fimmtudagur, janúar 30, 2003

Hey krakkar, hér er Kiddó um Kiddó frá Kiddó til Kiddó.

Nei, ekki til Kiddós !

Matur dagsins 30/01/03: Bachelor pasta, keypt í pakka, just add 300ml water and 125ml milk. Butter for extra taste.
Lukka dagsins 30/01/03: Hit me with a rhythm stick með The Stranglers var á Radíó reykjavík í morgun. (Das is good, fantastic!)
Bömmer dagsins 30/01/03: Gleymdi að skila Showtime spólunni fyrir Hjalta, verð víst að borga vídeóskuld.

Það er fátt fyndnara en að sjá Hjalta spila Counter strike. Hann virðist ekki geta gripið conceptið að þú hittir ekki úr rifflinum þínum ef þú ert að hlaupa eða heldur inni gikknum! Ég takmarkaði vopnabúrið hans í MP5 vélbyssu og kevlar vesti meðan hann kemst upp á lagið með þetta. Sem hann gerir aldrei ef hann heldur áfram að vera svona mikil pussy. Hann labbar hægar en snigill, felur sig bakvið allt sem hægt er að fela sig bakvið, hleður aldrei eftir skotbardaga og umfram allt er ekki að meika það. Kannski skánar hann í framtíðinni en þangað til get ég alla vegana drullað smá yfir hann. En þá get ég náttúrulega átt á hættu að kalla yfir mig reiði Hjalta. En það er það seinasta sem ég er hræddur við, það fyrsta er að vakna á norðurpólnum. Hjalti hinsvegar er ekki jafn hugrakkur og ykkar einlægur bloggari, hann hræðist dýr sem eru sætari en sæbjúgu. Köngulær. Tvær þrjár þannig í rúmið hans og Hjalti myndi eyða restinni af deginum í sturtu og ég myndi springa úr hlátri. En ég læt mér nægja að horfa á köngulóa þætti á Discovery, það er nógu hræðilegt fyrir strákinn(Meira segja meðan það er ruglað!). En nóg um Hjalta.

SVAVAR UPDATE: Svavar vinur minn var að missa vinnuna(Hann mætti ekki í 3 vikur), og leiguhúsnæðið sitt hjá Emil(því hann er sóði, letingi og fátæklingur). Síðan skuldar hann mér 1000kr!(Sem hann átti að borga fyrir 2 vikum) En nóg um Svavar.

Hér er hef ég klippt saman samtal milli Helga og Lalla sem voru í rauninni samtöl á milli mín og helga, og Lalla og Mín sem áttu sér stað á ircinu. Lalli = ramrecon, helgi = H3lg1.
ramrecon> yo
h3lg1> SUP
ramrecon> nuthin
h3lg1> niggah
ramrecon> nokkuð viss um það
h3lg1> ég er með heilann quick bar fullann af combat styles hehe
ramrecon> núna ?
h3lg1> mega gamann
* ramrecon er spila Mega Man 2
h3lg1> vinstri hendin mín er samt ónýt
ramrecon> ;D

Hvað nútíma klippitækni er fullkomin, ef Helgi og Lalli væru forsetar, gæti ég kúgað úr þeim milljónir með gervi sköndulum sem ég myndi gera með því að klippa saman lygavefi eins og meistaraverkið hér fyrir ofan. Eigið góða daga.

- Kiddó

Kristinn Painted! @ 6:02 PM


mánudagur, janúar 27, 2003

Hey krakkar, Kiddó er í Happymode, af hverju segiði?

SHADOWINN ER KOMINN Í LAG ! ! ! (Þangað til næsta bilun kemur)

Matur dagsins 27/01/03: Emil's Pizza á eftir. (Leyniuppskrift)
Lukka dagsins 27/01/03: Shadowinn er kominn í lag í bili.
Bömmer dagsins 27/01/03: Shadowinn var ekki kominn í lag fyrir skólann = Labbitúr í rigningunni.

