þriðjudagur, desember 24, 2002

Hey krakkar getiði hver er orðin átján!

Já, ég. Húrra. (Kiddó)

Ég er að koma mér í jólaskapið með að hlusta á Jólalag Baggalúts. Og drekka jólaöl. Áðan keyrði ég út jólagjafir til vina minna, sem voru allar gamlar bækur sem ég fékk með kassettutæki á uppboði Lionsfélagsins. Gæðabækur eins og "The way to effective speaking" sem Helgi fær, og "Stríðandi öfl" sem Benni fær. Allar þessar bækur, sjö talsins, kostuðu mig 600kr og ég fékk náttúrulega kassetturnar og kassettutækið líka. Ég veit að nú hugsa allir: "Þessi Kiddó er nánös og nískunirfill" en ég er ósammála því engin af vinum mínum gaf mér neitt til baka þannig að ég er öðlingur miðað við þá. Benni gaf mér í rauninni pakka en lét eftirfarandi orð fylgja: "Þessi pakki er hluti af mjög illu plotti sem þú fattar þegar þú opnar pakkann". Ég svaraði bara: "Þú getur ekki hrætt mig, og allra síst með jólapakka!". Pakkinn tifar. Þetta er örugglega úr.

Í gær varð ég átján ára. Mér líður ekkert öðruvísi, en vitandi af því að ég get keypt sígarettur, flutt út þegar ég vill og eytt öllum peningunum mínum í vitleysu gefur mér smá aldurstilfinningu. 23. des er samt ekki besti dagur til að eiga afmæli, allir muna eftir afmælinu manns að vísu, en enginn fæst til að fá sér í glas með mér á góðri stund. Þannig að ég er eini þunni gaurinn í vinahópnum á jólunum. Þvenka á jólunum er samt viss stemmning. Maður vaknar kl 9 eftir 4 tíma svefn með dúndrandi hausverk, ælir í klósettið, étur smákökur og glápir á jólateiknimyndir. Er ég sá eini sem reynir enn að vakna snemma til að ná jólabarnaefninu? Það kemur manni í svo góðan jólafíling að sjá Rúdólf bjarga jólunum með einhverju góðverki sem bjargar jólasveininum frá því að fá leið á jólunum eða eitthvað álíka. En því miður fyrir mig hef ég ekki getað vaknað fyrir hádegi seinustu þrjú jól, og hef því alltaf verið án Jolly-teiknimynda-jóla-skapsins.

En ég enda þetta með því að óska ykkur gleðilegra jóla og megi ykkur ganga allt í haginn, á jóladaginn, því hann rauðmaginn, er ekki laginn.

- Kiddó

Kristinn Painted! @ 4:22 PM


fimmtudagur, desember 19, 2002

Hey krakkar sjáiði hver er líka kominn með blog.

Já, ég. Jibbí. (Kiddó)

Nú hugsar kannski einhver: "Af hverju er urlið hans dunkoddi ?". Jah, það er saga að segja frá því. Sko, ég reyndi fyrst að fá kiddo.blogspot.com en það var frátekið þannig að þá hugsaði ég með sjálfum mér: "Hvað hljómar eins og Kiddó(mit navn) en er ekki, þannig séð, Kiddó þó það hljómi þannig". Augljósa svarið var náttúrulega "Koddi", maður switchar bara sérhljóðunum og þá er það komið, og það er samt ennþá alvöru íslenskt orð, þannig að þetta er svona orðaleikur. En það var líka frátekið. Þá fór ég að pæla úr hverju koddar væru gerðir og komst að þeirri niðurstöðu að það eru til þó nokkrar tegundir af koddum. T.d. Draumakoddinn frægi, gerður úr svampi og lítur út eins og oversized eggjabakki og tryggir hugljúfa drauma alla nóttina. Síðan var það Bókklýðiskoddinn sem var fundinn upp af kínverskum gaur sem setti hann í sjónvarpsmarkaðinn og varð ríkur(Ég man ennþá eftir þessari auglýsingu, hann sýndi fram á að mannshryggurinn er ekki eins og sleif heldur skeið). Og síðan auðvitað íslenski æðadúnskoddinn! Ég tók þessa þrjá kodda til umhusunar, hvað nafn myndi henta best sem urlið að blogsíðunni?: Draumakoddi.blogspot.com, Bokklydiskoddi.blogspot.com eða Æðadunskoddi.blogspot.com. Fyrst að Draumkoddi hljómar eins og einhver barnabókapersóna og mér hefur aldrei verið vel við kínverja(nei ekki sprengjurnar) þá féllst ég á æðadúnskoddann. En Æ og Ð eru ekki notuð á internetinu og skapaðist því nýtt vandmál sem ég leysti með því að taka þessa stafi í burtu(og A-ið á eftir ÆÐ til að halda samhengi). Það er undravert hvernig mannsheilinn virkar, þróun úr kiddo yfir í koddi yfir í æðadúnskoddi yfir í dunkoddi.blogspot.com, Heill sé heilanum og öllu hans föruneyti.

- Kiddó 19.12.02

Kristinn Painted! @ 6:57 PM


Hver er ég?

Nafn: Kiddó
Aldur: 19
Staður: Rvk/Breiðholt
e-m@il: kiddo@bughunt.net
Hár: Já

The WeatherPixie

Vinir

Ericsson
Bragi
Hjalti
Oddur
Bjarney
Lalli
Þórdís
Súsanna
Viggó
Tobba
Tinna
Keli
Óli

Teljari

Linkar

FISH
Ævintýri Kiddó!
mBlog
Landið mitt

Spjall

Powered by TagBoard Message Board
Name

URL or Email

Messages(smilies)



Archives

12/01/2002 - 01/01/2003
01/01/2003 - 02/01/2003
02/01/2003 - 03/01/2003
03/01/2003 - 04/01/2003
04/01/2003 - 05/01/2003
05/01/2003 - 06/01/2003
06/01/2003 - 07/01/2003
09/01/2003 - 10/01/2003
10/01/2003 - 11/01/2003
11/01/2003 - 12/01/2003
12/01/2003 - 01/01/2004
01/01/2004 - 02/01/2004
02/01/2004 - 03/01/2004
03/01/2004 - 04/01/2004
04/01/2004 - 05/01/2004
05/01/2004 - 06/01/2004
06/01/2004 - 07/01/2004
07/01/2004 - 08/01/2004
09/01/2004 - 10/01/2004
10/01/2004 - 11/01/2004
11/01/2004 - 12/01/2004
12/01/2004 - 01/01/2005
02/01/2005 - 03/01/2005
05/01/2005 - 06/01/2005
10/01/2005 - 11/01/2005