Painted! @ 12:43 PM
Hæ krakkar, Kiddó er ekki að höndla að skrifa mikið.
Svarið er já.
Matur dagsins 03/02/03: Bónus hamborgarar með engu, pepsi með að drekka.
Lukka dagsins 03/02/03: Fékk 60.000kr í námsmeðlag inn á reikninginn minn.
Bömmer dagsins 03/02/03: Komst að því að 60.000 þúsundin voru í rauninni 30.000, helvítis óþjálfuðu bankastarfsmenn.
Þegar eitt lagast þá bilar annað, þannig virkar lífið. Eftir seinasta blogg mitt þá kom villa í windowsið og ég þurfti að setja allt upp aftur. Og nú var Hjalti að segja mér að vídeóið mitt væri eitthvað að klikka. Gotta love it. Svo lengi sem þessi bilanavírus heldur sér frá shadowinum næsta mánuðinn þá er ég happy.
Í morgun ætlaði ég að vakna snemma til að gera nokkur verkefni í upplýsingatækni sem ég átti að vera búin að skila. Því miður fann ég enga lausa tölvu í skólanum(Ég var ekki búinn að laga mína)þannig að ég fór í bankann að sækja menntameðlagið mitt. Þegar ég kom þar sagðist stelpan í bankanum að það væri ekkert inn á reikningnum mínum! Ég var í sjokki þar sem reiðufé mitt var teljanlegt í tíköllum, og án þessa peninga væri þessi mánuður helvíti. Þá komst Pabbi að því fyrir mig að peningurinn hafði verið fluttur á reikning mömmu minnar. Ég lét mömmu setja peninginn inn á mig og þegar ég checkaði á innistæðunni minni var 60þús kr. inn á reikningum! Ég fór á shopping spree í bónus og esso og var verulega ánægður með afrakstur mála. Síðan í kvöld hringdi mamma til að checka á því hvort ég hafði fengið peninginn. Ég sagði henni frá tíðindunum og hún sagði mér frá mistökunum. En 30.000 er líka peningur, kannski ekki mikill en ætti að duga mánuðinn.
Ég fór líka í hólminn um helgina og drakk mig fullan tvö kvöld í röð, en það seinna algerlega ókeypis. Maður getur alltaf treyst á gömlu góðu alkavini sína í hólminum. Þetta var fyrsta heimförin síðan ég kom í bæinn, það er alltaf gaman að sjá fjölskylduna og tíkina og micruna... helvítis micruna og náttúrulega vinina. Ég og Helgi tókum Jón, Ragnheiði, Gunnar Ægi, Hreiðar, Reynir og Benna í Party og co spilinu. Já gamla dúóið sýndi hvað í sér býr í leik sem snýst út á það að vera fáránlegur og sniðugur. Sýnir hvað maður er sniðugur.
Áttfaldur.
- Kiddó
Kristinn Painted! @ 1:47 AM
|