Og hvað var svo að bíldruslunni? Bensíndælan er orðin slöpp. Pabbi leit við og leit á shadowinn, hann hélt fyrst að bensíninu mínu hefði verið lensað af bílnum af óprúttnum glæpamönnum þannig að við fórum á select og keyptum bensín. En sú var ekki rauninn, eftir áfyllinguna var hann alveg jafn óstartanlegur. En eftir að pabbi beitti einhverri listatækni við að starta og gefa inn og bíða eftir að dælan færi í gang þá fór vélin að mala. Gleðidagur. Þetta er samt varla hægt. Druslan hefur bilað svona 10 sinnum síðan ég fékk hann í júní. Ég keypti hann náttúrulega á Vöku uppboði og hann var náttúrulega ekki í toppstandi þegar ég fékk hann. En mér hefur alltaf þótt hann svalur bíll. 2500cc vél = 150 hestafla tryllitæki! Hann hefur verið mér góður og gert sinn part, þó hann bili vikulega. Hér er smá annáll um bilanir síðasta árs í engri sérstakri tímaröð(2002):

1. Fékk hann með 3 flötum ónýtum dekkjum, lekandi vatnskassa, sprungnu framljósi, klesstri farþegahurð og frambretti, lekandi pústkerfi osfrv... Fékk nýjan vatnskassa frá pabba, sprautaði og rétti beygluna, skipti um peru osfrv...
2. Miðstöðvarelemntið lak, þannig að ég var alltaf að bæta vatni á kassann.
3. Setti þéttivökva á vatnskassann. Kassinn var alltaf fullur en miðstöðin stíflaðist og er nú látin.
4. Klesst á nýsprautaða brettið mitt á skólabílastæðinu og mér dæmt í órétt(Það var ótrúlega unfair dæmi nenni ekki að fara út í það).
5. Eftir klessuna kom alltaf skemmtilegt smelluhljóð í hurðinni.
6. Bæði framljósin sprungu með nokkura mánaða millibili.
7. Hægra framdekkið lak alltaf alveg þangað til fyrir stuttu þegar ég fékk "Ný" dekk frá pabba.
8. Dekkin reyndust vera sóluð og nokkura ára gömul, eftir tvo mánuði voru framdekkinn sléttari en geisladiskahulstur.
9. Reimin fyrir vökvastýrið slitnaði þannig að ég þurfti að nota "vöðvastýri" í mánuð.
10. Útvarpið átti það til að detta út í tíma og ótíma.

Þetta er bara það sem ég man akkúrat núna, og 2003 á örugglega eftir að hafa margar nýjar bilanir í för með sér. En við Shadowinn höfum lent í verra, við þraukum þangað til að vélin bræðir úr sér... sem ætti að gerast eftir nokkra mánuði. Hey þetta er nú einu sinni Shadowinn!

- Kiddó

P.S. Hjalti heldur að hann sé svo sniðugur með sitt nýja blogg(Nýja því óþekktur hakkari braust inn í gamla bloggið hans), en fyrst hann býr nú einu sinni með mér ætti ég að linka á hann þó hann sé 80's freak. Hérna er Hjalti.

Kristinn Painted! @ 6:52 PM


föstudagur, janúar 24, 2003

Hæ krakkar, Kiddó bla bla bla, bla bla bla...

Ha?

Matur dagsins 24/01/03: Steikt hestakjöt með pönnusteiktum lauk og kryddsmjöri og goslaust kók með að drekka.
Lukka dagsins 24/01/03: Ég er kominn með ADSL 2 frá Íslandssíma.
Bömmer dagsins 24/01/03: Shadowinn er bilaður... Helvítis draslið fer ekki í gang.

Nú er maður kominn með Internettengingu sem virkar vel, loksins. Nú get ég bloggað daglega, þó ég eigi örugglega ekki eftir að gera það. Nú fer maður örugglega að hanga í Counter Strike alla daga út og inn þangað til maður sér sér fært að kaupa Dark ages of Camelot. Þá verður spilað dauðans. En akkúrat núna er ég að spila Dragon Lore 2 frá 1996. Hræðilegur leikur sem ég keypti í Tiger 200 krónu búðinni. Hann er á fjórum diskum en samt þarf maður bara 50mb til að installa honum! Á sínum tíma hefur þessi leikur væntanlega verið alveg geðveikur, en ég hef aldrei fílað svona Zork týpu leiki. Ég myndi halda áfram að drulla yfir þennan leik en líkur spá því að engin þekki þennan leik, nema kannski Stjáni Buff, þannig að ég ætla að flytja stuttan leikþátt sem heitir "Kiddó-san leigir spólu". Kiddó-san er samurai sem fyrir skrítin forlög á heima á Íslandi á 21. öldinni þar sem hann sækir skóla í breiðholti og lifir sínu einfalda lífi.

"Kiddó-san leigir spólu" Eftir: Kiddó
Valli hefur ekkert að gera og ákveður því að heimsækja Kiddó-san gamlann vin sinn og bjóða honum að leigja spólu. Hann kemur heim til Kiddó-sans og bankar á hurðina. Skömmu seinna kemur Kiddó-san til dyra, hann beygir sig til að sýna lotningu sína.
Kiddó-san: Hvað flytur þig hingað Valli-san?
Valli: Já, sko, ég var að pæla nenniru að koma að leigja spólu með mér?
Kiddó-san: Ah so desu. Ég kem með ef að þú sérð um fjármálin. Það er fyrir neðan virðingu mína að hugsa um peninga.
Valli: Ha já ok.
Félagarnir fara á næstu vídeóleigu, þar sem þeir standa fyrir framan spólurekkana og velta fyrir sér valinu.
Valli: Hey Kiddó-san? Hefurðu séð Saving Private Ryan?
Kiddó-san starir út í loftið í nokkrar sekúndur, en snýr sér svo að Valla og segir:

Eins og lauf í vindi vetursins,
Tom Hanks og Spielberg,
er heiður í hjarta þjóðverjans,
fjórar stjörnur.


Valli: Já svo þú ert búinn að sjá hana. En hvað með Dharma & Greg: The movie?
Kiddó-san: Ah, Það er fullnægjandi.
Þeir labba að afgreiðslunni þar sem þrítugur slímugur karlmaður afgreiðir. Kíddó-san gefur upp kennitölu en þá kemur babb í bátinn.
Kall: Heyrðu, þú skuldar 500kr. Þú skilaðir víst Bowfinger degi of seint fyrir mánuði síðan.
Kiddó-san: Þetta er ómögulegt, ég skipti mér aldrei af peningum og sú hugmynd að ég geri það er móðgun! Wakarimasu? Dragðu aftur skuld þína eða...
Kall: Eða hvað? Drepur mig með þessum fansí smansí sverðum þínum?
Kiddó-san svaraði játandi, hjó kallinn í herðar niður og borgaði ekki fyrir spóluna. Síðan hélt hann heim á leið og bjó hamingjusamur Samurai það sem eftir var ævi sinnar, Endir.

- Kiddó


Kristinn Painted! @ 9:53 PM


mánudagur, janúar 20, 2003

Hæ krakkar, Kiddó er ekki með rafinternettengingu heima lengur.

Djöfull er þetta langt orð.

Matur dagsins 20/01/03: Pizzusmiðju pizzuafgangur með Pepperóní og sveppum.
Lukka dagsins 20/01/03: Ég náði tölvu á bókasafni FB og er að skrifa blogg þar núna.
Bömmer dagsins 20/01/03: Náði ekki að vakna klukkan 9 til að ná í eyðublaðabull niðri í bæ.

Seinustu helgi fór ég heim til Braga vinar míns í Mosfellsbæ á smá fyllerí. Ég var eitthvað ekki að höndla bjórinn og eftir kippu af Carlsberg fór ég nú bara að æla inná klósti. Ég fór ekki á Shadowinum þangað því ég var fullur og gisti því þar í pinkulitlu barnarúmi með sjónvarpsstofu teppi á mér. Enn ég var svo fullur eftir að ég gat byrjað að drekka aftur að ég steindrapst. Og Bragi keyrði mig heim morguninn eftir, eða semsagt í gær. Þá fór ég og Emil að leita að þessum nýja pizzustað sem er alltaf verið að auglýsa á Radíó Reykjavík. Auglýsinginn með djúpraddaða gaurnum sem vill pizzutilboð á 100 kall en mjóróma gaur segir honum að það sé 1000 kall og leggur svo á hann. Alla vegana staðurinn heitir Pizzasmiðjan og er í Grafarvogi. Við þurftum að spyrja á tveimur mismunandi bensínstöðum áður en við fundum staðinn og þegar við komum þangað vorum við svangir. Við tókum tilboðið og tveggja lítra kók, en þegar pizzan kom var minn helmingur vitlaus! (Pepp og svepp, en var bara Pepp!). Þannig að gaurinn gaf mér auka 12" pizzu fría! Ég borða bókað þarna aftur, góðar pizzur og skemmtilegt starfsfólk sem hlustar á Radíó reykjavík.

Já ég tók annað próf af Braga því ég er of ófrumlegur, hér eru niðurstöðurnar:

Disorder | Rating
Paranoid: Low
Schizoid: Moderate
Schizotypal: Moderate
Antisocial: Moderate
Borderline: Low
Histrionic: Moderate
Narcissistic: Low
Avoidant: High
Dependent: Moderate
Obsessive-Compulsive: High

Önnur saga úr grafarvoginum. Fyrir svona viku síðan þá var ég að keyra pabba heim eftir Shadow vesening. Eftir að ég keyrði hann upp að dyrum lagði ég af stað úr hverfinu. En þegar ég hafði keyrt smáspöl þá voru 4 krakkar á aldrinum 11-12 ára búinn að hlaða virki úr gömlum jólatrjám á veginn þar sem ekkert virki var fyrir 3 mínútum síðan! Ég flautaði og bölvaði krakkadruslunum en þeir hlógu bara að mér og ég neyddist til að fara út og brjóta aftur virkið með berum höndum meðan krakkahelvítin skellihlógu að mér. Það var ekkert erfitt og ég hló að þessu eftir á. Ég var bara heppin að þeir grýttu mig ekki með snjóboltum, því þá hefði virkið og kannski einn krakki fengið að kenna fyrir framstuðara á Shadowbifreið, en heppnin var með öllum, engin kastaði, engin keyrði og engin dó... nema Saddam Hussein, endir.

- Kiddó

Kristinn Painted! @ 4:53 PM


miðvikudagur, janúar 15, 2003

Krakkar, hvaða Goðsögulega dýr er Kiddó?



You are a phoenix.

What legend are you?. Take the Legendary Being Quiz by Paradox

Hverjum hefði dottið þetta í hug?

Matur dagsins 15/01/03: Hnetusúrmjölk beint úr fernunni, skálar eru fyrir aumingja hehehe.
Lukka dagsins 15/01/03: Vökvastýrið er komið í lag og pabbi keypti fyrir mig nýjar rúðuþurrkur.
Bömmer dagsins 15/01/03: Gleymdi stundatöflunni heima í morgun , var kominn út þegar ég fattaði það og þurfti að taka lyftuna upp að ná í hana!

Í dag skila ég glænýju internettengingunni minni aftur til orkuveitunar. Ég er búin að vera með hana í viku í ókeypis prufutíma með ókeypis 500mb download af netinu, sem ég hef ekki nýtt að neinu viti, en Hjalti notaði það til að downloada einhverju 80's rugli. Talandi um 80's og Hjalta, hann er að horfa á "Bachelorparty" með Tom Hanks síðan 1984 akkúrat núna... Skólinn byrjaði á mánudaginn, vei. Þessa önn tek ég bara 16 einingar, því það var víst ekki pláss í spænsku303, þannig að ég sit uppi með Þýsku, Jarðfræði og einhverja valáfanga. Það er skrýtið að þurfa allt í einu að fara að vakna daglega klukkan 8 þegar maður fer venjulega að sofa um 3 leytið. Á seinustu önn fékk ég góða stundartöflu, þurfti aldrei að vakna fyrr en 10, nema á þriðjudögum.

Síðan ég kom með tölvuna til Reykjavíkur hefur hún alltaf verið að kvarta undan low disc space. Þangað til í gær. Ég leitaði um allt á C: drifinu því að windowsið eitt tekur ekki 2GB! Og viti menn ég fann Quake 2 í documents möppunni! Helvítis Helgi hefur sett hann þar í seinasta lani en ég hélt hann hefði hent honum! Ég bölva honum og 3 næstu kynslóðum hans.

Jæja hvar var ég? ... Já. Ef einhver vill kaupa Pioneer bílakasettutæki (Model KP-4230, 12V DC GROUND, 1990 made in Japan), hafið þá samband í síma 8661297. Ómetanlegur forngripur sem fer fyrir lítið.

Jæja þetta var óvenju leiðinlegt blogg. Ég fékk slóðina að quizinu hjá Braga félaga, á blogginu hans, lítið þangað og sjáið hvað hann er. Leiðindin stafa örugglega af aðgerðaleysi og skorti á nýjum ævintýrum, en enginn er fullkominn, sérstaklega ekki Kiddó.

- Kiddó

Kristinn Painted! @ 2:00 PM


sunnudagur, janúar 12, 2003

Hey krakkar, hvað gerði Kiddó um helgina?

Ekki spyrja mig! Spyrjið hann!

Matur dagsins 12/01/03: Hálfur kjúklingur með barbeque sósu húð með frönskum, mais og Pepsi að drekka með.
Lukka dagsins 12/01/03: Það var til mjólk þegar ég vaknaði í dag.
Bömmer dagsins 12/01/03: Það er byrjað að snjóa og miðstöðin í Shadowinum er biluð.

Helgin hjá mér var extra viðburðalítil. Ég fór í rauninni á Stanley Kubrick 33 tíma Bíóthonið sem var í boði Bioreykjavik.com. Þeir auglýstu once in a lifetime tækifæri til að sjá fjórar fyrstu myndir Kubricks sem eru víst fáránlega sjaldgæfar... og hundleiðinlegar! Ég mætti þarna kl 10 á föstudagskveldi með það í bígerð að sjá kvikmynda stórvirki og það allt ókeypis! Eftir að einhver kall sem leit út alveg eins og Stanley sjálfur, hafði talað um mikilvægi þessara fyrstu fjögurra mynda í hálftíma þá byrjaði sýningin. Fyrst myndin hét "Day of the fight". Hún var um boxara og tvíburabróður hans sem voru að undirbúa hann undir að verja titilinn. Svarthvít, 12 mínútna löng og Johnson James talaði inná myndina. Kvikmyndabók Kiddó gefur hálfa stjörnu fyrir það að myndin var nógu stutt til að sofna ekki yfir leiðindunum. Seinni myndin hét "The flying Padre". Hún var um prest sem átti flugvél sem hann keypti af vini sínum fyrir 200$. Þegar sérann var ekki að messa eða skrifta þá flaug hann á milli bóndabæja og skilaði ófrískum konum á sjúkrahús ef það þurfti. Svarthvít, 12 mínútna löng og Johnson James var sögumaður aftur. Kvikmyndabók Kiddó gefur hálfa stjörnu fyrir trúverðugleika myndarinnar og af sömu ástæðu og "The day of the fight". Þriðja myndin hét "Seafarers". 39 mínútna löng kynningarmynd um SYU verkalýðsfélagið í bandaríkjunum sem sá til þess að sjófarar fengu sinn skerf af ameríska draumnum. 15$ á viku ef þeir voru veikir, 200$ ef að nýtt barn fæddist í fjölskyldu þeirra og 1000$ frá mér til mannsins sem fannst þessi mynd raunverulega GÓÐ!(Öllu sem Kiddó lofar á blogginu er ekki lagalega bindandi fyrir hann eða fjölskyldumeðlimi, þeim sem fannst Seafarers góð eru hins vegar lagalega bundnir til Kleppsvistar í óákveðinn tíma). Kvikmyndabók Kiddó gefur enga stjörnu, punktur. Ég entist ekki lengur en þessar þrjár myndir á föstudag, en kom aftur á Laugardag til að sjá "Clockwork Orange", "Barry Lyndon" og "The Shining" sem eru allar góðar og eru gott dæmi um betri myndir Kubricks. Þær myndir sem mig langaði líka til að sjá en vaknaði ekki/vakti ekki til að sjá voru: "2001: A space odissey", "Full metal jacket" og "Spartacus" en maður getur alltaf leigt þær...

Þar sem að ég kann ekki að setja linka inn á blogsíðuna mína þá set ég þá bara á bloggið sjálft. Hér eru tveir linkar til fólks sem ég þekki sem bloggar.
Bragi, maðurinn sem kom mér til að blogga og er vinur minn og skólafélagi, á blogginu hans er gagnrýnt, grandskoðað og pælt í samfélagi okkar og siðum jafnt sem skotið á verzlinga sem eru víst "hommar" að sögn.
Bjarney, innlit(útlit) í líf Bjarneyjar(á að vera J þegar maður segir Bjarneyjar eða er það Bjarneyar?) og fullt fullt af linkum til Spice girls fan síðna og annara bloggara, þar á meðal til mín! úje.
Og þeir sem vilja gagnrýna mig fyrir gagnrýni mína á fyrstu 3 Kubrick myndunum er velkomið að skjóta mig, ef þið finnið mig... En Kiddó kemur alltaf aftur...

- Kiddó

Kristinn Painted! @ 9:16 PM


föstudagur, janúar 10, 2003

Hey krakkar Kiddó er orðin heill geðheilsu á ný!

Vona ég.

Matur dagsins 10/01/03: Steiktur fiskbúðingur úr dós með mexíkanskri tómatsósu og appelsínusafa að drekka með.
Lukka dagsins 10/01/03: Keypti Gamla Ensíma diskinn "BMX", hann virkar vel á mig.
Bömmer dagsins 10/01/03: Komst að því að reimin fyrir vökvastýri Shadowsins er slitin, verð að kaupa nýja.

Jæja, kominn aftur í Reykjavíkina, spillingarbæli Íslands. Það er ekki heiglum hentugt að búa í Breiðholtinu(eins og ég) en ég er auðvitað ekki heigull. Tvíeggja sverð það er að búa ekki heima hjá sér, bæði góðir og slæmir hlutir sem vega upp á móti hvor öðrum. Góðu hlutirnir eru sjálfstæði, frelsi og óáreitt leti. Slæmu hlutirnir eru peningar, matur og óáreitt leti. Manni hefði aldrei dottið í hug að það væri svona dýrt að búa að heimann! Ég borga í rauninni enga leigu sem er stór plús en samt sé ég peningana fara í ekki neitt. Eitt oststykki getur kostað frá 400-700kr! Einn andskotans ostur! Fólk kvartar undan of háu bensínverði en ætti í raun að líta nær sér, öllu heldur í næstu matvörubúð og sjá hvað íslenski osturinn er dýr! Ég myndi skilja það ef þetta væri "Fromage Le Deupardu" ostur en "Gouda 17%" ætti ekki að vera svona dýr. Úr hverju er osturinn gerður sem er svo dýr vara? Ég veit að mjólk kemur stórum parti þar við og mygla að öðrum parti. Hvorugt af þessu er dýrt svo að það hlýtur að vera til "Þriðja ostefnið". En hvað það er eru getgátur einar af mínum parti, kannski er það einhverskonar ostþykkni? eða jafnvel afurð af öðru íslensku dýri til að fullkomna ostinn. En það dýr er jafn leynt og þriðja ostefnið.

Í seinasta bloggi sagði ég ykkur frá raunum mínum með að reyna að sofna eftir að sólarhringurinn minn var öfugsnúnari en hommalesbía. Kaffín planið gekk upp... að mestu leyti. Ég náði að halda mér vakandi í 33 tíma áður en ég rotaðist og svaf vel í fyrsta sinn í langann tíma... í langann tíma. Ég svaf til 4 og eyðilagði því planið aftur, en ég svaf alla vegana ekki til 6 eða 7 eins og áður. En þegar ég reyndi að sofna klukkan 6 um morguninn, heyrði ég Hinn Geðspillta hlæja innra með mér og ég vissi að þetta yrði löng nótt. Kl 10, eftir að litli bróðir minn hafði farið í skólann, hundurinn út að pissa og Egill fóstri farinn í vinnuna, snappaði ég. Skellti mér í sturtu, pakkaði, tók bensín og brunaði í bæinn og er hér enn þann dag í dag, laus við geðveikina, sem varð eftir í Hólminum...

- Kiddó


Kristinn Painted! @ 5:29 PM


laugardagur, janúar 04, 2003

Hey krakkar getiði hver hefur ekkert sofið í alla nótt!

Já, ég. (Eins gott að þið vitið hvað ég heiti núna!)

Ég er orðinn geðveikur. Undanfarna viku hef ég verið að vakna um kvöldmat og sofna um 7 leytið um morguninn, því hey! það er jú jólafrí. En seinustu 3 nætur hef ég ekki getað sofnað fyrr en um 11!!! (am). Það er ekkert meira pirrandi en að liggja í rúminu milli svefns og vöku í 4 tíma meðan hugsanir þínar eru órökréttar, flogakenndar og leiðinlegar! Til að bjarga því sem eftir er af Kiddó, eins og flestir þekkja hann, og útlægja Geðveika Kiddó fann ég upp hið skothelda plan. Drekka mig fullan og fara heim og drepast! Því miður er ekkert fullkomlega skothelt(Nema BMW MS edition), og skothelda planið er nú í götum því jafnvel kraftur alkahóls! eins mikið og ég hef reitt mig á hann! er ekki nýtanlegur gegn Geðveika Kiddó. Hann sannfærði mig um það að lesa smá í Shógun fyrir svefninn sakaði ekki og ég samþykkti og ákvað að lesa einn kafla fyrir svefninn. Einn kafli varð að tvem og tveir að þrem og þá rann blekking Geðveika Kiddó upp fyrir mér! Hann hafði látið renna af mér. Í skelfingu minni kastaði ég bókinni frá mér(eftir að ég kláraði 4 kaflann) og reyndi að ná lestinni í draumalandið sem ég hef ekki séð í þrjár! ógeðslegar! nætur! En nei, Hann, hafði unnið á ný. Eftir fyrstu tvo tímana fann ég Hann smjúga í hug minn og hann setti MC Hammer á fóninn... Það er ekkert nema geðveiki að hugsa: "Can't touch this dú dúrú dú, dúrú, dú dú can't touch this!" í 3 tíma!!! Ég var alltaf þyrstur, drakk örugglega 4 vatnsglös þó að Geðveiki Kiddó hafi beðið um 14, en hann er sko ekki the boss of me skal ég segja ykkur. Tíminn leið eins og snigill á róandi, ég gat ekki ákveðið hvort ég vildi spila á banjó eða munnhörpu, vissi ekki hvort rúmið væri svífandi eða vaggandi, og ég er enn ekki viss hvort gamli maðurinn á glugganum hafi verið þar í alvöru eða þykjó. Á 3 tímanum byrjaði ég að upplifa þvenkuna síga á mig, Geðveika Kiddó var skemmt, mér var flökurt. Á 4 tímanum gat ég þetta ekki lengur ég gerði nýtt skothelt plan, skotheldara en það fyrra! Í staðinn fyrir að treysta á kraft áfengis, ákvað ég að treysta á kraft Kaffíns! Ojá gott fólk, Kaffi will set you free, ef ég næ að halda mér vakandi til miðnættis ætti ég að geta sofnað værum svefni og útlægt Geðveika Kiddó að eilífu! Ef ekki, er þetta það seinasta sem þið heyrið af mér því ef hann fer ekki, þá förum við báðir... fram af bjargi...

- Kiddó

Kristinn Painted! @ 3:23 PM


föstudagur, janúar 03, 2003

Vá ég var búinn að skrifa feitt mikið af bulli en þá fokkaðist eitthvað og allt hvarf...

Long story short: Sólahringurinn öfugur, ætla að rétta hann, spila Neverwinter nights, lesa Shógun, reyna að sofna í 3 tíma, ekki geta sofnað, hugsa um bull sem ég segi ykkur næst, sayonara!

- Kiddó

Kristinn Painted! @ 2:50 AM


Hver er ég?

Nafn: Kiddó
Aldur: 19
Staður: Rvk/Breiðholt
e-m@il: kiddo@bughunt.net
Hár: Já

The WeatherPixie

Vinir

Ericsson
Bragi
Hjalti
Oddur
Bjarney
Lalli
Þórdís
Súsanna
Viggó
Tobba
Tinna
Keli
Óli

Teljari

Linkar

FISH
Ævintýri Kiddó!
mBlog
Landið mitt

Spjall

Powered by TagBoard Message Board
Name

URL or Email

Messages(smilies)



Archives

12/01/2002 - 01/01/2003
01/01/2003 - 02/01/2003
02/01/2003 - 03/01/2003
03/01/2003 - 04/01/2003
04/01/2003 - 05/01/2003
05/01/2003 - 06/01/2003
06/01/2003 - 07/01/2003
09/01/2003 - 10/01/2003
10/01/2003 - 11/01/2003
11/01/2003 - 12/01/2003
12/01/2003 - 01/01/2004
01/01/2004 - 02/01/2004
02/01/2004 - 03/01/2004
03/01/2004 - 04/01/2004
04/01/2004 - 05/01/2004
05/01/2004 - 06/01/2004
06/01/2004 - 07/01/2004
07/01/2004 - 08/01/2004
09/01/2004 - 10/01/2004
10/01/2004 - 11/01/2004
11/01/2004 - 12/01/2004
12/01/2004 - 01/01/2005
02/01/2005 - 03/01/2005
05/01/2005 - 06/01/2005
10/01/2005 - 11/01/2005